Mál skrifstofustjórans: Meiri möguleiki á spillingu við lagabirtingar á Íslandi

Ísland er eft­ir­bátur hinn Norð­ur­land­anna, nema Noregs, þegar kemur að skýrum og nið­ur­njörv­uðum reglum um birt­ingu nýrra laga. Mál Jóhanns Guð­munds­sonar hefur leitt til þess að breyt­ingar kunni að verða gerðar á lögum og reglum um birt­ingar á lögum hér á landi.

Mál skrifstofustjórans: Meiri möguleiki á spillingu við lagabirtingar á Íslandi
Skýrari og nið­ur­njörv­aðri reglur Reglur um birt­ingu laga og gild­is­töku þeirra eru skýr­ari í Danmörku, Finn­landi og Svíþjóð en á Íslandi. Meg­in­reglan er að birta eigi lög strax eða eins hratt og hægt er. Ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar lét fresta birt­ingu laga um fisk­eldi um þrjá daga í fyrra. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Meiri mögu­leiki er á óeðli­legum afskiptum emb­ætt­is­manna eða stjórn­mála­manna af birt­ingu og þar með gild­is­töku laga á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Ástæðan fyrir þessu er að lög og reglur um hvernig skuli haga birt­ingu laga á Íslandi eftir að Alþingi hefur sam­þykkt þau eru ekki eins fast­mót­aðar og í Danmörku, Svíþjóð og Finn­landi. Þetta þýðir að ráðu­neyti og ráð­herrar á Íslandi geta stýrt því í meiri mæli en ráðu­neyti og ráð­herrar á Norð­ur­lönd­unum hvenær lög frá við­kom­andi aðilum eru birt eftir að þjóð­höfð­ingi við­kom­andi lands, for­set­inn í Finn­landi til dæmis, hefur und­ir­ritað lögin. 

Þetta má sjá þegar ákvæði í lögum og reglum um laga­birt­ingar á Íslandi og Norð­ur­lönd­unum eru borin saman. 

Mál skrif­stofu­stjór­ans á skrif­stofu fisk­eldis og sjáv­ar­út­vegs í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Jóhanns Guð­munds­sonar, hefur gert það að verkum að hluti nefnd­ar­manna í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mál Jóhanns Guðmundssonar

Mál skrifstofustjórans talið sýna þörf á strangari reglum um snúningsdyravandann
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Mál skrif­stofu­stjór­ans talið sýna þörf á strang­ari reglum um snún­ings­dyra­vand­ann

Tvær þing­konur Sam­fylk­ing­ar­innar segja að laga­setn­ing til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra hjá fólki í opin­berum störfum þurfi að vera strang­ari. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir segir að mál skrif­stofu­stjór­ans og lög­fræð­ings­ins í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sýni fram á þetta.
Skrifstofustjóri í ráðuneyti sendi trúnaðargögn til ráðgjafa Arnarlax
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti sendi trún­að­ar­gögn til ráð­gjafa Arnarlax

Skrif­stofu­stjór­inn í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi vill fá rúm­lega 30 millj­ónir króna frá rík­inu vegna ólög­mætrar upp­sagnar. Í dómi í máli hans er sagt frá því hvernig sam­skiptum hans við ráð­gjafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax var háttað. Ráð­gjaf­inn var fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans í ráðu­neyt­inu.
Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arnarlaxi í ráðuneytinu
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arn­ar­laxi í ráðu­neyt­inu

Kæra vegna hátt­semi Jóhanns Guð­munds­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sner­ist um að hann hefði gengið erinda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax. Jóhann beitti sér fyrir því að gild­is­töku laga um lax­eldi yrði seinkað um sum­arið 2019. Arnarlax skil­aði inn gögnum um lax­eld­is­á­form sín einum degi áður en lögin tóku eftir að Jóhann lét seinka gild­is­töku þeirra.
Skrifstofustjóri í ráðuneyti var til rannsóknar hjá héraðssaksóknara
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti var til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara

Mál Jóhanns Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi skristofu­stjóra í atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem kom að því að láta fresta gild­is­töku nýrra laga um fisk­eldi sum­arið 2020 var sent til lög­regl­unnar og hér­aðs­sak­sókn­ara. Rannsókn máls­ins var hins vegar felld niður þar sem ekki var talið að um ásetn­ing hefði verið að ræða. Fjallað er um málið í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sjó­kvía­eldi á Íslandi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár