Katrín, Bjarni og Lilja funda um lögbrot Íslandsbanka

Sátt Íslands­banka og Fjármála­eftirlitsins verður til umræðu á fundi þriggja ráðherra á morgun.

Ráðherrar
Ráð­herrar Lilja Alfreðs­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son eiga sæti í nefnd­inni. Mynd: Heimildin / JIS

Fundur hefur verið boðaður í ráðherra­nefnd um efnahagsmál og endur­skipulagningu fjármála­kerfisins vegna sáttar Íslands­banka og Fjármála­eftirlitsins. Lilja Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra, staðfesti þetta í samtali við Heimildina. 

Hún á fast sæti í nefndinni ásamt Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra og Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra. 

Nefndin mun funda um sáttina, en vegna hennar mun Íslands­banki greiða 1,2 milljarða króna sekt vegna lögbrota við framkvæmd einka­væðingar á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum sjálfum. 

Funda á morgun

Hlutverk nefndarinnar er að „samræma stefnu ríkis­stjórnarinnar í efnahags­málum og hafa eftirlit með framkvæmd efnahags­stefnunnar á einstökum sviðum.“

Verkefni hennar eru m.a. framtíðar­skipulag peninga­mála og samræming í fjármálum hins opinbera til skemmri og lengri tíma. Henni er jafnframt ætlað að „vera vettvangur samráðs og samræmingar við endur­skoðun fjármála­kerfisins í samræmi við þá áherslu í sáttmála ríkis­stjórnar að breið sátt náist um endur­skipulagningu fjármála­kerfisins á Íslandi.“

Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar verður fundurinn haldinn strax …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    bjarN1 benediktsson er ekki stjórnmálamaður, hann er foringi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisglæpasamtakanna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár