Forsetafrúin skýrir tengsl sín við innsta hring Epsteins

Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, var bæði vin­kona sam­verka­konu Jeffreys Epstein og svo auð­manns­ins sem fjár­magn­aði Epstein síð­ustu árin. Dorrit hefur nú svarað spurn­ingum um tengslin.

Forsetafrúin skýrir tengsl sín við innsta hring Epsteins
Gengu út Dorrit Moussaieff segir að hún og for­seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi gengið út úr her­bergi um leið og Jeffrey Epstein birt­ist.

Dorrit Moussaieff, sem var for­seta­frú Íslands árin 2003 til 2016, hefur nú svarað spurn­ingum um tengsl hennar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, sem skipu­lögðu man­sal og kyn­ferð­is­brot á ungum stúlkum og konum.  

For­seta­frúin fyrr­ver­andi kemur fyrir í tveimur tölvu­póstum í Epstein-skjöl­unum í þriðju per­sónu. Þeir gefa til kynna að Dorrit hafi verið nokkuð kunnug Epstein, en hún var vin­kona Ghislaine Maxwell og sótti meðal ann­ars 51 árs afmæl­is­veislu hennar í London 2013, þar sem Andrés prins var við­staddur ásamt fleirum. 

Engin bein sam­skipti hafa hins vegar fund­ist í gögn­unum, sem fyrst og fremst ná yfir tölvu­póst­send­ingar, og ekk­ert hefur komið fram sem bendlar Dorrit eða Ólaf Ragnar við að hafa þegið greiða­semi hans. Spurn­ingar hafa hins vegar vaknað vegna sam­hengis umræð­unnar um for­seta­frúna í Epstein-skjöl­unum. 

Forsetahjónin yfirgáfu herbergið

Dorrit segir í svörum sínum sem birt­ast í vef­miðl­inum Mannlífi að hún hafi forð­ast með öllu að hitta eða ræða við Jeffrey Epstein.

Síðast þegar hún tjáði sig um tengslin, árið 2019, sagði Dorrit hins vegar í sam­tali við DV: „Það var ekk­ert furðu­legt við hann.“

Nú segir hún að Epstein hafi verið vin­gjarn­legur nágranni, en hún hafi haldið sig fjarri. „Einu sam­tölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varð­andi lyftu í bygg­ing­unni okkar sem virk­aði ekki, þar sem hann var svo vin­gjarn­legur að bera upp far­ang­ur­inn fyrir mig,“ segir Dorrit við Mannlíf.

„Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað.“

Engu að síður hafi hún yfir­gefið her­bergi um leið og hann gekk inn, þegar hún mætti honum með Ólafi Ragnari Gríms­syni for­seta. Þar svarar hún spurn­ingu um hvort hún hafi hitt Epstein ásamt Ólafi Ragnari. „Já, við hitt­umst við sama tæki­færi fyrir 25 árum. Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað.“ Þetta hafi verið síð­asta skiptið sem hún hitti Epstein.

Það hafi verið vegna þess að Epstein hafi verið „slepju­legur“. Hún segir atvikið hafa átt sér stað í „húsi vinar í Banda­ríkj­unum“.

Ólafur Ragnar sagði frá því í við­tali við Frétta­blaðið árið 2019 að hann hefði aldrei hitt Epstein.

Spurð hvers vegna hún forð­að­ist Epstein, þrátt fyrir að hafa sagt að ekk­ert óvenju­legt væri við hann, seg­ist Dorrit hafa öðl­ast inn­sæi til að meta hvort fólk sé trausts­ins vert, þegar hún starf­aði sem barn í verslun föður síns í Jer­úsalem, skart­gripa­sal­ans Shlomo Moussaieffs, sem síðar átti eftir að verða meðal rík­ustu manna Bret­lands. 

Nágranni Epsteins

Árið 2019 kom fram að síma­númer merkt Dorrit hafi verið í síma­skrá Jeffreys Epstein. Hún svar­aði þá DV og kvaðst hafa verið nágranni Epsteins í London á 8. og 9. ára­tugnum. 

„Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London ein­hvern tím­ann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sam­eig­in­lega kunn­ingja. Það er mögu­leiki á því að á ein­hverjum tíma­punkti hafi hann verið með síma­núm­erið mitt,“ sagði Dorrit þá. 

Í svörum til Mannlífs stað­festir hún að síma­núm­erið sé rétt. Þar segir Dorrit að Epstein hafi að lík­indum fengið síma­númer hennar, sem birt­ist í tengiliða­skrá hans, fyrir ríf­lega fjör­tíu árum, þegar hún var nágranni hans í London. Síma­núm­erið sem birt­ist í tengiliða­skránni er hins vegar með svæð­is­númer í London sem var ekki inn­leitt fyrr en um alda­mótin, eða fyrir 26 árum, skömmu áður en hún seg­ist hafa hitt Epstein síð­asta sinni og yfir­gefið her­bergið ásamt Ólafi Ragnari Gríms­syni for­seta.

Dorrit seg­ist hafa þekkt alla í hús­inu, enda hafi þar aðeins verið fimm íbúðir. Hún seg­ist þó ekki hafa gert annað en að heilsa og kveðja Epstein, auk þess að ræða í eitt skipti við hann um bil­aða lyftu. Þrátt fyrir þetta sá nýald­ar­gúrú­inn Deepak Chopra ástæðu til að senda Epstein tölvu­póst um að Dorrit og Ólafur Ragnar væri í Aspen og vís­aði til þeirra ein­göngu sem: „Dorrit og íslenski eig­in­maður hennar“. 

Chopra átti í marg­vís­legum sam­skiptum við Epstein og í einum þeirra segir hann: „Komdu með stelp­urnar þínar.“ 

Við innsta hring Epsteins

Dorrit Moussaieff hefur í ára­tugi verið við­loð­andi félags­líf efri stéttar Bret­lands. Auðæfi föður hennar voru árið 2011 metin á 37 millj­arða íslenskra króna, til við­bótar við ómet­an­legt safn forn­muna sem tengj­ast Bibl­í­unni og Mið­aust­ur­löndum.

Að hluta getur það útskýrt hvers vegna svo vill til að Dorrit er í vin­fengi við tvær af mestu lyk­il­per­són­unum í sög­unni af Jeffrey Epstein. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Fordæmir forsetafrúin framferði Ísraela í Palestínu ?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár