Paolo Macchiarini ákærður í Svíþjóð: Fyrsta fórnarlambið var búsett á Íslandi

Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur ákært ítalska skurð­lækn­inn Paolo Macchiarini fyrir grófar lík­ams­árásir. Macchiarini not­aði þrjá sjúk­linga sem til­rauna­dýr þegar hann græddi í þá plast­barka á árunum 2011 til 2013. Einn af sjúk­ling­unum var búsettur á Íslandi, Andemariam Beyene, og dróst Ísland inn í plast­barka­málið vegna þessa.

Paolo Macchiarini ákærður í Svíþjóð: Fyrsta fórnarlambið var búsett á Íslandi
Aðgerð­inni hampað í háskól­anum Aðgerð­inni á Andemariam Beyene, sem sést hér með Paulo Macchiarini, var hampað á sér­stakri ráð­stefnu í Háskóla Íslands árið 2012.

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini hefur verið ákærður fyrir grófar lík­ams­árásir í Svíþjóð eftir að hafa fram­kvæmt þrjár plast­barka­ígræðslur þar í landi á árunum 2011 til 2013. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sænska ákæru­vald­inu sem sagt er frá í sænskum fjöl­miðlum í dag.  Allir þessir þrír sjúk­lingar Macchiarinis dóu eftir aðgerð­irnar og liðu þeir miklar þján­ingar þar sem önd­un­ar­færi þeirra virk­uðu aldrei sem skyldi eftir þær. 

Plast­barka­málið er eitt stærsta hneyksl­is­mál sam­tím­ans í lækna­vís­indum. 

„Ég byrj­aði að vinna að rann­sóknum á því hvort hægt væri að græða plast­barka í rottur árið 2012“

Fyrst menn, svo rottur

Aðgerða­tæknin sem lá á bak við plast­barka­ígræðsl­urnar var vís­inda­lega óprófuð og skorti sam­þykki sænsku vís­inda­siða­nefnd­ar­innar fyrir henni þegar hún var fyrst reynd á Eritreu­mann­inum Andemarian Beyene sem var búsettur á Íslandi þar sem hann starf­aði sem jarð­fræð­ingur. Andemariam fékk græddan í sig plast­barka í maí 2011 eftir að hafa glímt við krabba­mein í hálsi og virk­aði bark­inn aldrei eins og hann átti.

Einungis fyrst eftir að aðgerða­tæknin hafði verið prófuð á Andemariam var aðgerða­tæknin prófuð á rottum á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og kom þá í ljós að hún virk­aði ekki, sam­kvæmt skurð­lækn­inum Oscar Simonson sem starf­aði á sjúkra­hús­inu. „Ég byrj­aði að vinna að rann­sóknum á því hvort hægt væri að græða plast­barka í rottur árið 2012, mest af vinn­unni fór þó fram 2013. Þá hitti ég Paolo Macchiarini í fyrsta skipti. Á þessum tíma­punkti stóð ég í þeirri trú að búið væri að græða plast­bark­ana í grísi en það hafði heldur ekki verið gert,“ sagði Simonson í við­tali við Frétta­tím­ann árið 2016. 

Sak­sókn­ar­inn, Mikael Björk, sem tekur ákvörð­un­ina að ákæra Macchiarini segir að aðgerð­irnar hafi skort alla vís­inda­lega stoð. „Aðgerð­irnar, sem leiddu til alvar­legs lík­ams­tjóns og þján­inga fyrir þá þrjá máls­að­ila sem um ræðir, voru fram­kvæmdar algjör­lega án laga­stoðar. Ég dreg þá ályktun að aðgerð­irnar þrjár beri að skil­greina sem grófar lík­ams­árásir frekar en gáleys­is­brot, það er að segja sem gróf lög­brot, og að fyrr­ver­andi skurð­lækn­ir­inn við háskóla­sjúkra­húsið Karol­inska eigi einn að sæta ábyrgð á þessum brotum,“ segir sak­sókn­ar­inn sam­kvæmt sænskum fjöl­miðlum. 

Aðgerð­inni hampaðAndemariam Beyene sést hér á mál­þing­inu um fyrstu plast­barka­að­gerð­ini í Háskóla Íslands um sum­arið 2012 ásamt Paolo Macchiarini, Tómasi Guð­bjarts­syni, aðstoð­ar­manni sínum og full­trúa banda­ríska fyr­ir­tæk­is­ins sem fram­leiddi plast­bark­ana. Aðgerð­inni á Andemariam vakti heims­at­hygli og var hampað sem miklum árangri í lækna­vís­indum.

Tengslin við Ísland

Vegna þess að Andemariam Beyene var sendur frá Íslandi til Sví­þjóðar þar sem það var mat Tómasar Guð­bjarts­sonar, læknis Andemari­ams, að ekki væri hægt að gera meira fyrir Andemariam á Land­spít­al­anum eftir að krabba­mein hans hafði tekið sig upp eftir í kjöl­far aðgerðar þá var ákveðið að gera sér­staka rann­sókn á mál­inu á Íslandi. Tómas fór svo til Sví­þjóðar og tók þátt í aðgerð­inni á Andemariam með Macchiarini og gerði hann það að beiðni ítalska skurð­lækn­is­ins. 

Þá var haldið sér­stakt mál­þing um aðgerð­ina á Andemariam í Háskóla Íslands um sum­arið 2012 og koma Macchiarini til lands­ins til að vera með á henni. Þá var aðgerð­inni lýst sem miklum tíma­mótum og hrósuðu þeir aðilar sem komu að henni sér af henni jafn­vel þó að á þessum tíma hefði verið ljóst að plast­barki Andemari­ams virk­aði ekki eins og hann átti að gera. 

 Rann­sókn­ar­nefnd um aðkomu Land­spít­al­ans að plat­barka­mál­inu var skipuð og skil­aði hún af sér skýrslu árið 2017. Nefndin laut for­mennsku Páls Hreins­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Skýrslan var gerð að beiðni Land­spít­al­ans. 

Ein af nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar var að brotið hefði verið gegn mann­rétt­indum Andemariam Beyene og tveimur öðrum sjúk­lingum með plast­barka­að­gerð­unum. „Það fyr­ir­komu­lag sem unnið var eftir á Karol­inska háskóla­sjúkra­hús­inu (KS) og Karol­insku stofn­un­inni (KI) fól aftur á móti í sér að lífi þriggja sjúk­linga var stofnað í mikla hættu á kerf­is­bund­inn hátt. Þetta var gert á grund­velli stefnu­mót­unar þess­ara stofn­ana um upp­bygg­ingu mið­stöðvar fyrir háþró­aðar önd­un­ar­vega­rann­sóknir á þessu sviði og er að mati nefnd­ar­innar ekki hægt að úti­loka að með þessu hafi 2. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu verið brotin.“

Nú hefur Macchiarini verið ákærður fyrir þessar þrjár aðgerðir.

„Að mínu mati getur Ísland verið stolt af því að hafa staðið fyrir svona nákvæmri og ítar­legri rann­sókn.“

Skýrslunni hrósað

Í við­tali við Stundina í kjöl­farið á útgáfu skýrsl­unnar hrósuðu Oscar Simons­son, sem var einn fjög­urra lækna sem kom upp um Macchiarini-málið sem upp­ljóstr­ari, og kollegi hans, Karl-Henrik Grinnem,  henni og sögðu að hún væri betur unnin en sam­bæri­legar skýrslur sem gerðar voru í Svíþjóð um málið. Þeir Simonson og Grinnemo unnu með sænska blaða­mann­inum Bosse Lindqvist sem kom upp um málið í sjón­varps­þáttum og síðar í bók um plast­barka­málið. „Íslend­ingar eru góðir í fót­bolta og þið kunnið að gera svona skýrslur,“ sagði Karl-Henrik. „Hér í Svíþjóð hefur aldrei, aldrei, aldrei verið gerð svona ítar­leg og nákvæm skýrsla um þetta mál. Það er bara mik­ill munur á þess­ari skýrslu og sænsku skýrsl­unum.“ 

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar eru mjög skýrar og segir Karl-Henrik aðspurður að þetta sé einn af helstu kostum hennar. „Nið­ur­stöð­urnar í hverjum kafla í skýrsl­unni eru mjög skýrar og gefa litla eða enga mögu­leika á öðrum túlk­unum en nefndin kemst að nið­ur­stöðum um. Sænsku skýrsl­urnar hafa ekki verið með eins skýrar nið­ur­stöður og hafa verið óljós­ari.“

Um skýrsl­una sagði Oscar Simons­son einnig: „Að mínu mati getur Ísland verið stolt af því að hafa staðið fyrir svona nákvæmri og ítar­legri rann­sókn. Skýrslan sýnir hvernig Macchiarini not­aði blekk­ingar til að ná sínu fram en þetta kom einnig fram í upp­haf­legri kæru okkar í mál­inu. [...] Það er einnig gleði­efni að nefndin mælir með því að ekkja íslenska sjúk­lings­ins fái greiddar bætur. Þetta er atriði sem við höfum krafið Karol­inska-sjúkra­húsið um í 3 ár.“ 

Í sænskum fjöl­miðlum í dag er haft eftir Macchiarini að hann lýsi sig sak­lausan af ákæru­efn­unum.

Áður hafði ákæru­valdið í Svíþjóð greint frá því að Macchiarini yrði ekki ákærður en sak­sókn­ar­inn Mickael Björk ákvað að taka málið aftur til skoð­unar árið 2018 og kemst hann nú að þeirri nið­ur­stöðu að ákæra beri Macchiarini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár