Óttast stefnubreytingu hjá DR

Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sjón­varps­þátta hjá Danska sjón­varp­inu, DR, ótt­ast stefnu­breyt­ingu und­ir stjórn nýs yf­ir­manns. Minni áhersla verði lögð á gerð vand­aðra leik­inna þáttaraða, sem hafa ver­ið ein helsta skraut­fjöð­ur DR mörg und­an­far­in ár og skap­að mikl­ar tekj­ur.

Fyrir ekki ýkja mörgum árum voru tiltölulega fáir utan hinna norrænu landsteina sem þekktu til danskra sjónvarpsþátta, þó með einni undantekningu: Matador. Flestir sem lesa þessar línur kannast ugglaust við þennan vinsæla myndaflokk sem gerður var á árunum 1978 til 1981 undir stjórn Eriks Balling, aðalhandritshöfundur var Lise Nørgaard. Þættirnir, sem Nordisk film framleiddi fyrir Danska sjónvarpið, urðu samtals 24, hver um sig klukkutíma langur og í leikarahópnum var valinn maður í hverju rúmi. Engir sjónvarpsþættir hafa náð viðlíka vinsældum í heimalandinu. Öll þáttaröðin hefur margoft verið endursýnd í danska sjónvarpinu og fær ætíð mikið áhorf, en  þættirnir hafa verið sýndir í 20 löndum. Þess má geta að þeir voru sýndir á ástralskri sjónvarpsstöð eftir að Mary drottning (þá krónprinsessa), sem fæddist og ólst upp í Tasmaníu, sagðist hafa horft á Matador þegar hún var að læra dönsku.   

Þessi velgengni Matador utan Danmerkur er undantekning, að því er varðar sjónvarpsþætti. Danir höfðu gert sjónvarpsmyndaflokka sem notið höfðu vinsælda í heimalandinu, til dæmis Huset på Christianshavn og En by i provinsen en sögusviðið alltof danskt til að öðlast vinsældir í öðrum löndum. Danir höfðu  sömuleiðis gert margar kvikmyndir, allt frá upphafi kvikmyndasögunnar, en lengi vel voru þær fyrst og fremst til heimabrúks ef svo mætti segja. Þegar kom fram á níunda áratug síðustu aldar rann upp blómaskeið í danskri kvikmyndagerð. Meðal þeirra mynda sem vöktu athygli á alþjóðavettvangi og unnu til verðlauna má nefna Babettes gæstebud, Pelle Erobreren, Nattevagten, Den gode vilje og Breaking the waves. En kvikmyndirnar eru önnur ella en sjónvarpsþættir.  

Bryggeren var upphafið

Eins og áður var nefnt var níundi áratugur síðustu aldar upphaf blómaskeiðs danskra kvikmynda. Í dönskum bókum um kvikmyndir og sjónvarpsþætti má lesa að kvikmyndavelgengnin hafi á vissan hátt rutt brautina fyrir danska sjónvarpsþáttagerð. Danskir sjónvarpssagnfræðingar nefna gjarnan myndaflokkinn Bryggeren (frumsýndur 1996) sem eins konar upphaf þeirrar bylgju danskrar sjónvarpsþáttagerðar sem enn stendur. Bryggeren fjallaði um J.C. Jacobsen, stofnanda Carlsberg. Þættirnir, sem voru 12 talsins, nutu mikilla vinsælda og hlutu góða dóma gagnrýnenda. Þetta var fjárfrekt verkefni en samtals komu um 4.300 manns að gerð þáttanna, leikararnir voru 280 og aukaleikarar um 4 þúsund. Nú voru hjólin byrjuð að snúast, ári síðar, 1997, kom myndaflokkurinn Taxa og Edderkoppen og Rejseholdet árið 2000. Þessir þættir voru allir seldir til margra landa. Á næstu árum komu þáttaraðirnar Nikolaj og Julie, Krøniken, Ørnen, Anna Phil og fleiri mætti nefna. Rejseholdet, Ørnen og Nikolaj og Julie hrepptu hin eftirsóttu Emmy-verðlaun. Allir þessir sjónvarpsmyndaflokkar höluðu inn miklar tekjur, Danir kunnu orðið vel til verka.

Forbrydelsen og lopapeysulögreglan

Á sunnudagskvöldi í byrjun janúar 2007 birtist á skjánum lögreglukonan Sarah Lund. Hún var ekki íklædd hefðbundnum lögreglubúningi, heldur lopapeysu. Lopapeysan vakti mikla athygli og munstrið ýmist sagt íslenskt eða færeyskt. Sarah Lund var aðalpersónan í myndaflokknum Forbrydelsen (Glæpurinn). Þættirnir í fyrstu syrpunni voru 20, hver um sig tæplega klukkutíma langur. Þættirnir nutu mikilla vinsælda og sjónvarpsstöðvar víða um lönd kepptust um að tryggja sér sýningarréttinn. Síðar voru gerðar tvær þáttaraðir til viðbótar og þættirnir urðu samtals 40. Sá síðasti sýndur í danska sjónvarpinu í nóvember 2012. Breska ríkisútvarpið, BBC, sýndi þættina textaða í stað þess að láta enska leikara mæla fyrir munn dönsku leikaranna eins og algengast var. Nefna má að Sofie Gråbøl, sem leikur aðalhlutverkið í þáttunum, hefur enga formlega leiklistarmenntun. Í Bandaríkjunum var gerð þáttaröðin The Killing, eftir sama handriti og Forbrydelsen, sú bandaríska stóð, að mati gagnrýnenda, þeirri dönsku langt að baki.

