Í sáttinni er gerð grein fyrir því hvernig sektargreiðslan – 1.160 milljónir króna – var ákveðin. Fjármálaeftirlitið segir að ákvörðun sektarfjárhæðar sé byggð á því að athugun þeirra hafi leitt í ljós víðtæka annmarka hjá málsaðila, „en um er að ræða kerfislega mikilvægan banka með umfangsmiklar starfsheimildir“.
Eftirlitið hafi tekið inn í útreikninginn alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá fyrirtækinu, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.
„Háttsemi málsaðila sem lýst hefur verið felur í sér alvarleg brot á mikilvægum ákvæðum laga um markaði fyrir fjármálagerninga og lögum um fjármálafyrirtæki,“ segir svo einnig í þeim kafla þar sem gerð er grein fyrir sektarfjárhæðinni. „Við ákvörðun sektarfjárhæðar var enn fremur litið til þess að málsaðili er viðskiptabanki og því með víðtækt starfsleyfi. Starfsemin er fjölþætt með mörg starfssvið og því töluverðar líkur á hagsmunaárekstrum ef ekki yrði gripið til sérstakra ráðstafana. Þá eru starfandi fjölmargir sérfræðingar innan málsaðila og gera verður kröfu til þeirra að þekkja og framfylgja þeim reglum sem gilda um starfsemina.“
Bankanum er þó talið til tekna, eða refsilækkunar, að hafa ekki þurft að greiða sekt vegna brota á ákvæðum laga um fjármálamarkaði á síðustu fimm árum.
„Með hliðsjón af framangreindu, fjölda og alvarleika brotanna, sjónarmiða málsaðila, heildarveltu málsaðila m.v. samstæðureikning hans fyrir árið 2022, atvikum máls að öðru leyti og að teknu tilliti til þess að málinu er lokið með sátt, er málsaðila hér með boðið að ljúka málinu með sátt og til greiðslu sektar að fjárhæð 1.160.000.000 króna til ríkissjóðs.“
að aðhafast i þessum hrikalegu spillingamalum sem hafa tröllriðið okkar þjoð i aldar" tugi".
Tek fram eg er hvergi flokksbundinn en er alveg alveg a moti spillingu sem her viðgengst.
að ekki skuli vera hægt að treysta fjármálaöflunum. Þ.e.a.s. ,,bláu höndinni" Bláa höndin er sífelt að verki
Það er tæpast hægt fyrir einstaka starfsmenn að framkvæma svona hundakúnstir án þess aðæðstu stjórnendur séu meðvitaðir um hvað er að gerast. Starfsfólk bankans starfar undir stjórn og umsjón yfirmanna sinna og þurfa að starfa samkvæmt þeim fyrirmælum sem koma að ofan frá stjórnendum. Alla leið upp í topp.
Allir vildu taka snúninginn. 10% yfir nótt!