Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir hafa sett á fót smáforritið Lifetrack, sem gerir notendum kleift að fylgjast með næringu sinni með lágmarks fyrirhöfn. Þau hjón hafa í mörg ár tileinkað sér mataræði sem byggir á réttu hlutfalli næringar og hafa síðastliðin ár aðstoðað aðra við að bæta sinn lífsstíl.
Ingi segir að þau hafi fundið ákall um einfalt smáforrit á íslensku, en nóg er af erlendum forritum sem snúast um þetta. Hann segir að þau hafi byggt á sinni reynslu, en þau eru bæði markþjálfar og heilsufrumkvöðlar, auk þess sem þau hafa fengið upplýsingar og ráðgjöf frá íþróttafræðingum og sálfræðingum.
„Ég og konan mín ákváðum að fara í samstarf við Stefnu hugbúnaðarhús hér á Akureyri við hönnunina á þessu appi. Þetta snýst sem sagt um að skrásetja mat og appið reiknar svo út orkuþörf fyrir hvern og einn út frá þeim forsendum og aðstoðar fólk við að …




















































Athugasemdir