Nú fóru hjólin að snúast

Með velgengni Forbrydelsen (þættirnir hafa verið sýndir í 130 löndum) fékk dönsk sjónvarpsþáttagerð vind í seglin, og peninga í kassann og Danir kunnu sannarlega að hamra járnið meðan það var heitt. Næsta stórverkefni var þáttaröðin Borgen (Höllin) sem fjallar um stjórnmálin í þinghúsinu Kristjánsborg, sem Danir kalla Borgen. Þættirnir, sá fyrsti sýndur haustið 2010, urðu samtals 30 og þeir hafa verið sýndir víða um heim. Broen (Brúin) kom á skjáinn haustið 2011, Broen, á sænsku Bron, var samvinnuverkefni DR, sænska sjónvarpsins SVT og þess þýska. Brúarþættirnir, sem fjalla í stuttu máli um sakamál og störf lögreglunnar, urðu samtals 38 og sjónvarpsstöðvar í 174 löndum tryggðu sér sýningarréttinn fyrir fram og fleiri verkefni mætti nefna. Haustið  2014 hófust sýningar á þáttaröð sem bar heitið 1864. Þættirnir byggðu á raunverulegum atburðum, Slésvíkurstríðinu svonefnda árið 1864 þegar Danir lutu í lægra haldi fyrir Prússum og Austurríkismönnum og töpuðu stórum hluta ríkisins. Þættirnir voru þeir dýrustu sem DR hefur nokkru sinni ráðist í að gera en stjórnendur DR voru vissir um að fá miklar tekjur á móti því fjölmargar erlendar sjónvarpsstöðvar höfðu fyrir fram keypt sýningarréttinn. 

Gabold og galdurinn

Þegar rætt er um vinsældir og velgengni danskra sjónvarpsþátta ber nafn eins manns hæst. Sá er þó hvorki leikari, leikstjóri né handritshöfundur. Þessi maður er Ingolf Gabold (1942–2025) sem var yfirmaður leiklistardeildar DR á árunum 1999 til 2012.

Skrifari þessa pistils átti þess að kost að hitta Ingolf Gabold skömmu áður en hann lét af störfum hjá DR. Spurningunni um ástæður þess að danskir sjónvarpsþættir hefðu gert það svo gott svaraði Ingolf Gabold í löngu máli, í fyrsta lagi þurfi fjármagn og þá dugi ekki að horfa til skamms tíma heldur ára og jafnvel áratug. Í öðru lagi þurfi að leggja mikla vinnu í að þjálfa handritshöfunda. Nauðsynlegt sé að til hliðar við aðalatburðarásina séu hliðarsögur, þetta segir Ingolf Gabold mikilvægt. Svo er það leikaravalið og tæknihliðin, færni á þeim sviðum verður ekki hrist fram úr erminni. „Í stuttu máli er galdurinn peningar, þolinmæði og markviss stefna,“ sagði Ingolf Gabold. Í áðurnefndu viðtali lagði Ingolf Gabold áherslu á að þótt hann hafi verið svo heppinn að vera yfirmaður leiklistardeildarinnar um 13 ára skeið væri það ekki eins manns verk að byggja upp og viðhalda gæðum og skapa gott orðspor. Hann sagði mjög mikilvægt að æðsti yfirmaður DR, útvarpsstjórinn sjálfur, hefði skilning á starfsemi leiklistardeildarinnar og í þeim efnum hafi hann verið heppinn.  

Listafólki líst ekki á blikuna

Í byrjun ágúst á síðasta ári tók Bjarne Corydon við starfi útvarpsstjóra DR af Marie Rørbye Rønn, en hún hafði gegnt starfinu frá árinu 2010. Nýi útvarpsstjórinn var áður ritstjóri viðskiptablaðsins Børsen og hann var fjármálaráðherra í stjórn Helle Thorning-Schmidt á árunum 2011 til 2015.

Í janúarbyrjun á þessu ári kynnti Bjarne Corydon stefnumið DR fram til ársins 2030. Hann lagði áherslu á að DR væri sá fjölmiðill sem Danir bæru mest traust til og vitnaði í kannanir þar að lútandi. DR hefði miklum skyldum að gegna og mikilvægt væri að stofnunin viki aldrei af þeirri braut. Ræða útvarpsstjórans var löng og ítarleg en það var þó það sem hann ekki nefndi sem vakti mesta athygli danskra leikara og annarra þeirra sem starfað hafa við leiklistardeild DR undanfarin ár. Það sem Bjarne Corydon nefndi ekki voru orðin tv-drama, tv-serier og fiktion. Við ræðu útvarpsstjórans kviknuðu mörg viðvörunarljós (det blinkede rødt)  og fyrir skömmu sendu rúmlega eitt hundrað leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, klipparar og fleiri frá sér það sem þeir kalla Fælles opråb (viðvörun eða ákall) þar sem fram kom ótti við að nýi útvarpsstjórinn ætli sér að víkja til hliðar því sem hefur verið helsta skrautfjöður danska sjónvarpsins um árabil, leiknu vönduðu sjónvarpsefni. Þótt sjónvarpsstöðin TV2 (sem eins og DR er í eigu ríkisins) og fleiri framleiði prýðilegt sjónvarpsefni sé DR burðarásinn í framleiðslu vandaðs efnis og vonandi verði svo áfram.

Bjarne Corydon hefur svarað því til að þótt áðurnefnd orð, drama og fiktion hafi ekki komið fyrir í ræðu hans skipi leikið vandað sjónvarpsefni hér eftir sem hingað til ríkan sess í starfsemi DR.    

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

Tromp á hendi Trumps?
Borgþór Arngrímsson
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­ur og lé­leg laun hafa orð­ið til þess að færri sækj­ast eft­ir her­mennsk­unni. Ný­lega varð danski flot­inn að af­lýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skip­ið. Slík­ar frétt­ir skaða ímynd flot­ans og geta ver­ið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár