Kristrún Frostadóttir: Eðlilegt að bankastjóri og stjórn víki en ábyrgðin liggur hjá Bjarna

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að upp­lýs­ingar sem birt­ast í sátt­ar­gjörð fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Íslands­banka vegna söl­unnar á hlut rík­is­ins séu risa áfell­is­dómur yfir bank­anum. Hins vegar séu lög skýr um það hver það sé sem beri ábyrgð á sölu­ferl­inu. „Það er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.“

Verða að axla pólitíska ábyrgð
Verða að axla póli­tíska ábyrgð Kristrún segir að rík­is­stjórnin verði að axla póli­tíska ábyrgð á sölu­ferli Íslands­banka, í það minnsta með því að hleypa öllum stað­reyndum máls­ins upp á yfir­borðið. Það verði aðeins gert með skipun rann­sókn­ar­nefndar sem fari yfir málið allt. Mynd: Baldur Kristjánsson

„Þetta er risa áfell­is­dómur yfir Íslands­banka, hvernig var að þessu staðið, það sjá það allir. Þetta vekur líka upp spurn­ingar um hvers konar skila­boð fjár­mála­kerfið hefur verið að fá frá ráða­mönnum og eft­ir­lit­stofn­unum ef að bank­inn taldi þetta bara eðli­lega hegðun.“

Þetta segir Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem við­bragð við þeim upp­lýs­ingum sem má finna í sátt­ar­gjörð Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands, vegna þeirra brota á lögum og reglum sem bank­inn varð upp­vís að við útboð og sölu á tæp­lega fjórð­ungs hlut rík­is­sjóðs í bank­anum í mars á síð­asta ári.

Kristrún segir að þó að í sátt­ar­gjörð­inni felist áfell­is­dómur yfir stjórn­endum Íslands­banka megi ekki horfa fram­hjá því hver það sé sem beri höf­uð­á­byrgð á söl­unni. Sem sagt Bjarni Bene­dikts­son. „Lögin eru mjög skýr um það hver ber ábyrgð á sölu­ferl­inu, og það er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra,“ segir Kristrún.

Fókusinn verður líka að vera á pólitíkinni

Þegar að útboðið fór fram var eign­ar­hlutur rík­is­ins í Íslands­banka 65 pró­sent. Í útboð­inu var 22,5 pró­senta hlutur seldur sem þýðir að ríkið var ekki lengur meiri­hluta eig­andi í bank­anum og á nú 42,5 pró­senta hlut. Áður, árið 2021 hafði ríkið selt 35 pró­senta hlut í bank­anum. Ríks­sjóður var því meiri­hluta­eig­andi bank­ans þegar að útboð­inu kom og eftir það er ríkið enn stærsti eig­andi bank­ans, þó það sé orðið minni­hluta­eig­andi.

„Fyrir mitt leyti fynd­ist mér eðli­leg ákvörðun að þau segðu af sér“
Kristrún Frosta­dóttir

Í sátt­ar­gerð­inni milli fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Íslands­banka kemur fram hörð gagn­rýni á Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra og stjórn bank­ans. Spurð hvort hún telji að Birnu og stjórn bank­ans sé sætt áfram svarar Kristrún: „Það er kannski ekki mitt að segja en auð­vitað verður að velta því fyrir sér ef fólk situr í stöðum sem þessum, fær greitt sam­kvæmt ábyrgð og er höfuð stofn­unar á það vissu­lega að bera ábyrgð á verk­efnum fyr­ir­tæk­is­ins. Fyrir mitt leyti fynd­ist mér eðli­leg ákvörðun að þau segðu af sér. En ég legg áherslu á að fók­us­inn verði ekki ein­göngu á per­sónur og leik­endur á fram­kvæmda­stigi máls­ins. Lagaleg ábyrgð nær líka til fjár­mála­ráð­herra og til póli­tík­ur­innar. Þetta er mik­ill álits­hnekkir, bæðir fyrir sölu á rík­is­eignum og fyrir fjár­mála­mark­að­inn í heild sinni. Það er ábyrgð­ar­hluti að leyfa tveimur svona svörtum skýrslum að koma út og ætla síðan ekki að axla póli­tíska ábyrgð, í það minnsta með því að hleypa öllu upp á yfir­borðið.“

Vísar Kristrún þar til kröfu sinnar, og stjórn­ar­and­stöð­unnar, um að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd sem fari yfir útboðs- og sölu­ferlið allt, þar með talið aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. „Það er ekki verið að selja hvaða eign sem er. Þessi sala er rann­sökuð að eigin frum­kvæði fjár­mála­eft­ir­lits­ins, það er ekki gert að beiðni rík­is­stjórn­ar­innar. Það að við séum að tala um félag í eigu rík­is­ins, sölu sem að færir eign­ar­hlut þess úr meiri­hluta í minni­hluta í bank­anum, þá finnst manni merki­legt að for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar telji sig geta algjör­lega firrt sig ábyrgð á ferl­inu um leið og þessi sátta­skýrsla kemur út. Þau hljóta að hugsa sinn gang þegar að tveir þættir í þessu sölu­ferli, ann­ars vegar aðkoma Banka­sýsl­unnar og hins vegar aðkoma Íslands­banka, eru gagn­rýnd svona harka­lega,“ segir Kristrún en þeir tveir þættir sem hún nefnir eru ann­ars vegar rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins og hins vegar úttekt rík­is­end­ur­skoð­unar sem var birt í nóv­em­ber í fyrra.

Ítrekar kröfu um skipun rannsóknarnefndar

„Það kom fram í skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda að Banka­sýslan hefði ekki gefið sölu­að­ilum bein fyr­ir­mæli eða leið­bein­ingar um fram­kvæmd söl­unnar, og rík­isennd­ur­skoð­andi telur líka að Banka­sýslan hafi van­rækt að tryggja að vinna umsjón­ar­að­ila útboðs­ins hafi verið sam­stillt og skil­virkt. Núna koma fram upp­lýs­ingar um að Íslands­banki hafi að ein­hverju leyti blekkt Banka­sýsl­una. Það liggur því orðið alveg fyrir að það er algjört ábyrgð­ar­leysi alveg niður keðj­una í þessu máli. Auðvitað á Íslands­banki að bera ábyrgð á sínum hlut og Banka­sýslan líka en lögin um sölu á bönkum í eigu rík­is­ins eru skýr. Höf­uð­á­byrgð­ina ber fjár­mála­ráð­herra,“ segir Kristrún.

„Sölu­að­ilum úti í bæ virð­ist hafa verið treyst í blindni til að selja rík­is­eign, eft­ir­lits­lítið eða eft­ir­lits­laust“
Kristrún Frosta­dóttir

Upp­lýs­ing­arnar sem nú eru komnar fram er þess eðlis, að mati Kristrúnar, að nauð­syn­legt sé að skipa rann­nsókn­ar­nefnd sem velti við öllum steinum. Ef ekki verði áfram­hald­andi tor­tryggni ríkj­andi við sölu á rík­is­eignum í fram­tíð­inni og í sam­skiptum við fjár­mála­stofn­anir. Upp­lýs­ing­arnar sem fram séu komnar séu í besta falli brota­kenndar og taki lítt eða ekki á aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. „Þetta stað­festir þá til­finn­ingu sem vakn­aði fyrir rúmu ári síðan, að þetta sölu­ferli virð­ist hafa verið á ein­hvers konar sjálf­stýr­ingu. Sölu­að­ilum úti í bæ virð­ist hafa verið treyst í blindni til að selja rík­is­eign, eft­ir­lits­lítið eða eft­ir­lits­laust,“ segir Kristrún. Samkvæmt könnun Maskínu frá því í nóv­em­ber á síð­asta ári sögð­ust ríf­lega 60 pró­sent aðspurðra vilja að Alþingi setti á fót rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka söl­una.

Gert ráð fyrir sölu á eftirstandandi hlut á þessu ári

Í sömu könnun svör­uðu 63 pró­sent aðspurðra því til að þeir treystu núver­andi rík­is­stjórn illa til að selja eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Heimild er til staðar í fjár­lögum yfir­stand­andi árs til að selja hlut­inn og er gert ráð fyrir því að tæpir 76 millj­arðar króna fengjust fyrir hann. Spurð hvort að hún telji að það sé ger­legt að selja eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í bank­anum á þessu ári miðað við það sem nú er komið fram segir Kristrún að hún telji svo ekki vera. „Allt sem hefur verið leyft að kanna í mál­inu hefur komið mjög illa út fyrir rík­is­stjórn­ina, mjög illa út fyrir sölu­ferlið, og auð­vitað er ekki hægt að segja að þetta verði loka­punkt­ur­inn í rann­sókn á mál­inu. Það væri mjög sér­stakt að mínu mati ef að nið­ur­staðan í mál­inu yrði að leggja niður banka­sýsl­una og banka­stjóri, eða stjórn bank­ans myndi víkja, en eng­inn tekur ábyrgð í for­ystu­liði rík­is­stjórn­ar­innar.

Ef að hug­myndin er að læra af þessu og fá fram í dags­ljósið hvernig svona getur gerst. Ef að stjórn­mála­menn­irnir, rík­is­stjórnin, vilja meina að allt sem þau gerðu hafi verið rétt en allt mis­fórst fyrir neðan þau, þá þurfum við að vita hvernig það getur í raun gerst. Öruggast leiðin til þess er að skipa rann­sókn­ar­nefnd sem skili skýrslu um það hvernig það megi vera, eins og rík­is­stjórnin heldur fram, að póli­tíkin hafi staðið sig upp á punkt og prik en allt annað hafi farið úrskeiðis. Ég hef auð­vitað mínar efa­semdir um að það sé stað­reyndin, en ég verð hins vegar manna fyrst til að fagna því ef að svo hefur verið.“

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    "Eðlilegt að bankastjóri og stjórn víki en ábyrgðin liggur hjá Bjarna"
    Og auðvita á bjarN1 ben að víkja líka og þó fyrr hefði verið!
    Enda er bjarN1 benediktsson ekki stjórnmálamaður, hann er foringi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisglæpasamtakanna.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Eðlilegt að bankastjóri og stjórn víki en ábyrgðin liggur hjá Bjarna"
    En ekki sá sem ber ábyrgðina?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár