Segir Pútin leiða Rússland í ringulreið

Maður sem boðið hefur Vladimír Pútín byrginn varar við því að Rússland stefni í óefni. Hann hefur verið boðaður fyrir dóm fyrir að „sýna tákn öfga­stefnu“ þegar hann birti mynd af látnum stjórnar­andstæðingi.

Bíður þess að vera handtekinn
Bíður þess að vera hand­tek­inn Rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Boris Nadezhdin ræðir við frétta­menn AFP í bænum Dol­gopru­dny, skammt frá Moskvu. Mynd: AFP

Í bæ rétt fyrir utan Moskvu, þar sem hann rekur kosninga­baráttu sína gegn stríðinu, eyddi Boris Nadezhdin vikunni í að íhuga næstu skref á meðan yfirvöld teygðu arm sinn að honum: að flýja Rússland eða hætta á fangelsis­vist.

Að lokum tóku yfirvöld ákvörðunina fyrir hann og bönnuðu honum að fara úr landi degi áður en hann átti að koma fyrir dóm.

Nadezhdin, 63 ára, vonaðist til að bjóða sig fram sem óháður fram­bjóðandi í þing­kosningunum í september með það að stefnu­máli að binda enda á rúmlega fjögurra ára stríð Moskvu við Úkraínu – sem hefur fylgt gríðarleg ritskoðun og kúgun í Rússlandi.

En hann var hand­tekinn á mánudag og á nú yfir höfði sér lang­dregin réttarhöld sem gætu endað með fangelsis­dómi.

Hann varð þekktur árið 2024 þegar hann reyndi að bjóða sig fram gegn Vladímír Pútín forseta í forseta­kosningum og rúmum tveimur árum síðar dregur …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rússland Pútíns

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár