Íslandsbanki flokkaði almenna fjárfesta sem fagfjárfesta og veitti rangar upplýsingar gegn betri vitund

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur birt 96 blað­síðna svarta skýrslu um þau lög­brot sem framin voru innan Íslands­banka á meðan bank­inn tók þátt í að selja hlut rík­is­ins í bank­anum. Háttsemi bank­ans, stjórn­enda hans og starfs­manna, fól í sér alvar­leg brot á mik­il­vægum ákvæðum laga og var til þess fallin að hafa skað­leg áhrif á traust og trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­aða.

Íslandsbanki flokkaði almenna fjárfesta sem fagfjárfesta og veitti rangar upplýsingar gegn betri vitund

Íslands­banki flokk­aði átta við­skipta­vini sína, sem voru almennir fjár­festar, sem fag­fjár­festa svo þeir gætu tekið þátt í lok­uðu útboði á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í bank­anum í mars í fyrra. Sú flokkun átti sér stað án þess að skil­yrði til laga til þess hafi verið upp­fyllt. Íslands­banki hafði ýmist frum­kvæði að því eða hvatti umrædda almenna fjár­festa til að óska eftir að fá stöðu fag­fjár­festis og breytti flokkun við­skipta­vina sem tóku þátt í útboð­inu, sem var ein­ungis ætlað hæfum fjár­festum, eftir að það hófst. Þetta er meðal þess sem kemur fram í sam­komu­lagi Íslands­banka um að ljúka rann­sókn Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands með sátt sem birt var á vef Seðla­bank­ans í morgun. Sátt­ar­skjalið er alls 96 blað­síður að lengd. 

Útboðið sem fór fram fyrir um 15 mán­uðum síðan var ein­ungis ætlað þeim sem skil­greindir eru sem fag­fjár­festar sam­kvæmt lögum. Þess vegna fengu ein­ungis 207 aðilar að kaupa hlut­inn sem var til sölu, á verði sem var undir mark­aðs­verði, fyrir sam­tals 52,6 millj­arða króna. 

Íslands­banki sendi til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á fimmtu­dags­kvöld þar sem hann sagð­ist hafa þegið boð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins „um að ljúka máli með sam­komu­lagi um sátt“. Í þeirri sátt felst að bank­inn greiðir 1.160 millj­ónir króna í sekt í rík­is­sjóð vegna alvar­legra lög­brota. Finnur Árnason, stjórn­ar­for­maður Íslands­banka, sagði í til­kynn­ing­unni að ljóst sé að bank­inn muni draga „mik­inn lær­dóm af þessu verk­efni.“ 

Í sátt­inni sem birt var í morgun kemur mun skýrar í ljós hvað það er sem Íslands­banki, starfs­menn hans og stjórn­endur, gerðu sem leiddi til þess að Fjár­mála­eft­ir­litið lagði á hann hæstu sekt sem hann hefur nokkru sinni lagt á fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hún er raunar rúm­lega þrettán sinnum hærri en fyrri met­sekt, sem var 88 millj­ónir króna. 

Höfðu ekki forsendur til að meta þátttöku starfsmanna

Í sátt­inni segir að Íslands­banki hafi ekki fram­kvæmt né skjal­fest grein­ingu á hags­muna­á­rekstrum í tengslum við verk­efni máls­að­ila vegna sölu­ferl­is­ins. „Þar með fór ekki fram mat á því hvort ráð­staf­anir máls­að­ila vegna hags­muna­á­rekstra hafi verið full­nægj­andi, hvort þörf væri á frek­ari ráð­stöf­unum vegna verk­efn­is­ins eða hvort máls­að­ili ætti að láta ógert að taka að sér hlut­verk umsjónar- og upp­gjörs­að­ila útboðs­ins. Skortur á grein­ingu hags­muna­á­rekstra leiddi einnig til þess að máls­að­ili hafði ekki for­sendur til að taka ákvörðun um hvort starfs­mönnum væri heim­ilt að taka þátt í útboð­inu hinn 22. mars 2022 á grund­velli reglna máls­að­ila um ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum.“ Auk þess gerði Íslands­banki ekki allar við­eig­andi ráð­staf­anir til að greina og koma í veg fyrir eða takast á við hags­muna­á­rekstra vegna þátt­töku starfs­manna máls­að­ila í útboð­inu. „Enn fremur skorti á að máls­að­ili tryggði full­nægj­andi aðskilnað Fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og Verð­bréfa­miðl­unar, gerði full­nægj­andi ráð­staf­anir til að upp­færa innri reglur og stefnu máls­að­ila um hags­muna­á­rekstra í sam­ræmi við lög um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga og færi að innri reglum og verk­lagi sem máls­að­ili hafði sett sér um hags­muna­á­rekstra.“

Veittu rangar upplýsingar gegn betri vitund

Þá kemur fram að Íslands­banki hafi veitt Banka­sýslu rík­is­ins vill­andi upp­lýs­ingar um fyr­ir­liggj­andi til­boð í til­boðs­bók­inni sem lögð var fyrir Banka­sýsl­una að kvöldi 22. mars 2022 með því að upp­lýsa ekki um að almennir fjár­festar stæðu að baki ákveðnum til­boðum. „Þar af leið­andi fékk Banka­sýslan ekki upp­lýs­ingar um nöfn þátt­tak­enda og fjár­hæð til­boða frá hverjum og einum þrátt fyrir að upp­lýs­ingar þess efnis lægju fyrir hjá máls­að­ila. Banka­sýslu rík­is­ins voru einnig veittar vill­andi upp­lýs­ingar um flokkun þátt­tak­enda í útboð­inu þar sem níu við­skipta­vinir máls­að­ila sem stóðu að baki til­boðum í til­boðs­bók­inni sem lögð var til grund­vallar rök­studdu mati Banka­sýsl­unnar til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra voru ekki flokk­aðir sem fag­fjár­festar á því tíma­marki. Þá veitti máls­að­ili við­skipta­vinum Eigna­stýr­ingar rangar og vill­andi upp­lýs­ingar, gegn betri vit­und, í níu til­fellum um að lág­marks­fjár­hæð til­boða í útboð­inu væri 20 millj­ónir króna þegar ekki var um slíka skil­mála að ræða.“

Með hátt­erni sínu hafi Íslands­banki ekki upp­fyllt að öllu leyti skyld­una til að starfa heið­ar­lega, af sann­girni og fag­mennsku, í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti, með trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­að­ar­ins og hags­muni við­skipta­vina að leið­ar­ljósi við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd útboðs­ins. „Með þeirri hátt­semi að bjóða almennum fjár­festum að taka þátt í útboði sem ein­göngu var ætlað hæfum fjár­festum virti máls­að­ili ekki útboðs­skil­mála Banka­sýsl­unnar og gætti því ekki að hags­munum hennar af því að farið væri að skil­málum útboðs­ins. Um sölu á rík­is­eign var að ræða og voru hluta­bréf í máls­að­ila sjálfum boðin til sölu sem hefði átt að leiða til þess að máls­að­ili vand­aði sér­stak­lega til verka við fram­kvæmd þess. Háttsemi máls­að­ila er til þess fallin að hafa skað­leg áhrif á traust og trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­aða. Háttsemi máls­að­ila sem lýst hefur verið felur í sér alvar­leg brot á mik­il­vægum ákvæðum laga um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga og lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki.“

Bankastjórinn ekki að hugsa um að hætta

Í sátt­inni kemur fram að nið­ur­staða eft­ir­lits­ins sé sú að stjórn og banka­stjóri Íslands­banka hafi ekki með full­nægj­andi hætti inn­leitt stjórn­ar­hætti og innra eft­ir­lit sem tryggir skil­virka og var­færna stjórnun sem birt­ist meðal ann­ars í því að ekki var tryggt að bank­inn upp­fyllti laga­kröfur sem gilda um veit­ingu fjár­fest­ing­ar­þjón­ustu og fylgni við innri reglur sem stjórn hans hefur sett. 

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sagði við Heim­ild­ina á föstu­dag, eftir að til­kynn­ing Íslands­banka var birt en fyrir birt­ingu sátt­ar­innar í heild sinni, að með því að bjóða sátt væri „fjár­mála­eft­ir­litið að sýna stjórn og banka­stjóra traust til þess að inn­leiða þær breyt­ingar sem þarf. Og það er að sjálf­sögðu mik­il­vægt. Og það er mik­il­vægt að okkur er boðin sátt.“

Birna við­ur­kenndi að orð­spor bank­ans hefði skað­ast vegna máls­ins en sagði það ekki hafa komið til tals að hún myndi taka pok­ann sinn og hætta.

Frummatið lá fyrir 30. desember í fyrra

Líkt og Heim­ildin hefur áður greint frá þá lá frum­mat eft­ir­lits­ins á brotum Íslands­banka fyrir á síð­asta ári, nánar til­tekið 30. des­em­ber 2022. Viku síðar óskaði bank­inn eftir því að fá að ljúka mál­inu með sátt.

Sátta­við­ræð­urnar fóru fram á grund­velli reglna frá árinu 2019 um heim­ildir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til að ljúka málum með slíkum hætti. Í sátt felst að máls­að­ili, í þessu til­felli Íslands­banki, gengst við að hafa brotið gegn ákvæðum laga eða ákvörð­unum Fjármála­eft­ir­lits­ins, upp­lýsi að fullu um brotið og geri sam­komu­lag við stofn­un­ina um til­tekna sektar­greiðslu. Auk þess þarf að liggja fyrir að bank­inn hafi þá þegar látið af þeirri hátt­semi sem braut gegn lögum og að hann hafi gert við­eig­andi úrbætur.

Heim­ildin til sáttar nær ekki til þess sem kall­ast meiri háttar brot, en það eru brot sem refsi­við­ur­lög, fang­els­is­vist, liggja við. Brot telst meiri háttar ef það lýtur að veru­legum fjár­hæðum, ef verkn­aður er fram­inn með sér­stak­lega víta­verðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á sak­næmi brots­ins.

Sektir sem Fjár­mála­eft­ir­litið getur lagt á geta numið frá 100 þús­und krónum og upp í 800 millj­ónir króna. Sektir sem lagðar eru á lög­að­ila, eins og Íslands­banka, geta þó verið mun hærri, eða allt að tíu pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi. Rekstr­ar­tekjur Íslands­banka árið 2022 voru 57,2 millj­arðar króna, auk þess sem virð­is­breyt­ing fjár­eigna var um 1,6 millj­arðar króna. Hámarks­sekt sem hægt var að leggja á bank­ann var því nálægt sex millj­örðum króna.

Sátta­við­ræð­urnar fóru fram á grund­velli reglna frá árinu 2019 um heim­ildir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til að ljúka málum með slíkum hætti. Í sátt felst að máls­að­ili, í þessu til­felli Íslands­banki, gengst við að hafa brotið gegn ákvæðum laga eða ákvörð­unum Fjármála­eft­ir­lits­ins, upp­lýsi að fullu um brotið og geri sam­komu­lag við stofn­un­ina um til­tekna sektar­greiðslu. Auk þess þarf að liggja fyrir að bank­inn hafi þá þegar látið af þeirri hátt­semi sem braut gegn lögum og að hann hafi gert við­eig­andi úrbætur.

Sektin miklu hærri en bankinn reiknaði með

Þegar Íslands­banki birti árs­reikn­ing sinn þann 9. febr­úar kom fram að bank­inn gerði ráð fyrir því að greiða stjórn­valds­sekt vegna brota á lögum og reglum í tengslum við sölu­ferlið. Bankinn færði sér­staka skuld­bind­ingu vegna þessa í árs­reikn­ing­inn. For­svars­menn Íslands­banka vildu á þeim tíma ekki upp­lýsa um hversu há sú upp­hæð sem bank­inn reikn­aði með að greiða í sekt sé.

Í til­kynn­ingu Íslands­banka til Kaup­hallar, sem birt var í gær­kvöldi, kom fram að hin sér­staka skuld­bind­ing sem færð var í árs­reikn­ing­inn hafi verið allt of lág, eða 300 millj­ónir króna. Vegna þessa þarf Íslands­banki, sem er enn í 42,5 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, að gjald­færa 860 millj­ónir króna til við­bótar í upp­gjöri sínu fyrir annan árs­fjórð­ung yfir­stand­andi árs. Því er end­an­leg sekt næstum fjórum sinnum sú upp­hæð sem Íslands­banki reikn­aði með að þurfa að greiða þegar bank­inn birti árs­reikn­ing sinn í febr­úar.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VH
    Viðar Hjartarson skrifaði
    "Allt er það eins liðið hans Sveins".!
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Ef rett er smkv. skyrslunnu að lögbrot hafi verið framin ber að lögsækja
    þa sem þar koma að mali.það vita þeir sem vita vilja hverjir það
    eru.
    Eg segi ennu aftur segið af ykkur STRAX OG AXLIÐ einusinni abyrgð.
    Birna og co, þið eruð ekki osnertanleg þid eru veruleikafyrrt,abyrgðalaust "folk" sem
    sem vasat með peninga annara og ættu að að hundskast burt STRAX MEÐ SKOTTIÐ A
    MILLI LAPPANNA.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár