Vona að íslenska plastbarkaskýrslan leiði til ákæru gegn Macchiarini í Svíþjóð

Tveir sænskir læknar sem komu upp um Macchiarini-málið eru afar ánægðir með skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um plast­barka­málið. Annar þeirra segir að stóra fréttin í skýrsl­unni sé hvernig Paulo Macchiarini blekkti Tómas Guð­bjarts­son til að koma fyrstu plast­barka­að­gerð­inni í kring. Tómas hefur verið sendur í leyfi frá störfum hjá Land­spít­al­anum.

Vona að íslenska plastbarkaskýrslan leiði til ákæru gegn Macchiarini í Svíþjóð
Vann að rottu­rann­sókn­unum Oscar Simons­son, einn af fjór­menn­ing­unum sem kom upp um Macchiarini-málið, vann að rann­sóknum á rottum sem gerðar voru eftir að búið var að græða plast­bark­ann í Andemariam Beyene. Fyrst eftir til­raun­ina á Andemariam var reynt að græða plast­barka í rottur, en án árang­urs.

„Íslend­ingar eru góðir í fót­bolta og þið kunnið að gera svona skýrslur,“ segir Karl-Henrik Grinnemo, læknir á Uppsala-sjúkra­hús­inu í Svíþjóð sem var einn af þeim fjórum læknum sem upp­haf­lega kærði plast­barka­að­gerðir Paulos Macchiarinis. Grinnemo er búinn að lesa skýrsl­una um plast­barka­málið sem birt var í gær og er mjög ánægður með hvað hún er vönduð: „Hér í Svíþjóð hefur aldrei, aldrei, aldrei verið gerð svona ítar­leg og nákvæm skýrsla um þetta mál. Það er bara mik­ill munur á þess­ari skýrslu og sænsku skýrsl­unum,“ segir hann en höf­undar skýrsl­unnar eru þau Páll Hreins­son, Georg A. Bjarna­son og María Sig­ur­jóns­dóttir. 

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar eru mjög skýrar og segir Karl-Henrik aðspurður að þetta sé einn af helstu kostum hennar. „Nið­ur­stöð­urnar í hverjum kafla í skýrsl­unni eru mjög skýrar og gefa litla eða enga mögu­leika á öðrum túlk­unum en nefndin kemst að nið­ur­stöðum um. Sænsku skýrsl­urnar hafa ekki verið með eins skýrar nið­ur­stöður og hafa verið óljós­ari.“

Grinnemo og sam­starfs­fé­lagar hans Oscar Simons­son, Matthias Corbiasco, og Thomas Fux, fengu meðal ann­ars upp­ljóstr­ara­verð­laun frá alþjóð­legu sam­tök­unum Transparency International vegna vinnu sinnar við að koma upp um Macchiarini-málið í Svíþjóð.  

Upp­lýs­ingar leiði til ákæruKarl-Henrik Grinnemo telur að upp­lýs­ing­arnar um blekk­ingar Paulo Macchiarinis eigi að geta leitt til ákæru gegn honum í Svíþjóð.

Hafa sjálfir talað um brot gegn réttindum

Grinnemo segir aðspurður að hann og félagar hans telji að Paulo Macchiarini, Karol­inska-sjúkra­húsið og Karol­inska-háskól­inn hafi brotið gegn mann­rétt­indum Andemari­ams Beyene og hinna tveggja plast­barka­þeg­anna sem fengu gervi­barka í Svíþjóð. Þetta er ein af nið­ur­stöðum skýrsl­unnar um plast­barka­málið; nið­ur­staða sem ekki hefur verið talað um hingað til í sænskum skýrslum um málið. „Já, það er alveg rétt. Við höfum sagt allan tím­ann að sjúkra­húsið og háskól­inn hafi brotið gegn rétt­indum þessa fólks, þó við höfum ekki notað orða­lagið mann­rétt­inda­brot. En það var brotið gegn flestum þeirra laga og reglna sem til eru og eiga að gilda um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu.“

„Það var brotið gegn flestum þeirra laga og reglna sem til eru og eiga að gilda um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Grinnemo segir líka að hann hafi alltaf mælt með því að Karol­inska-sjúkra­húsið og háskól­inn eigi að borga skaða­bætur til aðstand­enda þeirra sem Paulo Macchiarini græddi plast­barka í. Þetta er líka ein af nið­ur­stöð­unum í íslensku skýrsl­unni. „Það voru engin leyfi fyrir þessum aðgerðum, hvorki frá vís­inda­siða­nefnd eða lækn­is­yf­ir­völdum og það var ekki búið að reyna þessar aðgerðir á dýrum. Þessar stofn­anir hafa stofnað þessu fólki í hættu án þess að þetta fólk hafi vitað það fyr­ir­fram. Og það er eng­inn annar en Macchiarini, sjúkra­húsið og háskól­inn sem gerðu þetta,“ segir Karl-Henrik.

Ánægðir með skýrsl­unaTveir af sænsku lækn­unum sem komu upp um Macchiarini-málið eru ánægðir með íslensku rann­sókn­ar­skýrsl­una og telja hana geta blásið lífi í mál ákæru­valds­ins sænska gegn Paulo Macchiarini. Myndin var tekin á blaða­manna­fundi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar í gær og sýnir Pál Hreins­son for­mann hennar kynna nið­ur­stöð­urnar.

Skýrslan sýnir blekkingar Macchiarinis

Sænski lækn­ir­inn segir að lyk­il­at­riði í íslensku skýrsl­unni sé hvernig Paulo Macchiarini blekkti Tómas Guð­bjarts­son til að breyta lýs­ingu sinni á sjúk­dómstil­felli og grein­ingu á krabba­meini Andemari­ams Beyene í aðdrag­anda aðgerð­ar­innar til að fá fram rétt­læt­ingu á henni. Með þessu er átt við að lýs­ingu á til­felli Andemari­ams hafi verið breytt þannig að til­rauna­að­gerð eins og plast­barka­að­gerð hafi verið eina leiðin til að bjarga lífi hans en ekki aðrar aðgerðir. „Við teljum að íslenska rann­sóknin geti leitt til þess að ákæru­valdið taki Macchiarini-málið upp aftur og ákæri hann fyrir brot. Og ekki bara Macchiarini heldur líka yfir­menn á sjúkra­hús­inu og í háskól­anum,“ segir Karl-Henrik, en ákværu­valdið sænska felldi niður rann­sókn á máli Macchiarinis fyrr í haust. 

„Þetta eru upp­lýs­ingar sem ekki hafa legið fyrir áður. Ég þekki Tómas Guð­bjarts­son og hann er að mörgu leyti góður maður. Það sem skýrslan sýnir er að Paulo Macchiarini blekkti hann í aðdrag­anda aðgerð­ar­innar á Andemariam Beyene til að fá hann til að sam­þykkja með­ferð­ina sem þessi sjúk­lingur fékk svo á Karol­inska-sjúkra­hús­inu. Þetta er það nýja í mál­inu, þessar blekk­ingar. Þetta ætti að vera nóg til þess að ákæru­valdið taki málið gegn Paulo Macchiarini upp aftur og ákæri hann,“ segir Karl-Henrik en aðstand­endur þeirra sem fengu grædda í sig plast­barka þurfa þá að kæra Macchiarini aftur til ákværu­valds­ins í Svíþjóð. 

Oscar Simons­son, annar af fjór­menn­ing­unum sem kærðu málið á sínum tíma, tekur undir það að skýrslan sýni blekk­ingar Macchiarinis. „Að mínu mati getur Ísland verið stolt af því að hafa staðið fyrir svona nákvæmri og ítar­legri rann­sókn. Skýrslan sýnir hvernig Macchiarini not­aði blekk­ingar til að ná sínu fram en þetta kom einnig fram í upp­haf­legri kæru okkar í mál­inu. [...] Það er einnig gleði­efni að nefndin mælir með því að ekkja íslenska sjúk­lings­ins fái greiddar bætur. Þetta er atriði sem við höfum krafið Karol­inska-sjúkra­húsið um í 3 ár.“ 

Leyfi frá störfumTómas Guð­bjarts­son hefur verið sendur í leyfi frá störfum út af plast­barka­mál­inu.

Tómas sendur í leyfi frá störfum 

Í svari frá Land­spít­al­anum um stöðu Tómasar Guð­bjarts­sonar á spít­al­anum í ljósi nið­ur­stöðu skýrsl­unnar kemur fram að hann hafi verið sendur í leyfi frá störfum.

„Það staðfestist að Landspítali ákvað að Tómas Guðbjartsson yrði í leyfi frá störfum um sinn í ljósi heildarhagsmuna.“ 

Orðrétt segir í svar­inu: „Land­spít­ali tekur nið­ur­stöður og ábend­ingar nefnd­ar­innar mjög alvar­lega og mun bregð­ast við þeim. Þegar hefur verið ákveðið að vísa mál­inu til sið­fræði­nefndar spít­al­ans, taka upp sam­skipti við vís­inda­siða­nefnd varð­andi ábend­ingar skýrsl­unnar, meðal ann­ars um mun á gagna- og sjúk­linga­rann­sóknum sem og að taka afstöðu til til­lögu skýrsl­unnar um bætur til ekkju sjúk­lings­ins.

Að öðru leyti mun spít­al­inn taka sér tíma til að rýna skýrsl­una gaum­gæfi­lega og bregð­ast við frek­ari ábend­ingum og málum sem upp kunna að koma í þeirri rýni. Það stað­fest­ist að Land­spít­ali ákvað að Tómas Guð­bjarts­son yrði í leyfi frá störfum um sinn í ljósi heild­ar­hags­muna.“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er um fjög­urra vikna leyfi frá störfum að ræða í til­felli Tómasar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár