Grófu upp úrgang hjá Skotfélaginu

Forsvars­menn Skot­íþrótta­félags Hafnar­fjarðar neituðu uppruna­lega að kannast við úrganginn. Umhverfis- og orku­stofnun hefur verið beðin um að koma að málinu.

Urðuðu og brenndu úrgang á svæðinu
Urðuðu og brenndu úrgang á svæð­inu Æfing­ar­svæði skot­í­þrótt­ar­fé­lags Hafn­ar­fjarðar Mynd: Golli

Í apríl greindi Heimildin frá því að umtals­vert magn af úrgangi hafi verið grafinn ólöglega á íþrótta­svæði Skot­íþrótta­félags Hafnar­fjarðar. Umræddur úrgangur var grafinn í manir sem reistar voru til að minnka hljóð­mengun frá skot­svæðinu. Nú hefur heilbrigðis­eftirlitið lokið skoðun sinni og skilaði af sér eftirlits­skýrslu um málið sem Heimildin hefur undir höndum. Heilbrigðis­eftirlitið mætti á svæðið vopnað gröfu til að grafa í hljóðmönina sem félagið reisti. Við skoðun eftirlitsins kom í ljós gríðar­lega mikið magn af byggingar­úrgangi ásamt dekkjum, raftækja­úrgangi og fleira sem hefði verið urðað á svæðinu ólöglega.

„Manir í kringum skotsvæði hafa verið hækkaðar til að koma í veg fyrir hljóð­mengun frá skot­svæðinu. Í eftirlitinu kom í ljós að úrgangur hefur verið urðaður í hljóðmön. Grafið var í hljóðmönina með gröfu og kom þá í ljós byggingar­úrgangur, rörbútar, timbur, hellubrot, kaplar, bíldekk og fleiri hlutir sem ekki á að urða með þessum hætti,“ segir í skýrslunni. 

…
Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár