Mynd: TASOS KATOPODIS / GETTY IMAGES / AFP

Sáir Trump fræjum stórstyrjaldar?

Ný utan­rík­is­stefna Banda­ríkja­for­seta skil­greinir Suður-Ameríku sem áhrifa­svæði Banda­ríkj­anna. Óttast er að stefnan rétt­læti yfir­gang stór­velda gegn smærri ríkjum, sem áður hefur leitt til heims­styrj­aldar.

Eftir stór­fellda hern­að­ar­upp­bygg­ingu á Karí­ba­hafi og loft­árásir á meinta fíkni­efna­báta kynnti Donald John Trump Banda­ríkja­for­seti nýja þjóðar­ör­ygg­is­stefnu, sem end­ur­vakti svo­kall­aða Monroe-kenn­ingu um yfir­ráð Banda­ríkj­anna yfir Suður-Ameríku. Sagn­fræð­ingur varar við því að kenn­ingin hafi áður verið nýtt til að rétt­læta inn­rásir stór­velda í smærri nágranna­ríki, meðal ann­ars af nas­ista­leið­tog­anum Adolf Hitler í aðdrag­anda seinni heims­styrj­aldar. 

Réttur stórvelda innsiglaður

Víða í Evrópu var nýju þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Banda­ríkj­anna tekið illa á þeim for­sendum að þar var berum orðum boðað að Banda­ríkin myndu „ýta undir and­stöðu innan Evr­ópu­þjóða við núver­andi stefnu álf­unnar“, sem af sam­hengi stefn­unnar snýr að því að styðja hægri flokka.

Samtímis hafa banda­rísk stjórn­völd þrýst á Úkraínu að eft­ir­láta Rúss­landi meira land­svæði en Rússar hafa her­tekið í ólög­legu inn­rás­ar­stríði síð­ustu fjögur árin og við­ur­kenna þannig rétt sterk­ari aðil­ans til land­vinn­inga af full­valda ríki.

Á Íslandi og ann­ars staðar í Evrópu var hins vegar minna rætt um yfir­lýs­ing­una í stefn­unni gagn­vart Suður-Ameríku, sem …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár