Konunglega ævintýrið sem breyttist í martröð

Mette-Marit varð óvænt prinsessa eftir líf­leg ung­dómsár. Nú hefur norska þjóðin snúið baki við henni eftir marka­laus sam­skipti við Jeffrey Epstein og hand­töku sonar hennar.

Konunglega ævintýrið sem breyttist í martröð

Líf Mette-Marit krón­prinsessu Noregs var eitt sinn eins og ævin­týri, en hefur nú breyst í martröð vegna nauðg­un­ar­á­kæru á hendur syni hennar og vin­áttu hennar við dæmda banda­ríska kyn­ferð­is­af­brota­mann­inn Jeffrey Epstein.

Sagan af ein­stæðu móð­ur­inni af alþýðu­ættum, sem kynnt­ist Hákon krón­prinsi fyrir til­viljun og komst þannig inn í innsta hring kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, vann hug og hjörtu Norð­manna.

En tíð sam­skipti hennar við Epstein, sem komu í ljós eftir birt­ingu nýrra Epstein-skjala og norskir fjöl­miðlar hafa fjallað mikið um, hafa afhjúpað óvænt sam­band sem hefur hneykslað þjóð­ina.

Skýringa beðið

Jonas Gahr Støre for­sæt­is­ráð­herra hefur hvatt Mette-Marit til að útskýra þau fjöl­mörgu tölvu­póst­sam­skipti sem hún og banda­ríski auð­jöf­ur­inn áttu á árunum 2011 til 2014 – meira en ára­tug eftir að hún gift­ist Hákoni.

Epstein, sem ját­aði sig sekan árið 2008 um að hafa keypt kyn­lífs­þjón­ustu af ólög­ráða ein­stak­lingi, svipti sig lífi í fang­elsi árið 2019 þegar hann beið rétt­ar­halda vegna fleiri kyn­ferð­is­brota gegn ólög­ráða ein­stak­lingum.

Álits­gjafar í Noregi hafa dregið í efa að Mette-Marit, 52 ára, eigi að verða drottn­ing. Í skoð­ana­könnun sem TV2 hefur birt sögð­ust 47,6 pró­sent aðspurðra ekki vilja að hún yrði drottn­ing, en aðeins 28,9 pró­sent studdu hana.

Árið 2012, þegar Epstein sagði henni að hann væri í París „í eig­in­konu­leit“, svar­aði hún að franska höf­uð­borgin væri „góð fyrir fram­hjá­hald“ og að „skand­in­av­ískar konur væru betra eig­in­konu­efni“.

Árið 2011, þremur árum eftir fyrsta dóm hans, skrif­aði Mette-Marit til Epsteins að hún hefði „gúgglað“ hann og bætti við „það leit ekki of vel út“ og lauk setn­ing­unni með broskalli.

Árið 2013 dvaldi hún á heim­ili hans í Flórída í fjóra daga.

Greint hefur verið frá því að það hafi verið króat­íski lækn­ir­inn Boris Nikolic sem kynnti hana fyrir Epstein, en hann hafði þá kynnst Mette-Marit á Alþjóða­efna­hags­ráð­stefn­unni í Davos í Sviss. Í sam­skipt­unum kom fram að hún væri „svo­lítið klikkuð“. 

Í síð­ari tölvu­póst­sam­skiptum segir Epstein að Mette-Marit sé „algert flak“, en óljóst er af hvaða til­efni.

Játar dómgreindarleysi

„Ég sýndi af mér dóm­greind­ar­leysi og harma það inni­lega að hafa haft nokkur sam­skipti við Epstein. Þetta er ein­fald­lega vand­ræða­legt,“ sagði Mette-Marit í yfir­lýs­ingu sem kon­ungs­höllin sendi frétta­stofu AFP á laug­ar­dag.

Mannorð prinsessunnar er þannig flekkað á sama tíma og hún horfir upp á rétt­ar­höld yfir 29 ára gömlum syni sínum, sem hún átti úr sam­bandi áður en hún gift­ist krón­prins­inum.

Marius Borg Høiby á að koma fyrir dóm­stól í Ósló á morgun til að svara til saka í 38 ákæru­liðum, þar á meðal fyrir að hafa nauðgað fjórum konum og ráð­ist á fyrr­ver­andi kærustur. Hann á yfir höfði sér allt að 16 ára fang­elsi ef hann verður fund­inn sekur.

Høiby var hand­tek­inn aftur í gær grun­aður um lík­ams­árás, hót­anir með hnífi og brot á nálg­un­ar­banni. Hann var úrskurð­aður í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald.

Prinsessan mun ekki vera við­stödd rétt­ar­höldin þar sem hún hafði skipu­lagt einka­ferð.

Lífleg ungdómsár

Mette-Marit Tjessem Høiby fædd­ist 19. ágúst 1973 í Krist­i­ans­and í suð­ur­hluta Noregs, í „bibl­íu­belt­inu“. Faðir hennar var blaða­maður sem glímdi við áfeng­is­vanda og móðir hennar banka­starfs­maður.

Hún lýsti sjálfri sér eitt sinn sem „sam­visku­samasta ung­lingi í heimi“ þar til hún varð 16 ára og fór til Ástralíu í skipti­nám með skól­anum sínum.

Reynslan þar varð til þess að hún braust úr viðjum og end­ur­skil­greindi sjálfa sig.

Þegar hún sneri aftur til Noregs rak­aði hún af sér hárið, trú­lof­að­ist manni sem kynnti hana fyrir house-tón­list­ar­sen­unni í Ósló – þar sem hún próf­aði hass og e-töflur, sam­kvæmt óop­in­berri ævi­sögu. Hún eign­að­ist Marius 24 ára gömul eftir stutt sam­band við annan mann.

„Upp­reisnin mín á ung­lings­ár­unum var sterk­ari en hjá flestum,“ við­ur­kenndi hún fyrir blaða­mönnum fyrir brúð­kaup sitt og Hákons krón­prins í ágúst 2001.

„Ég var hluti af senu þar sem farið var yfir ... mörg mörk,“ sagði hún.

Heilsubrestur

Mette-Marit hafði kynnst krón­prins­inum tveimur árum áður á tón­list­ar­há­tíð.

Fer­il­skrá hennar var rýr á þeim tíma, en þessi glæsi­lega unga þjón­ustu­stúlka vann hjarta prins­ins. Norska þjóðin, sem sá hlé­dræga fram­komu hennar á opin­berum vett­vangi, horfði fljót­lega fram hjá villtri for­tíð hennar.

Hún er langt frá því að vera eini með­limur norsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sem hefur valdið fjaðrafoki. Haraldur kon­ungur, nú 88 ára, þurfti að heyja harða bar­áttu til að fá að gift­ast konu af „almúga­ættum“.

Mette-Marit og Hákon eiga tvö börn, Ingiríði Alexöndru prinsessu, 22 ára, og Sverri Magnús prins, 20 ára.

En nú eru blikur á lofti yfir fág­uðu yfir­bragði hennar og stöð­ugu brosi.

Árið 2018 greindu kon­ungs­hjónin frá því að Mette-Marit þjáð­ist af sjald­gæfri teg­und lungnatrefj­unar, ólækn­andi sjúk­dómi sem veldur band­vefs­myndun í lungum og mæði.

Sjúk­dóm­ur­inn hefur stundum knúið hana til að draga úr kon­ung­legum skyldum sínum eða afboða sig af við­burðum, og mun lík­lega leiða til þess að hún þurfi að gang­ast undir lungna­ígræðslu ein­hvern tíma.

Þó svo að Mette-Marit sé harð­lega dæmd koma ein­hverjir henni til varnar. Rit­stjóri Netta­visen heldur því þannig fram í leið­ara að allt sem teng­ist Mette-Marit sé nú túlkað á versta veg og að umræðan nálgist norna­veiðar.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alltaf kemur eitthvað uppá alveg sama hvar það erog enginn er undanskilinn með það
    0
  • Andrea Jónsdóttir skrifaði
    ...markalaus samskipti... ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár