„Ég lít ekki á Macchiarini sem vondan mann“

Sænski blaða­mað­ur­inn Bosse Lindqvist er mað­ur­inn sem kom upp um Macchiarini-hneykslið sem teygir anga sína til Íslands og Land­spít­al­ans. Hann hefur nú gefið út bók um málið eftir að sjón­varps­þættir hans um plast­barka­að­gerðir ítalska skurð­lækn­is­ins vöktu heims­at­hygli. Lindqvist segir að enn séu lausir angar í plast­barka­mál­inu.

„Ég skil ekki Paulo Macchiarini þrátt fyrir að hafa varið heil­miklum tíma með honum. Í fyrsta skipti þegar ég hitti hann fékk ég þessa sér­stöku til­finn­ingu að sjá ekki inn í hann. Yfir­leitt finnur maður ein­hverja tengi­punkta þegar maður hittir fólk sem gerir það að verkum að maður geti tengt við það og kynnst því. Hjá Macchiarini var þetta bara svart. Jú, við gátum talað um vís­indi og rann­sóknir en svo var bara svart,“  segir sænski blaða­mað­ur­inn Bosse Lindqvist, höf­undur heim­ild­ar­mynd­ar­innar um plast­barka­að­gerðir ítalska skurð­lækn­is­ins Paulo Macchiarini. Bosse hefur nú skrifað bók um þetta mál sem kallað hefur verið eitt helsta hneyskli lækn­is­fræð­innar síð­ast­lið­ina ára­tugi. Bók Bosse Lindqvist heitir Macchiariniäffaren og kom út hjá for­lag­inu Albert Bonnier í sept­em­ber.  

„Ég lít ekki á Macchiarini sem vonda mann­eskju. Ég held að hann ætli sér ekki að gera rangt en ég held að hann nái ein­hvern veg­inn að ljúga að sjálfum sér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár