Vinnumálastofnun um arðgreiðslur fyrirtækja á hlutabótaleið: „Þetta er fyrst og fremst alveg rosalegt siðleysi“

Arð­greiðslur og notkun Skelj­ungs á hluta­bóta­leið­inni í miðjum COVID-far­aldr­inum hafa vakið athygli. Rík­is­valdið hefur eins og er engin úrræði til að bregð­ast við því ef fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér hluta­bóta­leið­ina greiðir sér einnig út arð en til stendur að breyta lögum vegna þessa. Eftirlit og úrræði rík­is­valds­ins í Svíþjóð eru meiri í þessum efnum.

Vinnumálastofnun um arðgreiðslur fyrirtækja á hlutabótaleið: „Þetta er fyrst og fremst alveg rosalegt siðleysi“
Hafði ekki hug­mynd­flug í þetta Olíu­fé­lagið Skejl­ungur greiddi 600 millj­óna króna arð til hlut­hafa félags­ins í byrjun apríl og nýtti svo hluta­bóta­leið­ina. Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, seg­ist ekki hafa haft hug­mynda­flug í að ein­hver myndi gera þetta. Mynd: Lögreglan

Engin ákvæði eru í laga­setn­ingu um hluta­bóta­leið­ina sem banna arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem hafa nýtt sér þessa leið til að verja rekstr­ar­grund­völl sinn í kjöl­far COVID-far­ald­urs­ins. En Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur nú boðað að breyta skuli lög­unum um hluta­bóta­leið­ina til að reyna að girða fyrir mis­notkun. 

Arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina, meðal ann­ars olíu­fé­lagið Skelj­ungur á Íslandi, hafa vakið athygli vik­unni  og gagn­rýni en ekk­ert í lög­unum bannar þær þó stjórn­völd hafi sett fram sið­ferð­is­leg til­mæli gegn þeim.

Eins og Stundin greindi frá áþriðju­dag­inn þá greiddi Skelj­ungur út 600 millj­óna­króna arð til hlut­hafa sinna í byrjun apríl síð­ast­lið­inn, eftir að COVID-far­ald­ur­inn hafði skollið á og eftir að íslensk stjórn­völd sam­þykktu lög um meðal ann­ars hluta­bóta­leið­ina.  Skelj­ungur byrj­aði að nýta sér hluta­bóta­leið­ina sex dögum eftir að hafa greitt út arð­inn eins og Stundin sagði frá á mið­viku­dag­inn. 

Skelj­ungur hefur nú séð að sér og ákveðið að end­ur­greiða hluta­bæt­urnar til rík­is­ins. Þær voru 6-7 millj­ónir í apríl.

„Ég hafði ekki hug­mynda­flug í þetta“

Datt ekki í hug að leiðin yrði misnotuð

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, segir í sam­tali við Stundina að hún hafi ekki haft hug­mynda­flug í að hluta­bóta­leiðin yrði mis­notuð með þessum hætti.  „Mér finnst þetta alveg svæsið. Ég skal bara við­ur­kenna að ég hafði ekki hug­mynda­flug í þetta,“ segir Unnur þegar hún tjáir sig um þá ákvörðun Skelj­ungs að greiða út arð í byrjun apríl. „Auðvitað eiga fyr­ir­tæki ekki að greiða út arð á meðan þau not­færa sér rík­is­að­stoð. Eðlilega fer þetta rosa­lega fyrir brjóstið á fólki. Þessi fyr­ir­tæki eru á gráu svæði. Þetta gengur ekki upp. Þetta er fyrst og fremst alveg rosa­legt sið­leysi. Auðvitað eiga fyr­ir­tækin að hætta við arð­greiðsl­urnar eða þá að sleppa því að nota hluta­bóta­leið­ina,“ segir Unnur. 

Unnur segir aðspurð að Vinnu­mála­stofnun hafi hvorki haft manna­for­ráð né tíma til að sinna eft­ir­liti með hluta­bóta­leið­inni sam­hliða umsóknum frá fyr­ir­tækjum um að fara þessa leið.  „Aukið eft­ir­lit með hluta­bóta­leið­inni er ekki hafið. En það eru skýr fyr­ir­mæli frá yfir­völdum um að þegar rykið sest hjá okkur þá eigi að fara í eft­ir­lit. Þetta er bráða­að­gerð, hluta­bóta­leiðin, og okkar mark­mið hefur fyrst og fremst verið að verja hags­muni starfs­fólks fyr­ir­tækja. Eft­ir­litið verður því eftir-á-eft­ir­lit en ekki sam­tíma­eft­ir­lit. Við höfum bara ekki tíma eða manna­for­ráð í það,“ segir Unnur aðspurð um eft­ir­litið með hluta­bóta­leið­inni sem Vinnu­mála­stofnun stundar sam­hliða með­ferð á umsóknum frá fyr­ir­tækjum um að greiða út hluta­bætur til fyr­ir­tækja.

Höfðað til siðferðis fyrirtækja

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur meðal ann­ars sagt að þó að arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina séu ekki bann­aðar þá vilji stjórn­völd að þau sýni ábyrgð. „Auðvitað er það svo að við reiðum okk­ur á að at­vinnu­lífið sýni ábyrgð. En meg­in­mark­miðið er að verja af­komu fólks.“ 

Í þessu til­felli var ábyrgð­inni því alfarið varpað á fyr­ir­tækin sem fá rík­is­að­stoð­ina í formi hluta­bóta­leið­ar­innar. Rík­is­valdið er ekki í neinni stöðu til að grípa inn í ef þessi fyr­ir­tæki greiða sér einnig út arð til dæmis. Ljóst er að þessi til­mæli voru ekki nóg til að koma í veg fyrir arð­greiðslur fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni. 

Einnig liggur fyrir að nokkur af fjár­sterk­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins, meðal ann­ars Samherji og Bláa lónið, hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina þrátt fyrir að eig­in­fjár­staða þess­ara fyr­ir­tækja sé afar sterk. 

Eftirlit með ríkisaðstoðinni takmarkað 

Samtímis liggur fyrir að almennt eft­ir­lit með hluta­bóta­leið­inni og fram­fylgd hennar á Íslandi er til­tölu­lega lítið. Engin sér­stök fjár­veit­ing hefur komið frá rík­is­vald­inu til að girða fyrir mis­notkun á hluta­bóta­leið­inni, jafn­vel þó búið sé að lengja gild­is­tíma úrræð­is­ins til 31. ágúst. Vinnu­mála­stofnun hefur heldur ekki haft ráð­rúm til að leggja aukið púður í eft­ir­lit með mis­notkun á þessu tíma­bundna úrræði, líkt og for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, Unnur Sverr­is­dóttir, ræddi meðal ann­ars um í nýlegu við­tali við Stundina. 

„Auðvitað er það svo að við reiðum okk­ur á að at­vinnu­lífið sýni ábyrgð.“

Sagði Unnur þá að ekk­ert sér­stakt eft­ir­lits­starf hefði verið sett í gang út af hluta­bóta­leið­inni umfram hefð­bundið eft­ir­lit, í kjöl­far COVID-far­ald­urs­ins. „Við erum með eft­ir­lits­deild sem á í sam­starfi við eft­ir­lits­deild Rík­is­skatt­stjóra og Vinnu­eft­ir­litið hefur líka verið þátt­tak­andi í því. Það er þetta hefð­bundna almenna eft­ir­lit á vinnu­mark­aði. Sam­starfið á milli þess­ara aðila er náið. Svo er hægt að senda ábend­ingar á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar og þangað hafa verið að ber­ast ábend­ingar um mis­notkun. Svo þarf rykið aðeins að setj­ast. Við sam­keyrum okkar kerfi við skatt­inn í hverjum mán­uði og ef það kemur í ljós að fólk er að hafa mun hærri tekjur en það er að fá frá okkur í hluta­bætur þá getum við séð það.“

Til sam­an­burðar hafa til dæmis yfir­völd í Svíþjóð sett 130 sér­fræð­inga frá sænska skatt­inum í að fylgj­ast með og hafa eft­ir­lit með því að hluta­bóta­leiðin sé ekki mis­notuð. 

Íslensk stjórn­völd hafa hins vegar skipað sér­staka eft­ir­lits­nefnd sem á að hafa eft­ir­lit með brú­ar­lánum, lánum með rík­is­á­byrgð til fyr­ir­tækja sem eiga í rekstr­ar­erf­ið­leikum vegna COVID.  Fyr­ir­tæki sem fá slík lán mega ekki greiða út arð. Þessi eft­ir­lits­nefnd hefur hins vegar ekki eft­ir­lit með hluta­bóta­leið­inni, heldur fer það fram hjá Vinnu­mála­stofnun.

En nú stendur sem sagt að auka eft­ir­litið með hlut­bóta­leið­inni á Íslandi. 

Geta skrúfað fyrir ríkisaðstoð

Sams konar umræða um hluta­bóta­leið­ina og mis­notkun á henni fer nú fram í Svíþjóð sem einnig tók upp hluta­bóta­leið­ina í kjöl­far COVID-far­ald­urs­ins, rétt eins og Ísland og hin Norð­ur­löndin. 

Í Svíþjóð var heldur ekki lagt bann við arð­greiðslum út úr fyr­ir­tækjum sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina.En 

Sú stofnun sem hefur eft­ir­lit með hluta­bóta­leið­inni þar í landi, Tillväxt­verket, hefur hins vegar gefið frá sér til­mæli um að það sé „óvið­eig­andi“ að fyr­ir­tæki sem þiggi tíma­bundna rík­is­að­stoð í gegnum hluta­bóta­leið­ina greiði út  arð: „Tillväxt­verket er á þeirri skoðun að það sé óvið­eig­andi að fyr­ir­tæki standi í háum arð­greiðslum á sama tíma og þau þiggja rík­is­að­stoð í gegnum hluta­bóta­leið­ina“, segir um þetta á vef­síðu stofn­un­ar­innar. 

Öfugt við hvernig laga­setn­ingin og fram­fylgd lag­anna um hluta­bóta­leið­ina eru á Íslandi þá geta sænsk stjórn­völd hins vegar skrúfað fyrir þessa rík­is­að­stoð aft­ur­virkt, meðal ann­ars með því að krefja fyr­ir­tæki sem notið hafa stuðn­ings um að end­ur­greiða fé til rík­is­ins. Um þettta segir á vef­síðu eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar sænsku: „Ef við sjáum að fyr­ir­tæki sem nýtur stuðn­ings­ins hegðar sér með þeim hætti að ljóst sé að þau eiga ekki við erf­iða efna­hags­stöðu að eiga höfum við mögu­leika á því að breyta rík­is­að­stoð­inni eftir að hún á sér stað á grund­velli þessa.“

Sænsk stjórn­völd geta því, aft­ur­virkt, breytt þeirri rík­is­að­stoð sem ein­staka fyr­ir­tæki hafa fengið.

Ekki er hins vegar ljóst hvað nákvæm­lega er átt við með „háum arð­greiðslum“ í Svíþjóð og þarf því að fara fram gagn­rýnið mat á hverju til­felli fyrir sig þar sem fyr­ir­tæki sem nýtir sér hluta­bóta­leið­ina greiðir arð til hlut­hafa. Þetta úrræði sænskra yfir­valda, að hætta við fjár­hags­stuðn­ing út af arð­greiðslum, er því bæði loðið og mats­kennt. 

Höfðar til sam­visku fyr­ir­tækjaKatrín Jak­bos­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur höfðað til sam­visku fyr­ir­tækja sem nýta sér hluta­bóta­leið­ina.

Iðnfyrirtæki greiddi út milljarða arð eftir ríkisaðstoð

Í Svíþjóð hefur gagn­rýnin á ein­stök fyr­ir­tæki meðal ann­ars snú­ist um iðn­fyr­ir­tækið SKF í Gauta­borg. Fyr­ir­tækið setti 1.650 starfs­menn sína á hluta­bóta­leið­ina nú í vor og mun sænska ríkið þurfa að greiða 40 millj­ónir sænskra króna, eða rúm­lega 600 millj­ónir íslenskra króna, vegna þess­ara starfs­manna. Fyr­ir­tækið greiddi hlut­höfum sínum svo út 1,3 millj­arða sænskra króna, rúm­lega 20 millj­arða íslenskra króna,  í arð. 

Þetta stríðir ekki gegn sænskum lögum, frekar en íslenskum í til­fellum hér­lendra fyr­ir­tækja sem þetta gera. Sænsku stjórn­mála­flokk­arnir sem sam­þykktu lögin um rík­is­að­stoð til fyr­ir­tækja vegna COVID voru hins vegar sam­mála um það að það væri „ekki talið verj­andi“ að nýta sér hluta­bóta­leið­ina þar í landi og greiða út arð til hlut­hafa. 

Sams konar umræða fer einnig fram um bíla­fram­leið­and­ann Volvo sem ráð­gerði að greiða út arð upp á 27 millj­arða sænskra króna, tæp­lega 420 millj­arða íslenskra króna. Volvo hefur sagt að fyr­ir­tækið muni ekki greiða út 16 millj­arða sænskra króna af þess­ari upp­hæð en eftir stendur spurn­ingin hvort félagið greiði út 11 millj­arða sænskra króna í arð.  Félagið hefur nýtt sér hluta­bóta­leið­ina fyrir 20 þús­und starfs­menn sína og mun sá stuðn­ingur kosta sænska ríkið einn millj­arð sænskra króna, eða rúm­lega 15 millj­arða íslenskra króna. 

Arðgreiðslur verða bannaðar

Í við­tali við sænska rík­is­sjón­varpið fyrr í vik­unni segir einn af starfs­mönnum sænsku eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar Tillväxt­verket, Tim Brooks, að alveg ljóst sé að stuðn­ing­ur­inn sem felst í hluta­bóta­leið­inni hafi átt að fara til fyr­ir­tækja sem eiga í efna­hags­vanda. Hins vegar þá séu arð­greiðslur frá fyr­ir­tækjum sem nýta sér aðstoð­ina ekki bann­aðar eins. „Fjár­hags­að­stoðin á að renna til fyr­ir­tækja sem hafa lent í erf­ið­leikum vegna kór­óna­veirunnar. Sænska þingið tal­aði um að girða fyrir arð­greiðslur en þetta fór ekki inn í lögin. Við þurfum að fram­fylgja lög­unum,“ segir hann.

Í gær, fimmtu­dag var svo greint frá því að arð­greiðslur fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni yrðu bann­aðar.  

Hvað íslensk stjórn­völd munu gera á eftir að koma í ljós. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár