Krefst þess að kaupendur í útboðinu verði nafngreindir

Nöfn þeirra sem ekki uppfylltu skilyrði til þess að kaupa hlut í Íslands­banka við sölu ríkisins á hlut í bankanum eru enn á huldu. Þing­flokks­formaður Pírata vill nöfnin fram í dags­ljósið.

Þingflokksformaður
Þing­flokks­for­maður „Ég lít svo á að þessi sátt sé til þess fallin að koma fólki undan ábyrgð frekar en að taka hana,“ segir Þór­hildur Sunna. Mynd: Bára Huld Beck

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, formaður þing­flokks Pírata, krefst þess að kaupendur sem ekki uppfylltu skilyrði útboðs á hlut ríkisins í Íslands­banka en fengu samt að kaupa hluti í bankanum verði nafn­greindir. Nöfn þeirra hafa verið útmáð í sátt Íslands­banka og fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands sem var birt opinber­lega í morgun. 

„Hér var gefinn aðgangur að takmörkuðum gæðum sem átti að vera lokaður almenningi,“ segir Þórhildur Sunna í samtali við Heimildina. „Nú er komið í ljós að það eru ákveðnir aðilar í þessu ferli sem fengu að taka þátt í útboðinu þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði útboðsins. Þá vaknar auðvitað spurningin: Hvaða aðilar eru það sem fengu þennan aðgang umfram aðra sem fengu hann ekki?“

Frekar til þess fallin að koma fólki undan ábyrgð

Íslands­banki mun greiða 1,2 milljarða króna sekt í ríkissjóð vegna sáttarinnar. Er það sögulega há sekt, sú hæsta síðan Arion Banki greiddi sekt upp …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Uuuuuu gengið er núna 114 sem er 3 krónum lægra en það var í þessu útboði (117kr). Held að þeir sem fengu ekki að borga 117 krónurnar hafi engan áhuga á að borga 117krónur fyrir ISB núna.
    -1
  • Geir Gudmundsson skrifaði
    Með fyrirvara að ég veit lítið um þessi mál, þá sagði fagfjárfestir mér að hver sem er getur látið skrá sig sem fagfjárfestir. Eini munurinn á fagfjárfesti og almennum fjárfesti er að fjármálastofnanir hafa ekki skyldu til að upplýsa og fræða fagfjárfesti um áhættuna af viðskiptunum. Gert er ráð fyrir að fagfjárfestir beri einn alla ábyrgð á viðskiptunum, en þegar selt er til almenns fjárfestis, þá getur fjármálastofnunin borið ábyrgð að viðskiptunum að hluta. Fagfjárfestar afþakkar sem sagt lágmarks neytendavörn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár