Húsleit á heimili Jaglands

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs með stöðu sak­born­ings í spill­ingar­rann­sókn vegna Epstein-skjal­anna.

Húsleit á heimili Jaglands
Thor­björn Jagland Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs úr Verka­manna­flokknum var aðal­fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­ráðs­ins. Hér á mynd frá 2012. Mynd: Shutterstock

Norska lög­reglan gerði hús­leit á eignum Thor­bjørns Jagland, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í dag, að sögn lög­manns hans, í kjöl­far þess að rann­sókn hófst á spill­ingu vegna sam­skipta Jaglands við banda­ríska kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein.

Jagland er til rann­sóknar eftir að skjöl sem banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið birti í jan­úar gáfu til kynna að Jagland og/eða fjöl­skylda hans hafi dvalið eða farið í frí með Epstein á árunum 2011 til 2018, þegar Jagland var for­maður Nóbels­nefnd­ar­innar sem veitir frið­ar­verð­launin og var einnig fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­ráðs­ins.

Lögregla frá sér­hæfðri efna­hags­brota­deild, Økokrim, „er nú að fram­kvæma hús­leit á heim­ili Thor­bjørns Jagland og í frí­stunda­hús­næði hans“, sagði Anders Brosveet, lög­maður Jaglands, í yfir­lýs­ingu.

Økokrim hefur til­kynnt Evr­ópu­ráð­inu að verið sé að rann­saka hvort gjafir, ferða­kostn­aður, einka­frí og lán sem nefnd eru í Epstein-skjöl­unum geti talist mútur sem Jagland þáði frá Jeffrey Epstein í tengslum við stöðu sína sem aðal­rit­ari.

Norski frétta­mið­ill­inn VG hefur eftir Pål K. Lønseth, yfir­manni Økokrim, að aðgerð Evr­ópu­ráðs­ins hafi opnað á rann­sókn­ina.

„Hús­leit­irnar tengj­ast yfir­stand­andi rann­sókn á Jagland, sem Økokrim gat haldið áfram eftir að Evr­ópu­ráðið aflétti frið­helgi hans í gær. Í kjöl­far hús­leit­anna er Jagland nú grun­aður um stór­fellda spill­ingu. Økokrim mun yfir­heyra Jagland,“ segir Lønseth í yfir­lýs­ingu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár