Friðarsinni dæmdur fyrir að „grafa undan“ hernaði

Lev Shlos­berg er enn einn stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn sem tek­inn er úr umferð í Rúss­landi Pútíns.

Friðarsinni dæmdur fyrir að „grafa undan“ hernaði
Fyrir dóm­inn Rúss­neski stjórn­ar­and­stöðupóli­tíkus­inn Lev Shlos­berg við hlið eig­in­konu sinnar Zhönnu Shlos­berg-Kozlovich, þar sem hann sækir borg­ar­dóms­þing í Pskov í norð­vest­ur­hluta Rúss­lands í dag, áður en hann var dæmdur í 11 ára fang­elsi fyrir gagn­rýni sína á stríð Rúss­lands gegn Úkraínu. Mynd: AFP

Rúss­neskur dóm­stóll dæmdi í dag þekktan stjórn­ar­and­stæð­ing, Lev Shlos­berg, í 11 ára fang­elsi fyrir gagn­rýni hans á inn­rás Moskvu í Úkraínu.

Shlos­berg, sem er 63 ára gam­all, er einn fárra and­stæð­inga stjórn­ar­innar í Kreml sem var enn í Rúss­landi eftir að stjórn­völd hófu umfangs­miklar aðgerðir gegn and­ófs­mönnum í kjöl­far inn­rás­ar­innar í Úkraínu árið 2022.

Dóm­stóll­inn í Pskov í norð­vest­ur­hluta Rúss­lands sak­felldi vara­for­mann Yabloko-flokks­ins fyrir „opin­berar aðgerðir sem miða að því að grafa undan notkun her­sveita Rúss­neska sam­bands­rík­is­ins“ og dæmdi hann í „11 ára og eins mán­aðar fang­elsi“.

Þegar dóm­ar­inn spurði Shlos­berg hvort hann skildi dóm­inn sagði hann: „Ég vor­kenni yður, hátt­virti dóm­ari, þér verðið að lifa með þessu.“

Leið­togar Yabloko, Nikolay Rybakov og Grigory Yavl­insky, köll­uðu dóm­inn „harm­leik hnign­unar nútíma rúss­nesks rétt­ar­kerfis“ og sögðu að flokk­ur­inn myndi beita öllum lög­legum leiðum til að binda enda á sak­sókn­ina gegn Shlos­berg.

Í síð­ustu viku var Yabloko, …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Mesti hálfviti í heimi er sá sem fylgir mesta hálfvita í heimi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rússland Pútíns

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár