Íslandsbanki átti að hljóðrita 184 símtöl, en hljóðritaði einungis 22

Ekki liggur fyrir hversu mörg sím­töl starfs­menn Íslands­banka áttu við við­skipta­vini sem var boðið að kaupa hluti í bank­anum í mars í fyrra. Það útskýrist af því að ein­ungis sím­töl sem þeir sjálfir hringja eru skráð. Þau voru 184 alls en ein­ungis tólf pró­sent þeirra voru hljóð­rituð og varð­veitt.

Íslandsbanki átti að hljóðrita 184 símtöl, en hljóðritaði einungis 22
Íslands­banki Svört sátt­ar­skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um lög­brot sem framin voru innan bank­ans í tengslum við útboð á hlut rík­is­ins í honum í mars 2022 var birt í dag. Mynd: Íslandsbanki

Starfs­menn Íslands­banka hringdu alls 184 sím­töl í við­skipta­vini vegna lok­aðs útboðs á hlutum rík­is­ins í bank­anum sjálfum sem fram fór 22. mars í fyrra þar sem til­efni sam­tal­anna var boð um að taka þátt í útboð­inu eða til að leggja fram til­boð með aðstoð starfs­manna Íslands­banka. Samkvæmt lögum er skylt að hljóð­rita og varð­veita sím­töl sem þessi. 

Það var ekki gert í lang­flestum til­fellum. Raunar voru ein­ungis 22 af þeim 184 sím­tölum sem áttu sér stað hljóð­ritum og varð­veitt, eða tólf pró­sent þeirra. Þar er auk þess ein­ungis um að ræða þau sím­töl sem hring voru úr símum starfs­manna Íslands­banka, þar sem ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um heild­ar­fjölda mót­tek­inna sím­tala í far­síma starfs­manna. „Bendir það til þess að máls­að­ila [Íslands­banka] hafi borðið að varð­veita fleiri sím­töl en hér eru til­greind.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í sátt­ar­skýrslu sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands birti í dag vegna sáttar sem það hefur gert við Íslands­banka. Í sátt­inni felst að Íslands­banki gengst við innan hans hafi verið framin alvar­leg lög­brot þegar 22,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í bank­anum var seldur í lok­uðu útboði í mars í fyrra. Íslands­banki hefur sam­þykkt að greiða næstum 1,2 millj­arða króna í sekt vegna þeirra lög­brota. 

Ítrekað búið að benda á þörf á úrbótum

Fyrir liggur að reglu­varsla Íslands­banka hafði ítrekað bent á bæta þyrfti úr því hvernig hljóð­ritun sím­tala færi fram. Þróunin væri að sím­töl væru að fær­ast meira yfir í far­síma starfs­manna og að reglu­varsla bank­ans hefði áhyggjur af þeirri þróun. Mót­væg­is­að­gerð til að bregð­ast við þessu væri að not­ast við sam­skipta­for­ritið Teams fyrir sam­skipti sem hafi þurft að vera til á hljóð­upp­töku. „ hvaða hætti banka­stjóri og stjórn máls­að­ila hefðu verið upp­lýst um þær brotala­mir á hljóð­upp­tökum sem Reglu­varsla hefur bent á ítrekað í úttektum sínum og hvort áminn­ingar hafi verið veittar vegna brota á lögum og innri reglum máls­að­ila. Í svar­bréfi máls­að­ila, dags. 2. júní 2022, kemur fram að greint hafi verið frá úttekt­unum í árs­skýrslu Reglu­vörslu sem kynntar séu end­ur­skoð­un­ar­nefnd og stjórn máls­að­ila og að engar form­legar áminn­ingar hafi verið veittar af þessum sökum. Með svari máls­að­ila voru 13 fylgi­skjöl sem varða úttektir Reglu­vörslu sem fram­kvæmdar voru á tíma­bil­inu mars 2019 til febr­úar 2021.“

Í sátt­ar­skýrsl­unni segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi óskað eftir því með bréfi, dag­sett 27. maí 2022, að fá upp­lýs­ingar um hvort og með hvaða hætti Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri og stjórn bank­ans hefðu verið upp­lýst um þær brotala­mir á hljóð­upp­tökum sem reglu­varsla Íslands­banka hafði ítrekað bent á úttektum sínum og hvort áminn­ingar hafi verið veittar vegna brota á lögum og innri reglum máls­að­ila. „Í svar­bréfi máls­að­ila, dags. 2. júní 2022, kemur fram að greint hafi verið frá úttekt­unum í árs­skýrslu Reglu­vörslu sem kynntar séu end­ur­skoð­un­ar­nefnd og stjórn máls­að­ila og að engar form­legar áminn­ingar hafi verið veittar af þessum sökum. Með svari máls­að­ila voru 13 fylgi­skjöl sem varða úttektir Reglu­vörslu sem fram­kvæmdar voru á tíma­bil­inu mars 2019 til febr­úar 2021.“

Það er nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að Íslands­banki hafi brotið gegn lögum með því að hafa ekki skráð og varð­veitt sím­tals­upp­tökur vegna alls 162 sím­tala sem starfs­menn hans áttu í tengslum við útboðið. Þá er það nið­ur­staða eft­ir­lits­ins að bank­inn hafi ekki gert allar til­tækar ráð­staf­anir til að tryggja að starfs­menn eigi aðeins í sam­skiptum við við­skipta­vini sem hann getur varð­veitt og afritað, meðal ann­ars sam­skipti sem leiða eða kunna að leiða til við­skipta fyrir eigin reikn­ing eða mót­töku, miðl­unar og fram­kvæmdar fyr­ir­mæla við­skipta­vina

Í skýrsl­unni segir enn fremur ljóst að Íslands­banki hafi um langan tíma vitað af alvar­legum brota­lömum tengdum sím­tals­upp­tökum og hlítni við innri reglur um hljóð­ritun sím­tala sem giltu áður en lög um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga tóku gildi. Það brjóti einnig gegn lögum og reglum. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár