Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra

„Margt hefur áunn­ist í orku­málum,“ sagði Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra eftir þing­lok í júní. Virkj­ana­fram­kvæmdir, velti­hringrásin AMOC, hafið og lofts­lags­vendi­punktar hafa verið meðal verk­efna ráð­herra und­an­farið. Heim­ildin fór yfir störf Jóhanns Páls síð­ustu tutt­ugu mán­uði.

<span>Veltihringrás og virkjanir:</span> Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra
Jóhann Páll Jóhanns­son Hefur feng­ist við ýmis mál­efni í emb­ætti sínu. Mynd: Golli

„Fyrsta verk­efni er að tryggja for­gang almenn­ings þegar kemur að raf­orku á tímum umfram­eft­ir­spurnar í kerf­inu,“ sagði Jóhann Páll Jóhanns­son spurður út í áherslur sínar sem nýr umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra fyrir utan Bessa­staði 21. des­em­ber 2024. Daginn sem rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur tók við. „Á að virkja meira?“ spurði einn blaða­mann­anna. „Það verður virkjað meira en það verður líka gætt að nátt­úru­vernd­inni,“ svar­aði nýi ráð­herr­ann.

Hann var þá inntur eftir svari varð­andi lofts­lags­málin en Ísland hafði ekki verið á áætlun hvað varðar mark­mið sín um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. „Það verður að taka lofts­lags­málin miklu fast­ari tökum,“ svar­aði Jóhann Páll og gekk á fund for­seta Íslands. 

„Það verður virkjað meira en það verður líka gætt að nátt­úru­vernd­inni

Áherslur Jóhanns Páls í við­tali við blaða­menn þennan dag má segja að hafi hald­ist þær sömu. Virkj­ana­fram­kvæmdir, velti­hringrásin AMOC, hafið og lofts­lags­vendi­punktar eru meðal mál­efna …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið undanfarið ár