Rannsóknin á Íslandsbanka snýst um kaup starfsmanna hans á hlutabréfum ríkisins

Afar lík­legt er að fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands birti ítar­lega grein­ar­gerð eða skýrslu um rann­sókn­ina á aðkomu Íslands­banka að útboði hluta­bréfa rík­is­ins í honum í fyrra. Fordæmi er fyrir slíku. Það sem Íslands­banki hræð­ist hvað mest í rann­sókn­inni er ekki yfir­vof­andi fjár­sekt heldur birt­ing nið­ur­staðna rann­sókn­ar­innar þar sem atburða­rásin verður teiknuð upp með ítar­legum hætti.

Rannsóknin á Íslandsbanka snýst um kaup starfsmanna hans á hlutabréfum ríkisins
Seldur Fyrsta skrefið í einka­væð­ingu Íslands­banka var stigið sum­arið 2021, og bank­inn skráður á markað í kjöl­farið. Það þótti ganga vel. Næsta skref, sem stigið var í mars í fyrra, er mun umdeild­ara. Mynd: Nasdaq Ísland

Rannsókn fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á meintum lög­brotum Íslands­banka við sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í bank­anum í mars í fyrra snýst fyrst og fremst um þátt­töku starfs­manna bank­ans og tengdra aðila í  útboði á bréfum í Íslands­banka. Um lokað útboð var að ræða og ein­ungis svo­kall­aðir þeir sem skil­greindir voru sem fag­fjár­festar áttu að fá að taka þátt. Alls urðu kaup­endur á end­anum 207 tals­ins. Ekki er talið að aðrir sölu­ráð­gjafar en Íslands­banki hafi gerst brot­legir við lög og reglur.

Bankinn fékk frum­mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins í mál­inu afhent fyrir ára­mót. Þann 9. jan­úar sendi Íslands­banki til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands um að hann hefði óskað ein­hliða eftir við­ræðum við eft­ir­litið um að ljúka mál­inu með sátt. 

Af þeim 207 voru átta starfs­menn Íslands­banka, sem var sölu­ráð­gjafi í ferl­inu, eða makar þeirra. Bankinn hélt því fram í fjöl­miðlum í apríl í fyrra að allir starfs­menn­irnir væru skil­greindir sem fag­fjár­festar, sem var for­senda fyrir því að fá að kaupa. Við rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins hefur komið fram að Íslands­banki hafi sjálfur skil­greint að minnsta kosti hluta þess­ara starfs­manna sem fag­fjár­festa. Hann hefur þó ekki viljað svara því hversu margir fjár­festar fengu flokkun sem fag­fjár­festar á þeim klukku­tímum sem sölu­ferlið stóð yfir. 

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið, sem birt var í nóv­em­ber, kom fram að fjár­festar, sem höfðu ekki verið í við­skiptum við Íslands­banka fram að sölu­deg­inum, hafi haft mögu­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­festar meðan á söl­unni stóð. Í skýrsl­unni segir: „Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar en bank­inn þurfti að meta upp­lýs­ingar þess efnis sjálf­stætt.“ 

Í skýrsl­unni segir enn fremur að Banka­sýslan hafi metið það svo að reglu­verk fjár­mála­mark­að­ar­ins væri með þeim hætti að slíkar innri reglur umsjón­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila kæmu í veg fyrir hags­muna­á­rekstra í söl­unni. „Ljóst er að innri reglur Íslands­banka komu ekki í veg fyrir slíkt.“

Sjaldgæft umfang á samtímarannsókn

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er afar sjald­gæft að fjár­mála­eft­ir­litið fari í eins stóra sam­tíma­rann­sókn á máli sem teng­ist starf­semi banka. Fjöl­margar ítar­legar rann­sóknir á meintum fjár­mála­glæpum voru gerðar hér á landi eftir hrunið 2008 en þær sner­ust flestar um mál sem orðin voru nokk­urra ára gömul. Rann­sóknin á útboð­inu í Íslands­banka er því án hlið­stæðu hér á landi á síð­ustu árum.

Miðað við það sem fyrir liggur að er undir í rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins þá er alls ekki ljóst að það hafi verið rétt mat hjá Íslands­banka að skil­greina ætti alla þessa starfs­menn sem fag­fjár­festa. Komið hefur fram að ein­staka starfs­menn bank­ans hafi keypt hluta­bréf í útboð­inu fyrir til­tölu­lega lágar upp­hæðir, nokkrar millj­ónir króna. Það bendir til þess að Íslands­banki og starfs­menn hans hafi gengið út frá því að list­inn með kaup­endum hluta­bréf­anna yrði ekki opin­ber, eins og síðar varð raunin. Komið hefur fram opin­ber­lega að bank­inn hafi vitað um þátt­töku starfs­manna sinna í útboð­inu þannig að hluta­bréfa­kaupin áttu sér stað með vit­und og vilja stjórn­enda Íslands­banka.

Hræðast opinberun, ekki sekt

Það er Íslands­banki, ekki starfs­menn­irnir sem keyptu, sem Fjár­mála­eft­ir­litið rann­sak­aði, og er nú í við­ræðum við um hversu háa sekt hann eigi að greiða vegna máls­ins. Ákvörðun um sekt­ina, og eins hvernig greint verður frá rann­sókn­inni opin­ber­lega, er á hendi fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar Seðla­banka Íslands. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er það þó ekki mögu­leg fjár­sekt, eða upp­hæð hennar, sem Íslands­banki hræð­ist mest í mál­inu heldur að fjár­mála­eft­ir­litið muni birta ítar­lega skýrslu eða grein­ar­gerð með rann­sókn­ar­nið­ur­stöðum sínum. 

Í slíkri skýrslu yrði atburða­rásin í mál­inu teiknuð upp frá A til Ö og sýnt fram á með hvaða hætti Íslands­banki er tal­inn hafa brotið lög og reglur. Birting slíkra upp­lýs­inga gæti haft í för með sér orð­spors­á­hættu fyrir bank­ann og ýtt undir enn gagn­rýnni umræðu um ábyrgð hans og ein­stakra stjórn­enda. 

Fordæmi eru fyrir því að fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands hafi birt ítar­legar upp­lýs­ingar um sektir fjár­mála­fyr­ir­tækja og for­sendur þeirra. Þetta gerð­ist meðal ann­ars árið 2020 þegar Arion banki var sektaður um tæp­lega 88 millj­ónir króna fyrir að greina ekki nægj­an­lega tíma­lega frá hóp­upp­sögnum í bank­anum. Þá var birt ítar­leg ákvörðun á alls 18 síðum. Í henni var farið yfir máls­at­vik, máls­með­ferð eft­ir­lits­ins, laga­grund­völl og sjón­ar­mið bank­ans áður en greint var frá ítar­lega rök­studdri nið­ur­stöðu á alls níu blað­síðum. Í því til­felli var þó ekki um sátt að ræða, heldur ein­hliða álagn­ingu stjórn­valds­sektar. Arion banki sætti sig ekki við nið­ur­stöð­una og stefndi fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir dóm­stóla. Eft­ir­litið var sýknað af kröfum hans í apríl í fyrra en Arion banki áfrýj­aði þeirri nið­ur­stöðu til Lands­réttar. 

Íslands­banka­málið er umtals­vert stærra mál, sem vakti þjóð­ar­at­hygli, en Arion banka-málið og búist er við að fjár­sektin í því verði miklu hærri. Miðað við umfang rann­sókn­ar­innar sem fjár­mála­eft­ir­litið réðst í liggur einnig fyrir að skýrsla um ákvörðun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar að sekta Íslands­banka vegna brota á lögum og reglum í útboð­inu verði tals­vert lengri en þær 18 síður sem nefndin birti um mál Arion banka. 

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár