Bandaríkjaforseti hótar að „sprengja allt í tætlur“ í öðru ríki

Donald Trump grípur inn í við­ræður Írans og Óman vegna skipa­sigl­inga um Hor­mússund, sem hann sagði Banda­ríkin þó stjórna. Trump hefur þegar gert árásir í sjö löndum.

Bandaríkjaforseti hótar að „sprengja allt í tætlur“ í öðru ríki
Í stríðs­ham Trump Banda­ríkja­for­seti veifar til fjöl­miðla­fólks eftir lend­ingu við Hvíta húsið í gær. Hann varði helg­inni í golf­klúbbi sínum í New Jersey. Mynd: AFP

Donald Trump for­seti hót­aði á mánu­dag að varpa sprengjum á Óman ef landið „stæði í vegi fyrir“ sam­komu­lagi Banda­ríkj­anna við Íran um Hor­mússund og kall­aði eftir því að Íran gæfi sig fram.

„Ef Óman stendur í vegi fyrir okkur, þá sprengjum við allt í tætlur hjá þeim,“ sagði Trump við Trey Yingst, blaða­mann Fox News, og vís­aði þar til yfir­stand­andi við­ræðna milli Ómans og Írans um yfir­ráð yfir sund­inu, á sama tíma og banda­rísk stjórn­völd reka sínar eigin við­ræður.

Emb­ætt­is­menn frá Íran og Óman hafa átt í við­ræðum í margar vikur um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag sigl­inga um skipa­leið­ina og utan­rík­is­ráðu­neytið í Teheran sagði fyrr á mánu­dag að löndin tvö ynnu að sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu.

Trump hefur hins vegar ítrekað haldið því fram að sundið – sem Teheran lok­aði í raun í upp­hafi stríðs­ins í Mið-Aust­ur­löndum þann 28. febr­úar – sé undir stjórn Banda­ríkj­anna þrátt fyrir að umferð sé enn tak­mörkuð.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár