„Barátta mín fyrir réttlæti hefur staðið yfir í 12 ár“

Ekkja manns sem lést eftir að plast­barki var græddur í hann, hefur barist í um 12 ár fyrir rétt­læti manns síns. Hún lagði íslenska ríkið í skaða­bóta­máli þar sem kemur fram að fram­ganga lækn­is­ins Tómasar Guð­bjarts­sonar hafi verið ámæl­is­verð og sak­næm.

Merhawit Baryamikael
Merhawit Bar­ya­mik­ael Ekkja Andemariam hefur nú barist í tólf ár fyrir rétt­læti fyrir mann sinn sem lést eftir að plast­barka­þræð­ingu. Mynd: Árni Torfason

„Ég var afar fegin að fá fregnir af úrskurði hér­aðs­dóms í þessu máli en veik­inda­ferli eig­in­manns míns Andemari­ams Beyene var bæði afar sárs­auka­fullt og erfitt,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju Andemari­ams, sem lést eftir að í hann var græddur plast­barki. Málið hefur vakið heims­at­hygli en nýjasti kafl­inn í þessu ein­staka hneyksl­is­máli er nýfall­inn dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem bóta­skylda íslenska rík­is­ins hefur verið við­ur­kennd.

Ástæðan er aðild Tómasar Guð­bjarts­sonar að mál­inu sem byggir á svikum Paolo Macchiarini, þá skurð­læknis við Kar­ólínska sjúkra­húsið í Svíþjóð. Tómas er fund­inn sekur um stór­fellt gáleysi sem leiddi til tjóns og and­láts Andemari­ams, sem lést þremur árum eftir að bark­inn var þræddur í hann. Andemariam var með hæg­vax­andi æxli en þó ekki dauð­vona. Fram kemur í dómi að Tómas hafi sett af stað atburð­ar­rás sem leiddi með beinum hætti til þess að Andemariam lést eftir svik­sam­lega hátt­semi Macchiarini.

…

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár