Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ

Kostnaður vegna viðgerða og viðhalds á tveimur grunn­skólum í Reykja­nesbæ er kominn í tíu milljarða. Fyrrum meirihluti gagnrýnir nýja bæjar­stjórn fyrir að fara 300 milljónir yfir áætlun á einum mánuði.

Harðar deilur
Harðar deilur Nýr meiri­hluti og sá gamli takast harka­lega á fram­úr­keyrslu vegna dýrra við­halds­fram­kvæmda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Oddvitar Samfylkingarinnar og Framsóknar­flokksins gagnrýna nýjan meirihluta í Reykja­nesbæ harðlega fyrir að hafa farið tæplega 300 milljónum yfir áætlun á einum mánuði í tengslum við viðgerðir á tveimur grunn­skólum og leik­skólum. Þá var enginn viðauki við kostnaðinn samþykktur á vettvangi sveitar­stjórnarinnar. 

Bæjar­stjóri Reykja­nesbæjar, Vilhjálmur Árnason, svarar gagn­rýninni og má segja að þar mætist stálin stinn. „Þetta eru stærstu grjót úr glerhúsi sem hefur verið kastað,“ segir hann og bendir á að framkvæmdirnar séu þegar orðnar mjög dýrar og mun dýrari en þær þurftu að verða, sem hann rekur til skipulags­leysis hjá fyrri meirihluta.

Tíu milljarðar

Ráðist var í viðgerðir og viðhald á Myllu­bakkaskóla og Holta­skóla fyrir um fjórum árum. Samfylkingin myndaði þá meirihluta með Framsóknar­flokki en kostnaður við framkvæmdina er nú kominn upp í tíu milljarða króna. Guðný Birna, oddviti Samfylkingarinnar, segir að ákveðið hafi verið að forgangs­raða fjármagni eftir fremsta megni til framkvæmd­anna á síðasta kjör­tímabili …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár