Valdatóm í Íran: „Flestir eru dauðir“

Banda­ríkin og Ísrael hafa drepið flestalla sem búist var að tæki við valda­taumunum í Íran, segir Donald Trump for­seti. Óttast er að upp­lausn taki við í land­inu.

Valdatóm í Íran: „Flestir eru dauðir“
Donad Trump Fundaði með kansl­ara Þýska­lands í dag og tjáði sig umbúða­laust um dráp á leið­togum í Íran. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í dag að í tveimur árás­ar­bylgjum Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran hefðu menn fallið sem hann hafði litið á sem mögu­lega nýja leið­toga.

„Flestir þeirra sem við höfðum í huga eru dauðir,“ sagði Trump þegar hann hitti Friedrich Merz, kansl­ara Þýska­lands, í Hvíta hús­inu.

„Nú höfum við annan hóp. Þeir gætu líka verið dauðir, sam­kvæmt fréttum.“

Drápu sérfræðingaráðið

Fram kom í dag að sér­fræð­inga­ráð klerka­stjórn­ar­innar hefði verið sprengt upp í loft­árás Ísraela í dag, þar sem það var sam­an­komið í bygg­ingu í heilögu borg­inni Qom, suður af Teheran. Ráðið, sem telur tæp­lega 90 manns, er sagt hafa verið að velja nýjan leið­toga Írans.

Banda­ríkja­for­seti hefur verið gagn­rýndur fyrir að hafa enga aug­ljósa áætlun fyrir Íran eftir átökin og hann við­ur­kenndi að hann væri ekki viss um hvernig ástandið myndi þró­ast að þeim loknum. 

Mörg þjóð­ar­brot eru í Íran. Fjöl­menn­astir eru Persar, sem mynda um 60% mann­fjöld­ans. Þá eru 10% íbú­anna Kúrdar og um fimmt­ungur fólk af tyr­kís­kum upp­runa.

„Ég geri ráð fyrir að versta sviðs­myndin væri sú að við gerum þetta og svo tekur ein­hver við sem er jafn slæmur og sá fyrri, ekki satt?“ sagði Trump og vís­aði til Aya­tollah Ali Khamenei, æðsta leið­toga Írans, sem var drep­inn í loft­árásum á fyrsta degi árás­ar­innar. „Það gæti gerst. Við viljum ekki að það ger­ist.“

Trump sagði mót­mæl­endum í Íran að bíða með allar stórar aðgerðir þar til ástandið hefði náð jafn­vægi. Hann hefur einnig notað nýlegar mann­skæðar aðgerðir gegn mót­mælum í Íran sem rétt­læt­ingu fyrir stríð­inu.

„Við höfum sagt, ekki gera það ennþá. Ef þið ætlið að fara út og mót­mæla, ekki gera það strax,“ bætti Trump við.

Þýðir ekki endalok kerfis

Dauði Ali Khamenei, æðsta leið­toga Írans, er „sögu­lega mik­il­vægur“ en mun ekki „sjálf­krafa“ leiða til falls íranska stjórn­kerf­is­ins, sagði ekkja síð­asta Íranskeis­ara í við­tali við frétta­stofu AFP í dag.

„Fráfall manns – hversu mik­il­vægur sem hann kann að vera fyrir valda­bygg­ing­una – þýðir ekki sjálf­krafa enda­lok kerfis,“ sagði Farah Pahlavi, þremur dögum eftir að Khamenei féll í árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran.

Árás­irnar á Íran hafa valdið upp­námi í Mið-Aust­ur­löndum og vakið upp stórar spurn­ingar um örlög íslamska lýð­veld­is­ins í kjöl­far dauða æðsta leið­tog­ans og ann­arra hátt­settra manna.

Pahlavi, nú 87 ára, hvatti alþjóða­sam­fé­lagið til að virða full­veldi Írans og aðstoða þjóð­ina við að fylgja eigin „örlögum“.

„Það sem verður afger­andi,“ sagði hún, var „hæfni írönsku þjóð­ar­innar til að sam­ein­ast um frið­sam­leg, skipu­leg og full­valda umskipti yfir í ríki sem lýtur lögum og reglu“.

Hún bætti við að sonur hennar, Reza Pahlavi, sem hefur boðið sig fram sem val­kost ef klerka­veldið fellur, „sé að und­ir­búa“ slík umskipti.

Reza Pahlavi, sem býr í Banda­ríkj­unum, komst í sviðs­ljósið á heims­vísu í mót­mælum sem náðu hámarki í jan­úar, þar sem margir mót­mæl­endur sungu slag­orð sem voru hlið­holl þessum syni fyrr­ver­andi keis­ara.

Í færslu á X í dag kall­aði Pahlavi, sem er 65 ára, eftir þjóð­ar­sam­stöðu frá írönskum þjóð­ern­is­minni­hlutum – sem sagðir eru sæta mis­munun í núver­andi kerfi – og virt­ist hvetja þá til að nota ekki núver­andi átök til að þrýsta á um aðskilnað.

Styðji fólkið en ekki utanríkishagsmuni

Móðir hans, sem hefur búið í útlegð í París síðan hún var hrakin frá Íran með eig­in­manni sínum í bylt­ing­unni 1979, hvatti alþjóða­sam­fé­lagið til að virða rétt írönsku þjóð­ar­innar til að velja sína eigin leið fram á við.

„Það sem ég vil er að alþjóða­sam­fé­lagið styðji skýrt grund­vall­ar­rétt­indi Írana: rétt­inn til að velja leið­toga sína, til að tjá sig frjáls­lega, til að lifa með reisn og í vel­megun,“ sagði hún.

„Stuðn­ing­ur­inn verður að bein­ast að fólk­inu, ekki að geopóli­tískum útreikn­ingum.“

Pahlavi hvatti einnig írönsk yfir­völd „til að sýna still­ingu og forð­ast blóðsút­hell­ingar“.

Óeirðir í Teheran í jan­úar leiddu til fjöldamorðs af hálfu írönsku stjórn­ar­innar, þar sem mann­rétt­inda­sam­tökin Human Rights Activists News Agency (HRANA) í Banda­ríkj­unum skráðu yfir 7.000 dauðs­föll, aðal­lega mót­mæl­enda, en vör­uðu við því að heild­ar­talan væri lík­lega hærri.

Auk þess hafa yfir 53.000 manns verið hand­teknir síðan í jan­úar.

Farah Pahlavi sagði við AFP í jan­úar að „engin leið væri til baka“ eftir nýj­ustu mót­mæla­öld­una og bætti við að „sigur þeirra verði ekki aðeins sigur lands míns, heldur einnig sigur friðar, öryggis og stöð­ug­leika í heim­inum“.

Fyrr­ver­andi keis­ara­ynjan var hrakin í útlegð með eig­in­manni sínum, keis­ar­ans Mohammad Reza Pahlavi heit­ins, í jan­úar 1979 í almennri bylt­ingu sem steypti kon­ungs­veld­inu af stóli og kom íslamska klerka­veld­inu til valda. Áður hafði Pahlavi steypt af stóli for­sæt­is­ráð­herra Írans, Mohammad Mosa­dd­egh, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna og Breta, eftir að Mosa­dd­egh ógn­aði ítökum vest­ur­veld­anna í íranska olíu­iðn­að­inum. Hann hugð­ist þjóð­nýta olíu­fram­leiðsl­una, eftir að erlendu aðil­arnir höfn­uðu að gefa upp­lýs­ingar til að stað­festa rétta greiðslu auð­lind­arentu áður en hann var fang­els­aður 1953 og lifði það sem eftir var í stofu­fang­elsi.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    Sumt af þessari sögu Írans er það sem ég myndi kalla „status quo“-gildruna, sem ég held að skýri líka mikið af Bandaríkjunum. Gildran er sú að þegar hlutirnir ganga ekki vel, þá kenna menn þeim sem eru við völd um. Í Íran yfirgaf Mohammed Reza Pahlavi (á sjötta áratugnum) dreifbýlið með nútímavæðingaráætluninni, svo þeir skiptu honum út fyrir klerk. Í Bandaríkjunum voru ákveðnir einstaklingar óánægðir með Obama/Biden og vildu bara losna við þá. Í báðum tilvikum fór hlutirnir úr slæmu í verra. Endalaus endurtekning - frekar niðurdrepandi.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Alltaf kemur Mammon sterklega við sögu í öllum viðbjóði sögunnar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið undanfarið ár