Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu

Vís­inda­menn rann­saka rústir borgar sem hefur legið undir vatni í Kirgistan um aldir. Lítið er vitað um sögu hennar eða hvers vegna hún fór á kaf, en rann­sókn­irnar gætu aukið skiln­ing á tengslum aust­urs og vest­urs á mið­öldum.

Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Leir og bein Maxim Mens­hikov, forn­leifa­fræð­ingur og leið­ang­urs­stjóri, og sam­starfs­fólk hans skoðar muni sem kaf­arar hafa fundið á rann­sókn­ar­svæði á botni Issyk-Kul-vatns, nærri byggð­inni Toru-Aygyr í Kirgistan. Dýrabein og leir­munir eru meðal þess sem þau hafa fundið. Mynd: VYACHESLAV OSELEDKO / AFP

Sólin var rétt komin upp, en sjálf­boða­lið­inn og kaf­ar­inn Elizaveta Bodrova var þegar óþreyju­full að kafa í kalt vatnið í Issyk-Kul, þar sem rústir áður blóm­legrar borgar hafa legið á kafi um aldir.

Borgin stóð við forna versl­un­ar­leið milli Kína og Evrópu. Lítið er vitað um sögu hennar eða hvernig það atvik­að­ist að hún fór undir yfir­borð stærsta stöðu­vatns Kirgist­ans fyrir um 800 árum, að því er talið er.

Ásamt um tutt­ugu vís­inda­mönnum vinnur Bodrova að því að afhjúpa for­tíð borg­ar­innar. Nið­ur­stöð­urnar gætu mótað skiln­ing okkar á sögu Mið-Asíu og víðar. 

„Skyggnið er ekki mjög gott í dag, en ég vona að við getum samt fundið mörk byggð­ar­innar,“ sagði Bodrova, sem er 42 ára, bros­andi við AFP áður en hún stökk úr vél­bát og kaf­aði niður í djúpið.

Verk­efnið hófst árið 2024 og er fjár­magnað af rúss­nesku vís­inda­aka­dem­í­unni. Þetta er fyrsta umfangs­mikla rann­sóknin á staðnum …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár