Stjórnarmaður í Íslandsbanka fékk munnlega undanþágu til að kaupa

Nýr stjórn­ar­maður í Íslands­banka var á fræðslu­fundi fyrir slíka þegar yfir­lög­fræð­ingur bank­ans kom inn á hann og upp­lýsti um að lokað útboð á hlutum rík­is­ins í bank­anum væri hafið. Við­kom­andi spurði hvort hann mætti ekki taka þátt og fékk munn­lega heim­ild til þess sam­stundis frá reglu­verði. Engin skrif­leg gögn eru til um þetta.

Stjórnarmaður í Íslandsbanka fékk munnlega undanþágu til að kaupa
Var glæ­nýr Ari Dan­í­els­son var nýsestur í stjórn Íslands­banka og var á fræðslu­fundi fyrir nýja stjórn­ar­menn þegar hann óskaði eftir því að fá að taka þátt í lok­aða útboð­inu. Mynd: Íslandsbanki

Engin skrif­leg gögn né jákvætt svar reglu­varðar eru til um beiðni Ara Dan­í­els­sonar, stjórn­ar­manns í Íslands­banka, um und­an­þágu frá banni við þátt­töku í lok­uðu útboði á hlutum íslenska rík­is­ins í Íslands­banka sem fór fram 22. mars í fyrra. Félag í eigu Ara, sem skráð er í Lúx­em­borg, keypti fyrir tæpar 55 millj­ónir króna í útboð­inu, en hann hafði komið inn í stjórn Íslands­banka nokkrum dögum áður en útboðið fór fram. 

Í sátt­ar­skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins Seðla­banka Íslands, sem birt var í dag og útlistar lög­brot bank­ans við sölu á hlutum í sjálfum sér, kemur fram að Ari hafi fengið und­an­þág­una munn­lega á fræðslu­fundi sem hald­inn var fyrir nýja stjórn­ar­menn, eftir að yfir­lög­fræð­ingur Íslands­banka kom inn á fund­inn og til­kynnti um að útboðið væri hafið. Und­an­þágan hafi svo verið stað­fest skrif­lega af reglu­verði, í tölvu­póst­sam­skiptum að morgni næsta dags. Hún var hins vegar ekki skráð fyrr en tveimur dögum síðar, eftir að útboðið var um garð gengið. 

Þar segir orð­rétt: „Þegar útboðið hófst kl. 16:11 hafi staðið yfir fræðsla reglu­varðar fyrir nýja stjórn­ar­menn. Á fræðslu­fund­inum voru reglu­vörður, stjórn­ar­for­maður, umræddur stjórn­ar­maður og vara­maður í stjórn. Yfir­lög­fræð­ingur máls­að­ila kom inn á fræðslu­fund­inn til að upp­lýsa um að útboðið væri hafið. Varpaði umræddur stjórn­ar­maður m.a. fram þeirri spurn­ingu hvort hann mætti sem stjórn­ar­maður taka þátt í útboð­inu þó svo að lokað tíma­bil stæði yfir hjá máls­að­ila.“

Reglu­vörður hafi metið það sem svo að þar sem engar inn­herj­a­upp­lýs­ingar hefðu legið fyrir á þessum tíma væri hægt að beita und­an­þágu­á­kvæði 5. kafla regln­anna enda slíkt ekki í ósam­ræmi við lög og reglur. „Reglu­gerð ESB nr. 596/2014 um mark­aðs­svik (MAR) kveður ein­ungis á um að við­skipti stjórn­enda með bréf í útgef­and­anum séu óheimil í 30 daga fyrir birt­ingu upp­gjörs, sbr. 11. tölul. 19. gr. reglu­gerð­ar­innar. Með vísan til þessa fékk stjórn­ar­mað­ur­inn skýrt og afdrátt­ar­laust svar reglu­varðar þess efnis að honum væri heim­ilt að taka þátt í útboð­inu og að frek­ari aðgerða væri ekki þörf.“

Forsendur til að taka ákvörðunina ekki til staðar

Í sátt­ar­skýrsl­unni segir að Fjár­mála­eft­ir­lit­inu hafi ekki borist gögn sem stað­festa að send hafi verið skrif­leg beiðni um und­an­þágu frá regl­unum, þrátt fyrir beiðni þar um. „Ekki verður litið á umrætt sam­tal sem veitta und­an­þágu, enda gera reglur máls­að­ila ráð fyrir að beiðnir um und­an­þágu ber­ist skrif­lega. [...] For­sendur til að taka ákvörðun um hvort starfs­mönnum væri heim­ilt að taka þátt í útboð­inu á grund­velli reglna máls­að­ila um ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum voru ekki til staðar vegna skorts á grein­ingu hags­muna­á­rekstra.“

Íslands­banki við­ur­kenndi í andsvörum sínum til eft­ir­lits­ins að það hefði verið í betra sam­ræmi við þær form­kröfur sem gerðar eru í áður­nefndum reglum að skrá atburða­rás­ina skrif­lega.

Ari er fyrr­ver­andi starfs­maður Glitnis banka og og fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Reviva Capital SA. Ari situr einnig í áhættu- og end­ur­skoð­un­ar­nefnd Íslands­banka. Ari sett­ist fyrst í stjórn Íslands­banka um það leyti sem útboðið fór fram og var eins, og áður segir staddur á fræðslu­fundi fyrir nýja stjórn­ar­menn, ásamt reglu­verði bank­ans, þegar útboðið fór fram. 


Fréttin var upp­færð með nán­ari upp­lýs­ingum um tölvu­póst­sam­skipti stjórn­ar­manns­ins og reglu­varðar klukkan 18:19.
Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvers er ekki búið að boða til fundar um þetta mál og stjórn bankans og allir starfsmenn sem komu nálægt þessari sölu reknir ? Er spillingin svona svakaleg að ríkisstjórn VG liða í boði Sjálfstæðisflokksins með hjálp Framsóknarflokksins er getulaus ?
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Félag í eigu Ara, sem skráð er í Lúxemborg, keypti fyrir tæpar 55 milljónir króna í útboðinu,"
    Tók hann 10% snúninginn?
    1
  • HG
    Hrafnkell Gíslason skrifaði
    Það er gott hvað við lærðum mikið af hruninu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár