Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
Fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra „Mér heyr­ist að hér sé í upp­sigl­ingu eins konar póli­tískur fundur sem á að nýt­ast til þess að velta sér upp úr löngu liðnum hlutum sem ég hef nú þegar axlað ábyrgð á,“ sagði Bjarni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra segir það aug­ljóst að ekki hafi verið hægt að fylgja hæf­is­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins gagn­vart hverjum og einum kaup­anda við söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars 2022. Þetta hafi verið vegna þess að sölu­með­ferðin byði ekki upp á það sökum þess hraða sem þurfti að vera á henni. Banka­sýsla rík­is­ins hafi enn fremur verið sú sem lagði til þessa sölu­með­ferð, ekki Bjarni, þótt hann hafi sam­þykkt hana. 

Þetta kom fram á opnum fundi stjórn­skip­unar- og efir­lits­nefndar í morgun. Til­gang­ur­inn var að óska eftir nán­ari skýr­ingum frá fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra á ráð­gjöf sem hann fékk við sölu á Íslands­banka. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, var sú sem óskaði eftir fund­inum.

Í svörum sínum á fund­inum sagði Bjarni að þingið hefði aldrei gert athuga­semdir við það að þessi til­tekna sölu­með­ferð væri notuð. Hann hafi þar af leið­andi gert ráð fyrir því að hann hefði blessun þings­ins fyrir fram­kvæmd­inni. …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    „Ég fæ sterklega á tilfinninguna” að einu völdin þessum manni samboðin séu hvort hann skilur klósettsetuna eftir uppi eða niðri
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Tvö af helstu einkennum siðblindingja eru fyrst og fremst að hafa enga samkennd með öðrum og svo auðvita það að ef þeim verður á eða brjóta eitthvað af sér.
    Þá er það ALLTAF einhverjum ÖÐRUM að KENNA en þeim SJÁLFUM.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár