„Friðarforsetinn“ Trump ræðst á Venesúela

Trump seg­ist hafa látið hand­taka for­seta lands­ins.

„Friðarforsetinn“ Trump ræðst á Venesúela
Eldur í Caracas Fuerte Tiuna, stærsta her­stöð Venes­ú­ela, sést úr fjar­lægð eftir röð spreng­inga í höf­uð­borg­inni Caracas í dag. Mynd: AFP

Banda­ríkin réð­ust í morgun á Venes­ú­ela og segj­ast hafa hand­tekið for­seta lands­ins, Niculas Maduro, og eig­in­konu hans, undir því yfir­skini að þau eigi aðild að fíkni­efna­smygli.

Landið býr yfir stærstu olíu­auð­lindum allra ríkja, svo vitað sé, en býr einnig við ein­ræð­is­stjórn. Venes­ú­ela hefur farið fram á fund í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna og Evr­ópu­sam­bandið kallar eftir virð­ingu fyrir alþjóða­lögum. Þá vilja Rússar vita hvar Maduro er nið­ur­kom­inn.

„Banda­ríkin hafa gert umfangs­mikla árás á Venes­ú­ela og leið­toga þess, Nicolas Maduro for­seta, sem hefur verið hand­samaður ásamt eig­in­konu sinni og fluttur úr landi,“ segir Trump á miðli sínum Truth Social. „Þessi aðgerð var unnin í sam­vinnu við banda­rísk lög­reglu­yf­ir­völd. Nánari upp­lýs­ingar fylgja síðar. Blaða­manna­fundur verður hald­inn í dag kl. 11 í Mar-a-Lago. Þakka ykkur fyrir athygl­ina á þessu máli! DONALD J. TRUMP for­seti.“

Sagðist verða friðarforseti

Donald Trump sneri aftur í emb­ætti og hét því að verða frið­ar­for­seti. Tæpu ári síðar hefur hann tekið stríði opnum örmum á mörgum víg­stöðvum.

Trump fyr­ir­skip­aði í dag umfangs­miklar hern­að­ar­árásir í Venes­ú­ela og til­kynnti að vinstri­s­inn­aði leið­tog­inn Nicolas Maduro hefði verið hand­tek­inn og fluttur úr landi.

Árásin í árs­byrjun kemur í kjöl­far þess að banda­ríski her­inn gerði árásir á Nígeríu á jóla­dag, í aðgerð sem Trump sagði að beind­ist gegn jihad­istum sem hefðu ráð­ist á kristna.

Og nokkrum klukku­stundum fyrir árás­ina í Venes­ú­ela var­aði Trump við annarri íhlutun Banda­ríkj­anna á þriðja svæð­inu og sagði að banda­rískar her­sveitir væru „til­búnar í tuskið“ ef klerka­stjórnin í Íran myndi drepa mót­mæl­endur sem hefðu farið út á götur.

Stríðs­á­hug­inn virð­ist stang­ast á við for­seta sem hefur lýst því hástöfum yfir að hann eigi skilið frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir að hafa að sögn bundið enda á átta stríð, sem er mjög umdeild full­yrð­ing.

Í annarri inn­setn­ing­ar­ræðu sinni 20. jan­úar á síð­asta ári sagði Trump: „Stoltasta arf­leifð mín verður að vera frið­ar­sinni og sam­ein­ing­ar­tákn.“

En skömmu síðar end­ur­skírði Trump varn­ar­mála­ráðu­neytið „stríðs­mála­ráðu­neytið“.

Á sama tíma og Banda­ríkin hafa lýst Suður- og Norður-Ameríku sem áhrifa­svæði sínu í nýrri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu hafa bæði Trump og aðstoð­ar­menn hans halda því fram að her­vald sé leiðin að raun­veru­legum friði. 

„Við erum að skapa frið með styrk. Það er það sem við erum að gera,“ sagði Trump á fjölda­fundi í Penn­syl­vaníu í síð­asta mán­uði.

„Friður með styrk“ var frægt slag­orð Ronalds Reagans þegar hann ýtti undir gríð­ar­lega hern­að­ar­upp­bygg­ingu í lok kalda stríðs­ins og var eignað róm­verska keis­ar­anum Hadrí­anusi sem byggði upp varnir.

En sú stefna var almennt skilin sem leið til að koma í veg fyrir að stríð hæf­ist.

„Svokallaðir þjóðarbyggjendur“

Það sem gerir ást hans á valdi enn meira slá­andi er að Trump hefur ekki aðeins lýst sjálfum sér sem frið­ar­sinna heldur hefur hann talað gegn íhlut­un­ar­stefnu Banda­ríkj­anna í mörg ár.

Með yfir­lýs­ing­unni „Banda­ríkin fyrst“ stillti hann sér upp sem ann­ars konar repúblik­ana en síð­asti for­seti flokks­ins, George W. Bush, en stjórn hans gagn­rýndi hann harð­lega sem stríðsæs­inga­menn vegna inn­rás­ar­innar í Írak árið 2003.

Í ræðu í Riyadh í maí sagði Trump að „svo­kall­aðir þjóð­ar­byggj­endur eyddu mun fleiri þjóðum en þeir byggðu“ og skildu ekki löndin þar sem þeir gripu inn í.

Einn lyk­ilmunur á honum og Bush er að Trump hefur ekki látið í veðri vaka að um lang­tíma­skuld­bind­ingu sé að ræða.

Á síð­asta ári fyr­ir­skip­aði hann sprengju­árásir á írönsk kjarn­orku­svæði til stuðn­ings ísra­el­skri árás, auk árása í Sýrlandi til að hefna fyrir morð á banda­rískum her­mönnum.

En líkt og Bush, þá er Trump sama um sam­þykktir Sam­ein­uðu þjóð­anna eða aðra alþjóð­lega samn­inga um stríð.

Stjórn Trumps heldur því fram að Maduro hafi verið eft­ir­lýstur vegna fíkni­efna­á­kæru í Banda­ríkj­unum, en rík­is­stjórn Maduros er aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna, jafn­vel þótt flest vest­ræn ríki telji hann ólög­mætan í for­seta­stóli í kjöl­far kosn­inga sem ein­kennd­ust af óreglu.

Úr löggu í eineltissegg

Öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Ruben Gallego, demókrati og upp­gjafa­her­maður úr Íraks­stríð­inu, kall­aði Venes­ú­ela „annað órétt­mæta stríðið á minni ævi,“ þótt hann væri sam­mála því að Maduro væri ein­ræð­is­herra.

„Það er vand­ræða­legt að við fórum úr því að vera heims­ins lögga yfir í að vera heims­ins ein­elt­is­seggur á innan við ári. Það er engin ástæða fyrir okkur að vera í stríði við Venes­ú­ela,“ sagði hann á X.

Það er kald­hæðn­is­legt að nýj­ustu frið­ar­verð­laun Nóbels, sem Trump þráir svo heitt, fóru til stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­ans í Venes­ú­ela, Maria Corina Machado, en nafn hennar virt­ist banda­ríski for­set­inn ekki þekkja í fyrstu.

Trump hefur þó unnið ein frið­ar­verð­laun síðan hann tók við emb­ætti.

Forseti FIFA, Gianni Infantino, afhenti Trump í síð­asta mán­uði verð­laun frá alþjóða­knatt­spyrnu­sam­band­inu í aðdrag­anda þess að Banda­ríkin halda heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu.

Infantino sagði að Trump, sem hefur hæðst að inn­flytj­endum frá þró­un­ar­löndum og hótað ofbeldi gegn inn­lendum and­stæð­ingum, fengi við­ur­kenn­ingu fyrir „ein­stakar og óvenju­legar aðgerðir til að stuðla að friði og ein­ingu um allan heim.“

Fékk verð­launGianni Infantino, for­seti Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­tak­anna FIFA, veitti Trump frið­ar­verð­laun fyrir hönd sam­tak­anna, þegar dregið var í riðla fyrir keppn­ina sem halda á í Banda­ríkj­unum, Mexíkó og Kanada í sumar.

ESB vill að alþjóðalög séu virt

ESB kall­aði eftir hóf­still­ingu og virð­ingu fyrir alþjóða­lögum í Venes­ú­ela á laug­ar­dag eftir að Donald Trump for­seti til­kynnti að banda­rískar her­sveitir hefðu hand­samað leið­tog­ann Nicolas Maduro í stór­felldri árás.

„ESB hefur ítrekað lýst því yfir að hr. Maduro skorti lög­mæti og hefur talað fyrir frið­sam­legum valda­skiptum,“ skrif­aði Kaja Kallas, æðsti erind­reki sam­bands­ins, á X eftir að hafa rætt við banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ann, Marco Rubio.

„Í öllum kring­um­stæðum verður að virða meg­in­reglur alþjóða­laga og sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Við köllum eftir hóf­still­ingu,“ skrif­aði hún.

ESB hefur ekki við­ur­kennt nið­ur­stöður kosn­ing­anna árið 2024 sem veittu Maduro þriðja kjör­tíma­bilið, og hefur beitt tugi venes­ú­el­skra emb­ætt­is­manna refsi­að­gerðum fyrir að grafa undan lýð­ræði í land­inu.

Inn­an­rík­is­ráð­herra Venes­ú­ela, Diosdado Cabello, sagði í morgun að land sitt „myndi sigr­ast á“ hrinu hern­að­ar­árása Banda­ríkj­anna.

Cabello, sem er tal­inn einn valda­mesti mað­ur­inn í Caracas, sagði í við­tali við stað­bundna sjón­varps­stöð að „í lok þess­ara árása munum við sigr­ast,“ og bætti við að „þetta er ekki okkar fyrsta bar­átta gegn þjóð okkar ... okkur hefur tek­ist að lifa af við allar aðstæður.“

Ný þjóðaröryggisstefna boðar afskipti

Þrátt fyrir fyrri yfir­lýs­ingar Trumps um afskipta­leysi og áherslu á frið hefur hann tekið upp rót­tækt breytta stefnu sem krist­all­að­ist í nýrri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu í des­em­ber. Þar var boðuð upp­færð „Monroe-kenn­ing“ um rétt Banda­ríkj­anna til að stjórnma málum í Suður-Ameríku. Trump hefur haft afskipti af kosn­ingum í Hondúras og Argent­ínu með því að hóta afleið­ingum fyrir löndin séu hans full­trúar ekki kjörnir. Þá náð­aði hann fyrr­ver­andi for­seta Höndúras, sem hafði verið dæmdur í 45 ára fang­elsi í Banda­ríkj­unum fyrir að eiga þátt í fíkni­efna­smygli til Banda­ríkj­anna. 

Banda­ríkin hafa síðan drepið á annað hund­rað manns í loft­árásum í Karí­ba­hafi og Kyrra­hafi vegna ásak­ana um fíkni­efna­smygl.

Í þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni voru boðuð afskipti af inn­an­rík­is­málum Evr­ópu­þjóða, með orð­réttri áherslu á „að ýta undir and­stöðu innan Evr­ópu­þjóða við núver­andi stefnu álf­unnar“, einna helst í inn­flytj­enda­málum. Dregið er mjög úr áherslu á að Rússland væri ógn.

Trump hefur ítrekað talað um að Banda­ríkin „þurfi“ að yfir­taka Grænland í skyni þjóðar­ör­yggis og ekki úti­lokað beit­ingu her­valds, þótt hann telji það ekki þurfa.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JG
    Jón Gíslason skrifaði
    Við þau sem ennþá eru dyggir stuðningsmenn Trumps er lítið hægt að segja til að ná til þeirra. Hann sóttist eftir því að verða forseti til að fá enn meiri völd, upphefja sjálfan sig og hefna sín á Obama eftir kvöldverðinn 2015 þar sem gert var gys að honum. Punktur.

    Fólk virkilega trúir því ennþá að Trump vildi komast í embættið vegna þess að hann vildi berjast fyrir fólk. Stuðningsfólk hans heldur í alvöru að honum sé svo annt um velfarnað vinnandi fólks verandi viðskiptajöfur með sjálfsdýrkun og skort á veruleika tengingu við meðal Bandaríkjamanninn. Hneykslismálin sem hafa hrannast upp á síðastliðnum árum tengd honum segja meira en þúsund orð. Er fólk í alvöru svo blint af hollustu við hann að það skynjar hluti sem hann hefur gert, gerir og segist ætla að gera sem hið fínasta mál en myndi á sama tíma hneykslast og froðufella yfir því ef annar stjórnmálamaður gerði sömu hlutina?

    Saksóknarinn Kamala Harris og viðskiptajöfurinn Donald Trump eru ekki samanburðarhæf í stjórnmálum. Einhver má endilega benda mér á þau ógrynni af hneykslismálum sem hafa skotið upp kollinum í tengslum við Harri sem gerðu hana að slæmum kosti sem forseta. Verri en Trump þ.e.a.s. Ég bíð.
    3
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga

    Þjóðarleiðtogar eru oft miklir egóistar og eru í stöðugri keppni um að vera fremstir. það er þessi keppni um að vera fremstir sem veldur brjálsemi þeirra - það kemst ekkert annað að. Sumir þeirra vita ekki afhverju þeir vilja vera þjóðarleiðtogar, þeir vita það eitt að þeir vilja vera fremstir.

    Þjóðarleiðtogar eiga það til að fangelsa eða ryðja úr vegi stjórnarandstæðingum og þeim sem gætu átt til að gagnrýna þá, dómurum og blaðamönnum og stundum fara þeir í stríð. Ástæðan fyrir þessu gæti verið að þeir eru að verja þá hugmynd um sjálfa sig, um að vera fremstir og til að þessi sjálfsmynd bíði ekki hnekki, gera þeir hvað sem er. Þeir eru í raun hræddir menn að verja hugmyndina um sjálfa sig sem mikilmenni og númer eitt og ryðja þeim úr vegi sem gætu raskað þeirri hugmynd.

    Rótin að þessu ástandi gæti verið lífsskoðun eins og sú, að láta engan vaða yfir sig. Í slíku lífsviðhorfi felst átök, jafnvel átakasækni (til að sanna sig) og ákveðin mikilmennskukennd, því ef enginn getur vaðið yfir viðkomandi þá hlýtur hann að vera númer eitt?

    Mótefnið við þessu kann að vera "jafnaðarmennska", tilfinningaleg meðvitund, kærleikur, átakafælni og muna að fæstir eru fullkomnir?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár