Fréttamál

Plastbarkamálið

Greinar

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.
Tómas óskaði sjálfur eftir leyfi frá Landspítalanum
FréttirPlastbarkamálið

Tómas óskaði sjálfur eftir leyfi frá Land­spít­al­anum

Lækn­ir­inn Tóm­as Guð­bjarts­son fór í leyfi frá störf­um við Land­spít­al­ann að eig­in frum­kvæði. Hann var lækn­ir And­emari­ams Beyene sem lést í kjöl­far plast­barka­ígræðslu ár­ið 2011. Paolo Macchi­ar­ini, sá sem fram­kvæmdi ígræðsl­una, fékk Tóm­as til að halda því fram að aðr­ar með­ferð­ir væru úti­lok­að­ar fyr­ir And­emariam.

Mest lesið undanfarið ár