„Þetta lítur ekki vel út“

Stefnt er að því að fá full­trúa fjár­mála­eft­ir­lits­ins á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis vegna Íslands­banka­máls­ins næst­kom­andi mið­viku­dag. Sá fundur verður þó lok­aður fyrir almenn­ingi. Ágúst Bjarni Garð­ars­son, 1. vara­for­maður nefnd­ar­innar, segir að málið slái hann illa.

„Þetta lítur ekki vel út“
Vill klára lest­ur­inn Ágúst sagði í sam­tali við Heim­ild­ina að hann vildi klára lest­ur­inn á sátt­ar­gjörð Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­litið áður en hann úttal­aði sig um málið. „Það slær mig illa,“ sagði hann um það sem hann var þegar búinn að lesa.

Stefnt er að því að efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis fundi næst­kom­andi mið­viku­dag og fjalli þar um þær upp­lýs­ingar sem fram koma í sátt­ar­gjörð Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­litið. Þetta stað­festir Ágúst Bjarni Garð­ars­son, 1. vara­for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Spurður hvernig hann meti þær upp­lýs­ingar sem í sátt­ar­gjörð­inni koma fram sagði Ágúst um eitt leytið í dag að hann væri byrj­aður að fara yfir skjalið en ætti eftir að lesa það allt. „Það slær mig illa en ég á eftir að lesa þetta allt saman staf­anna á milli og ætla að klára það áður en ég segi meira.“

„Nei, hann verður lok­aður“
Ágúst Bjarni Garð­ars­son
um fyr­ir­hug­aðan fund efna­hags- og við­skipta­nefndar

Spurður enn fremur hvort hann teldi, miðað við það sem hann hefði þó þegar séð, að ein­hverjir þeir aðilar sem ábyrgð bæru á ferl­inu, til að mynda banka­stjóri og banka­stjórn þyrftu að víkja, sagði Ágúst að rétt væri að blaða­maður heyrði aftur í honum síðar í dag, þegar hann hefði lokið við lest­ur­inn. „En þetta lítur ekki vel út.“ Ágúst svar­aði ekki í síma klukkan 15:00 þegar Heim­ildin reyndi að hafa sam­band við hann aftur.

Stefnt er að því að halda fund í efna­hags- og við­skipta­nefnd klukkan 11:00 á mið­viku­dag­inn næsta vegna máls­ins, segir Ágúst Bjarni, og hefur nefnd­ar­rit­ari sett sig í sam­band við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans til að fá full­trúa þaðan á fund­inn. Ekki er þó stað­fest enn sem komið er að hægt verði að halda fund­inn þá en segir Ágúst Bjarni að hann geri ráð fyrir því. Spurður hvort að fund­ur­inn verði opinn svarar Ágúst Bjarni: „Nei, hann verður lok­aður.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár