„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“

Pam Bondi, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hreytti upp­nefn­um í þing­menn þeg­ar hún svar­aði fyr­ir Ep­stein-skjöl­in.

„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“
Pam Bondi Dómsmálaráðherrann sýndi þingmönnum litla virðingu.

Demókratar á Bandaríkjaþingi sökuðu Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í gær um að stunda „yfirhylmingu“ með Epstein-skjölin og breyta dómsmálaráðuneytinu í „tæki hefndar“ fyrir Donald Trump forseta.

Bondi, sem bar vitni fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar, varði meðferð ráðuneytisins á birtingu Epstein-skjalanna og sagði að „rannsóknir væru í gangi“ í málinu, en áður hefur Alríkislögreglan (FBI) gefið út að ekki séu nægar sannanir til að byggja frekari saksókn á.

Hún útskýrði rannsóknirnar ekki nánar í hörðum yfirheyrslum sem nokkur fórnarlömb Epsteins sátu, en hann lést í fangaklefa í New York árið 2019 á meðan hann beið réttarhalda fyrir mansal með stúlkur undir lögaldri.

Aðstoðarmaður Bondi, Todd Blanche, sagði nýlega að ekki væri búist við frekari saksóknum í tengslum við Epstein, þennan auðuga fjármálamann sem hafði víðtæk tengsl við háttsetta stjórnendur í viðskiptalífinu, stjórnmálamenn, frægt fólk og fræðimenn.

Yfirstrikanir séu yfirhylming

Jamie Raskin, helsti fulltrúi demókrata í nefndinni, gagnrýndi hversu hægt gengi að birta Epstein-skjölin og þær yfirstrikanir sem gerðar hefðu verið á skjölunum.

„Þið stundið gríðarlega yfirhylmingu með Epstein-skjölin beint út úr dómsmálaráðuneytinu,“ sagði Raskin. „Ykkur hefur verið skipað með stefnu og af þinginu að afhenda sex milljónir skjala, ljósmynda og myndbanda úr Epstein-skjölunum, en þið hafið aðeins afhent þrjár milljónir.“

Lögin um gagnsæi Epstein-skjalanna, sem þingið samþykkti í nóvember, neyddu dómsmálaráðuneytið til að birta öll skjöl í sinni vörslu sem tengjast Epstein innan 30 daga.

Lögin kröfðust þess að nöfn eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um þolendur Epsteins yrðu yfirstrikaðar, en þær voru yfir 1.000 talsins samkvæmt FBI.

Valdamikla fólkið sem var í vingjarnlegu sambandi við Epstein mátti ekki verja „á grundvelli vandræðagangs, mannorðsskaða eða pólitísks viðkvæmni,“ segir í lögunum.

Raskin sagði að nöfn „misnotenda, stuðningsmanna, vitorðsmanna og samverkamanna“ Epsteins hefðu engu að síður verið yfirstrikuð, „sýnilega til að hlífa þeim við vandræðagangi og skömm.“

„Það sem verra er, þá misfórst ykkur á átakanlegan hátt að yfirstrika nöfn margra fórnarlambanna,“ bætti hann við.

Bondi, náinn bandamaður Trumps, sagði að hundruð lögfræðinga hefðu varið þúsundum klukkustunda í að fara nákvæmlega yfir milljónir blaðsíðna til að fara að lögum.

„Ef nafn einhvers manns var yfirstrikað sem ekki hefði átt að vera, munum við að sjálfsögðu afmá yfirstrikunina,“ sagði dómsmálaráðherrann. „Ef nafn fórnarlambs var ekki yfirstrikað, vinsamlegast komið með það til okkar og við munum yfirstrika það.“

„Við fengum 30 daga til að fara yfir og yfirstrika og afmá yfirstrikanir á milljónum blaðsíðna af skjölum,“ sagði hún. „Villuhlutfall okkar er mjög lágt.“

„Hefndartæki Trumps“

Bondi neitaði ítrekað að svara beint spurningum frá þingmönnum demókrata í spennuþrungnum yfirheyrslum og kryddaði svör sín með persónuárásum.

Hún neitaði beiðni frá þingmanni demókrata um að snúa sér við og biðja fórnarlömb Epsteins í salnum beint afsökunar en sagðist þó harma þjáningar þeirra.

Raskin og aðrir þingmenn demókrata fordæmdu saksóknir dómsmálaráðuneytisins gegn pólitískum andstæðingum Trumps eins og James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, og Letitiu James, dómsmálaráðherra New York.

„Þið hafið breytt dómsmálaráðuneyti fólksins í hefndartæki Trumps,“ sagði hann. „Trump pantar saksóknir eins og pítsur og þið afhendið í hvert skipti sem hann segir ykkur það.“

„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“

Bondi átti einnig í hörðum orðaskiptum við Jamie Raskin frá Maryland, helsta demókrata nefndarinnar, þegar hann reyndi að koma í veg fyrir að dómsmálaráðherrann notaði löng og flækjuleg svör til að eyða þeim fimm mínútum sem nefndarmenn fá til að spyrja spurninga. Þegar Raskin sagði að hann hefði varað Bondi við því í upphafi yfirheyrslunnar að eyða tímanum, svaraði Bondi með því að öskra: „Þú segir mér ekki neitt.

„Þú ert útjaskaður lúseralögfræðingur. Þú ert ekki einu sinni lögfræðingur,“ sagði hún við Raskin, sem er lögmaður og prófessor í lögum með sérhæfingu í stjórnarskránni.

Hún lét einnig Zoe Lofgren, demókrata frá Kaliforníu, heyra það þegar hún sagði dómsmálaráðuneytið hafa misst trúverðugleika vegna víðtækra yfirstrikana. 

„Hún heldur áfram að ráðast á Trump forseta, besta forseta í sögu Bandaríkjanna“
Pam Bondi
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í umræðu um Epstein-skjölin

„Mér finnst athyglisvert að hún heldur áfram að ráðast á Trump forseta, besta forseta í sögu Bandaríkjanna,“ sagði Bondi.

Dómsmálaráðherra og dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafa yfirleitt haldið sig í hæfilegri fjarlægð frá forsetanum og Hvíta húsinu til að forðast ásakanir um pólitísk afskipti af löggæslu, en Trump hefur rofið þá venju.

Bondi átti einnig í hörðum orðaskiptum við Ted Lieu, þingmann demókrata frá Kaliforníu, sem spurði hvort Trump hefði nokkurn tíma sótt partí með stúlkum undir lögaldri. „Þetta er svo fáránlegt,“ sagði Bondi. „Og þau eru að reyna að beina athyglinni frá öllu því frábæra sem Donald Trump hefur gert. Það eru engar sannanir fyrir því að Donald Trump hafi framið glæp. Allir vita það.“

Í skjölunum eru margvíslegar ásakanir á hendur Donald Trump, en þær eru ósannaðar, einhliða ásakanir. Nánasta samband Trumps við Jeffrey Epstein átti sér hins vegar stað fyrir þann tíma sem gögnin ná til og fyrir víðtæka notkun tölvupósts, sem Trump er sagður nota lítið sem ekkert enn þann dag í dag.

Maxwell ein í fangelsi

Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta Epsteins, er eina manneskjan á bak við lás og slá í tengslum við Epstein. Hún var dæmd árið 2021 fyrir mansal með stúlkur undir lögaldri og afplánar nú 20 ára fangelsisdóm.

Trump hefur ekki verið sakaður um neitt misjafnt varðandi Epstein en hann barðist í marga mánuði til að koma í veg fyrir birtingu skjalanna um fyrrverandi vin sinn, þrátt fyrir að margir samherjar hans hafi krafist birtingarinnar þegar demókratar voru með forsetastólinn.

Uppreisn meðal repúblikana neyddi forsetann að lokum til að samþykkja lögin sem kveða á um birtingu allra skjalanna.

Þessi aðgerð endurspeglaði mikinn pólitískan þrýsting til að bregðast við því sem margir Bandaríkjamenn, þar á meðal stuðningsmenn Trumps sjálfs, hafa lengi grunað að væri yfirhylming til að vernda ríka og valdamikla menn í innsta hring Epsteins.

Endurteknar neitanir Trumps um að hafa vitað af glæpum Epsteins hafa verið teknar til skoðunar vegna FBI-viðtals frá 2019 – sem er að finna í Epstein-skjölunum – við Michael Reiter, þáverandi lögreglustjóra í Palm Beach.

Reiter sagði FBI að Trump hefði hringt í hann árið 2006 – þegar kynferðisbrotamálin gegn Epstein komust í hámæli – til að segja: „Guði sé lof að þú ert að stöðva hann, allir hafa vitað að hann hefur verið að gera þetta.“

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Ég horfði á stóran hluta yfirheyrslnanna á Bondi. Hún hagaði sér eins og 12 ára gelgja sem er að farast úr frekju, dóna- og kjánaskap. Að þessi kona skuli vera dómsmálaráðherra Bandaríkjanna er fullkomlega galið og óskiljanlegt.

    Bandaríkin eru heimsveldi sem er statt í miðju sjálfstortímingarferli. Hvern hefði órað fyrir öllu þessu brjálæði bara fyrir nokkrum árum síðan?
    14
    • HH
      Hjörtur Herbertsson skrifaði
      Það er líka jafngalið að Trump skuli vera forseti Bandarikjana
      14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“
InnlentBandaríki Trumps

Í miðju stríði hrós­ar Trump verk­efn­um sín­um: „Tjörn­in okk­ar er stærri en skýja­kljúf­ar“

Á sama tíma og vopna­hlé við Ír­an hékk á blá­þræði og Re­públi­kana­flokk­ur­inn stóð frammi fyr­ir póli­tískri áhættu vegna kostn­að­ar stríðs­ins, sá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til þess að blaða­menn sem voru sam­an komn­ir á for­seta­skrif­stof­unni vissu hvað hon­um lá helst á hjarta: end­ur­bæt­ur á hinni sögu­frægu spe­g­iltjörn við Lincoln-minn­is­varð­ann.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
3
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
5
Stjórnmál

Sam­fylk­ing­in klofn­ar vegna brott­far­ar­stöðv­ar: Hvað ann­að átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár