Helstu nöfnin í nýju Epstein-skjölunum

Millj­arða­mær­ing­ar og stjórn­mála­menn koma fyr­ir í nýj­um skjala­skammti frá dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna. Gögn­in ganga gegn fyrri yf­ir­lýs­ing­um Elons Musk. Ep­stein virð­ist hafa ver­ið vel kunn­ug­ur fyrr­ver­andi for­setafrú Ís­lands.

Helstu nöfnin í nýju Epstein-skjölunum
Epstein og Maxwell Kærasta Jeffreys Epstein, Ghislaine Maxwell, er sú eina sem situr í fangelsi vegna aðildar að kynferðisbrotum hans. Hún hefur afmarkaða tengingu við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta, en hann virðist hafa þekkt Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, vel.

Meðal þekktra nafna sem koma fyrir í nýjum skjalaskammti frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu um látna, dæmda kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, eru milljarðamæringar og stjórnmálamenn. Þar á meðal eru: Donald Trump forseti, Bill Gates, meðstofnandi Microsoft, Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, og breski milljarðamæringurinn Richard Branson.

Hér eru helstu atriðin um ummæli um fræga fólkið, en engin staðfest lögbrot eru tengd þeim.

Dorrit Moussaieff

Fyrrverandi forsetafrú Íslands virðist hafa verið ágætlega kunnug Jeffrey Epstein. Að minnsta kosti nægilega vel til þess að í tölvuósti til Epsteins er vísað eingöngu til fornafns Dorritar þegar honum er sagt að „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi“ hafi verið stödd á St. Regis Aspen Resort hótelinu í Colorado í Bandaríkjunum þar sem sendandinn, rithöfundurinn Deepak Chopra, segist munu leiða hugleiðslu fyrir hóp fólks. Dorrit hefur sagt frá því að hún hafi búið nálægt Epstein í London milli 1978 og 1983. Ekkert bendir til þess að eiginmaður Dorritar, forsetinn …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár