Skrifstofustjóri í ráðuneyti sendi trúnaðargögn til ráðgjafa Arnarlax

Skrif­stofu­stjór­inn í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi vill fá rúm­lega 30 millj­ónir króna frá rík­inu vegna ólög­mætrar upp­sagnar. Í dómi í máli hans er sagt frá því hvernig sam­skiptum hans við ráð­gjafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax var háttað. Ráð­gjaf­inn var fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans í ráðu­neyt­inu.

Ráðuneytið gagnrýndi samskipti við Arnarlax
Ráðu­neytið gagn­rýndi sam­skipti við Arnarlax Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið gagn­rýndi nokkur til­felli þar sem Jóhann Guð­munds­son skrif­stofu­stjóri fisk­eldis þótti hafa verið í óeðli­legum sam­skiptum við ráð­gjafa hjá Arn­ar­laxi sem áður starf­aði í ráðu­neyt­inu. Á mynd­inni sjást sjó­kvíar Arnarlax í Arn­ar­firði.

Skrif­stofu­stjóri sem stýrði sviði fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu var í margs konar sam­skiptum við ráð­gjafa hjá Arn­ar­laxi í aðdrag­anda setn­ingar nýrra laga um lax­eldi. Yfir­stjórn ráðu­neyt­is­ins þótti þessi sam­skipti óeðli­leg. Ráðgjafi Arnarlax, sem áður hafði starfað í ráðu­neyt­inu, fékk meðal ann­ars send drög að reglu­gerð um fisk­eldi frá skrif­stof­stjór­anum nokkrum mán­uðum áður en þau voru birt opin­ber­lega.

„Ég hef ekk­ert við þig að tala um þetta mál.“
Baldur Pálmi Erlings­son,
fyrr­ver­andi starfs­maður ráðu­neyt­is­ins og ráð­gjafi Arnarlax

Þetta kemur fram í dómi í skaða­bóta­máli skrif­stofu­stjór­ans, Jóhanns Guð­munds­sonar, gegn íslenska rík­inu. Jóhann telur að honum hafi verið sagt upp í ráðu­neyt­inu með ólög­mætum hætti og krefst hann rúm­lega 30 millj­óna króna vegna þess. Dómurinn féll í fyrra­sumar en var ekki birtur á vef Hér­aðs­dóms Reykja­víkur fyrr en í gær vegna þess að láðst hafði að gera það. Búið er …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • AK
    Anna Kjartansdóttir skrifaði
    Ingi Freyr. Fyrir hvaða málsstað berst þú með þessum einstrengingslegu skrifum? Málaferlum er ekki lokið. Þú ræðst að einum (fyrrverandi) embættismanni. Ég hef áður skorað á þig að greina aðalatriðin. Ég skora á þig að sýna að minnsta kosti lit í því að sýna fleiri hliðar máls. Stjórnmálin á Íslandi eru ónýt. Stjórnsýslan er í molum. Sjókvíaeldið er beinlínis glæpur. Og þú leggur allt undir að fá fólk til að trúa öllu illu um mann (vissulega innan stjórnsýslunnar) sem missti vinnuna, ég held að ósekju. Þetta jaðrar við eða eru persónuárásir finnst mér. Ég er búin að styrkja útgáfu Stundarinnar lengi en fréttamennska þín reynir á þolrifin, ég kaupi ekki kvöldblöðin. Við erum ekki stödd á fésbók, þú ert að skrifa á síðum sem ég taldi stunda blaðamennsku, helst alvöru blaðamennsku, kannski rannsóknablaðamennsku. Með svona fréttaflutningi gangið þið bara erinda þeirra sem hafa hag af því að kastararnir beinast annað en að þeim.
    Gefðu mér slóð á dóminn og ég skal lesa. Gefðu mér slóð á bréf. Sýndu mér upplýsingar um þessi margs konar samskipti sem þú talar um og ég reyni að leggja mat á það. Ég treysti þér hér eftir ekki fyrir því að miðla þessu eða öðru með virðingu fyrir dómgreind okkar. Ég geri þá kröfu á Heimildina að hún sé gagnrýnin og rýni í heimildir og gæti að sanngirni í umfjöllun. Það er nóg af hinu draslinu, ókeypis. Á öðrum miðli (sem ég fylgist þó ekki með) en þínum segir þetta: https://www.bb.is/2023/02/heradssaksoknari-seiknun-a-birtingu-fiskeldislaga-til-thess-ad-firra-rikid-skadabotaabyrgd/ Getur þetta og fleira sem stendur í greininni kannski staðist? Ertu búinn að svara mér því hvort ekki séu fleiri dæmi um þriggja daga frestun á birtingu laga? (Ekki að ég ætli að verja slíkan gjörning) Ef JG og ráðherrann KÞJ stæðu frammi fyrir mér og staðhæfðu við mig eitthvað sem ekki væri samhljóða þá veit ég hverjum ég á að trúa. Ofangreind slóð frá mér er rétt, stafavillan kemur frá bb.is
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Jóhanns Guðmundssonar

FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Mál skrif­stofu­stjór­ans talið sýna þörf á strang­ari reglum um snún­ings­dyra­vand­ann

Tvær þing­konur Sam­fylk­ing­ar­innar segja að laga­setn­ing til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra hjá fólki í opin­berum störfum þurfi að vera strang­ari. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir segir að mál skrif­stofu­stjór­ans og lög­fræð­ings­ins í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sýni fram á þetta.
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arn­ar­laxi í ráðu­neyt­inu

Kæra vegna hátt­semi Jóhanns Guð­munds­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sner­ist um að hann hefði gengið erinda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax. Jóhann beitti sér fyrir því að gild­is­töku laga um lax­eldi yrði seinkað um sum­arið 2019. Arnarlax skil­aði inn gögnum um lax­eld­is­á­form sín einum degi áður en lögin tóku eftir að Jóhann lét seinka gild­is­töku þeirra.
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti var til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara

Mál Jóhanns Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi skristofu­stjóra í atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem kom að því að láta fresta gild­is­töku nýrra laga um fisk­eldi sum­arið 2020 var sent til lög­regl­unnar og hér­aðs­sak­sókn­ara. Rannsókn máls­ins var hins vegar felld niður þar sem ekki var talið að um ásetn­ing hefði verið að ræða. Fjallað er um málið í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sjó­kvía­eldi á Íslandi.
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Dóms­mála­ráð­herra telur að rétt hafi verið staðið að birt­ingu laga um lax­eldi

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur að ekki hafi verið óeðli­legt hvernig Jóhann Guð­munds­son hlut­að­ist til um birt­ingu laga í fyrra. Þetta er annað mat en hjá ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar. Vanda­málið snýst um að ganga út frá því að starfs­menn hljóti að vinna sam­kvæmt vilja ráð­herra en ekki sam­kvæmt eigin geð­þótta.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár