Stórauka gjaldtöku á erlenda ferðamenn

Banda­rísk yfir­völd ætla að rukka útlend­inga um meira en 30 þús­und krónur fyrir passa til að heim­sækja marga þjóð­garða og láta þá þannig fjár­magna við­hald þeirra. Íslensk yfir­völd hættu við að rukka 2.400 krónur með nátt­úrupassa.

Stórauka gjaldtöku á erlenda ferðamenn
Yosemite-garð­ur­inn Einn vin­sæl­asti þjóð­garður Banda­ríkj­anna er Yosemite-park í Kali­forníu. Hér er svokölluð mist-trail. Aðgangur kostar 35 dali fyrir hverja bif­reið eða 20 dali á mann. Mynd: Shutterstock

Erlendir ferða­menn sem heim­sækja þjóð­garða í Banda­ríkj­unum, þar á meðal Miklagljúfur og Yellowstone, þurfa nú að greiða hátt auka­gjald, að því er rík­is­stjórn Trumps til­kynnti í dag.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið, sem rekur hina róm­uðu þjóð­garða Banda­ríkj­anna, sagði að frá og með árinu 2026 þurfi gestir erlendis frá að greiða 100 doll­ara (13 þús­und krónur) til við­bótar við aðgangs­eyri hvers garðs til að kom­ast inn á 11 af vin­sæl­ustu áfanga­stöð­unum í kerf­inu.

Kostn­aður við árspassa í alla garð­ana mun á sama tíma meira en þre­fald­ast í 250 doll­ara (32 þús­und krónur) fyrir þá sem ekki eru búsettir í land­inu.

„Forysta Trumps for­seta setur banda­rískar fjöl­skyldur alltaf í fyrsta sæti,“ sagði Doug Burgum inn­an­rík­is­ráð­herra í yfir­lýs­ingu.

„Þessar reglur tryggja að banda­rískir skatt­greið­endur, sem þegar styðja við þjóð­garða­kerfið, njóti áfram aðgangs á við­ráð­an­legu verði, á meðan alþjóð­legir gestir leggja sitt af mörkum til að við­halda og bæta garð­ana okkar fyrir kom­andi kyn­slóðir.“

Þjóð­garð­arnir 63, sem lengi hafa verið taldir gim­steinn í banda­rískri ferða­þjón­ustu, fá hund­ruð millj­óna gesta á ári – tæp­lega 332 millj­ónir árið 2024, sam­kvæmt Þjóð­garða­stofnun Banda­ríkj­anna.

Staðlað verð á „America the Beauti­ful“-passa, sem veitir ótak­mark­aðan aðgang í eitt ár, er nú 80 doll­arar (10 þús­und krónur) fyrir alla kaup­endur. Gjaldið mun því þre­fald­ast fyrir útlend­inga.

Fyrir dags­heim­sóknir rukka sumir garðar gjöld miðað við öku­tæki og aðrir miðað við ein­stak­ling – árspass­inn gildir fyrir alla far­þega auk passa­hafans, eða allt að fjóra full­orðna.

Ein­stak­lingar sem ekki eru búsettir í Banda­ríkj­unum og kaupa árspassa þurfa ekki að greiða 100 doll­ara auka­gjaldið við inn­gang í mest heim­sóttu garð­ana, þar á meðal Evergla­des í Flórída, Acadia í Maine og Yosemite í Kali­forníu, en það gjald mun eiga við um alla aðra erlenda gesti.

Aðdrag­and­inn er að Donald Trump for­seta gaf út for­seta­til­skipun í júlí, sem ætlað var að „vernda“ garð­ana fyrir „banda­rískar fjöl­skyldur“. Til­skip­unin leiðir af sér veru­legan auka­kostnað fyrir flesta útlend­inga, en banda­rískir rík­is­borg­arar og fastir íbúar verða ekki fyrir áhrifum.

„Þeir sem ekki eru búsettir í land­inu munu greiða hærra gjald til að styðja við umhirðu og við­hald garða Banda­ríkj­anna,“ stóð í yfir­lýs­ingu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Ráðu­neytið lagði einnig áherslu á „þjóð­rækna gjald­frjálsa daga“ fyrir íbúa sem myndu fela í sér For­seta­dag­inn, Upp­gjaf­ar­dag­inn og afmæl­is­dag Trumps, sem ber einmitt upp á árlegan fána­dag, 14. júní.

Flestir þjóð­garðar í Banda­ríkj­unum veita aðgang án greiðslu. Um einn af hverjum fjórum rukkar fyrir aðgang og er þá gjarnan um margra daga passa að ræða. Kostn­að­ur­inn í þeim vin­sæl­ustu er gjarnan frá 20 til 35 doll­urum, eða um 2.500 til 4.500 krónur, fyrir hverja bif­reið til sjö daga.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Þótt fyrr hefði verið. Lagmark að ferðamenn og erlendir óligarkar greið fyrir allar samgöngur a Íslandi. Almenningur hefur þurft að bera allan kostnað af veru þeirra hér. Þeir einu sem hafa haft eitthvað uppúr því að veita þeim aðgang að náttúru og innviðum landsins eru kaupmenn og fólk í ferðabransanum. A meðan innviðir og öll velfrrð grotnar niður á okkar kostnað. Sveiattann👿
    0
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Það er nokk sama hvað kostar hjá Trump ekki fer ég til USA meðan þetta gerpi er forseti.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár