Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
Ætla að stefna sænska rík­inu Þeir Oscar Simonson, til vinstri, og Karl Henrik Grinnemo ætla að stefna sænska rík­inu út þeirri með­ferð sem þeir fengu á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og í sam­nefndum háskóla eftir að þeir byrj­uðu að ljóstra upp um Macchiarini-málið. Þeir sjást hér í vinnu sinni á Aka­dem­iska-sjúkra­hús­inu í Uppsala í jan­úar. Mynd: Pernilla Sjöholm

Einn af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl-Henrik Grinnemo, segir að enn eigi eftir að gera það almenni­lega upp í Svíþjóð. „Plast­barka­málið er enn þá opið sár vegna þess að málið hefur ekki verið gert almenni­lega upp hér. Þetta hefur verið hörmu­lega gert í Svíþjóð. Hér hefur aldrei verið gerð almenni­leg sjálf­stæð rann­sókn á mál­inu. Báðar rann­sókn­irnar sem voru gerðar hér í Svíþjóð voru gerðar að beiðni Karol­inska-háskól­ans og – sjúkra­húss­ins sem greiddi fyrir þær.“ 

Karl-Henrik er einn af upp­ljóstr­ur­unum fjórum sem kom upp um málið: Ígræðslur ítalska skurð­lækn­is­ins Paulo Macchiarini á börkum úr plasti á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Solna á árunum 2011 til 2013. Heim­ildin tók við­tal við hann og Oscar Simons­son, annan af upp­ljóstr­urum í gegnum Zoom, en þeir eru í dag læknar á Aka­dem­iska-sjúkra­hús­inu í Uppsala eftir að hafa hrökkl­ast úr störfum sínum á Karol­inska. 

Oscar segir um starfs­lokin: „Markmið stjórn­enda Karol­inska var að við myndum …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Ég er stolt af landspítalanum sem ég vinn á sem eldri sjúkraliði í tímavinnu, að þessi stofnun og forstjóri hennar hafði manndóm til að biðja afsökunar á hræðilegum mistökum. Það er meira en risasjúkrahúsið Karolinska virðist geta brotið odd af oflæti sínu og sýnt smá auðmýkt. Svo óska ég Tómasi hjartalækni góðrar hvíldar og að hann nái fyrri starfskröftum og reisn, hann er of góður læknir til að vera of lengi í fríi. Það er hræðileg reynsla að lenda í siðblindum mönnum eins og ítalanum hraðlygna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið undanfarið ár