Rýmkuðu reglur um viðskipti starfsmanna stuttu fyrir einkavæðingu

Rúmu ári áður en Íslands­banki hafði umsjón með útboði á hlut rík­is­ins í bank­anum, slak­aði bank­inn á reglum sem fram að því höfðu bannað starfs­mönnum að taka þátt í útboð­inu. Þetta gerði bank­inn á sama tíma og yfir­völd inn­leiddu hér lög­gjöf sem var ætlað að setja enn strang­ari skyldur um hags­muna­á­rekstra.

Rýmkuðu reglur um viðskipti starfsmanna stuttu fyrir einkavæðingu
Þrýst­ingur inn­an­húss Stjórn­endur og starfs­menn virð­ast hafa náð því í gegn að rýmka reglur um þátt­töku starfs­manna í við­skiptum sem bank­inn hafði umsjón með, á sama tíma og verið var að leggja línur um auknar og strang­ari áherslur á hags­muna­á­rekstra í fjár­mála­kerf­inu. Það þykir fjár­mála­eft­ir­lit­inu skjóta skökku við. Mynd: Íslandsbanki

„Fjár­mála­eft­ir­litið telur skjóta skökku við að máls­að­ili hafi gert breyt­ingar á innri reglum í þá átt að rýmka heim­ildir starfs­manna til að taka þátt í útboðum sem hann hefur umsjón með, í aðdrag­anda gild­is­töku laga um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga, sem fela í sér strang­ari skyldur um hags­muna­á­rekstra,“ segir í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, sem kom út í morgun.

Umrædd breyt­ing á reglum bank­ans var gerð áður en ríkið seldi fyrstu hlut­ina í Íslands­banka sum­arið 2021. Það er að segja rúmu ári áður en lok­aða útboðið fór fram í mars 2022. Eins og rakið er í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans um fram­kvæmd bank­ans á því útboði, voru eldri reglur bank­ans þannig að stjórn­endur bank­ans og starfs­menn í verð­bréfa­miðlun og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans, máttu ekki taka þátt í við­skiptum sem bank­inn hafði umsjón með. 

„[B]reyt­ing á reglum máls­að­ila virð­ist hafa verið gerð vegna þrýst­ings frá stjórn­endum og starfs­mönnum“
…
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár