Kyrrsetja 1.700 manns í skemmtiferðaskipi eftir dauða farþega

Tugir veikt­ust og einn er lát­inn. Skipið stefnir til Íslands á næst­unni.

Kyrrsetja 1.700 manns í skemmtiferðaskipi eftir dauða farþega
Farþegar á Ambition Breska skemmti­ferða­skipið sem skráð er á Bahamas er bundið við bryggju í Bordeaux í Frakk­landi með 1.700 manns inn­an­borðs. Mynd: AFP

Frönsk yfir­völd hafa kyrr­sett yfir 1.700 far­þega og áhafn­ar­með­limi um borð í bresku skemmti­ferða­skipi sem lá við bryggju í Bordeaux eftir að aldr­aður far­þegi lést, að sögn yfir­valda, sem gerðu þó lítið úr tengslum við hanta­veiruna.

Tugir far­þega fengu einnig maga­kveisu um borð í skip­inu Ambition, en flestir af 1.233 far­þegum þess eru frá Bret­landi eða Írlandi. Skipið kom til hafnar í Bordeaux á vest­ur­strönd­inni á þriðju­dag, en um borð voru einnig 514 ind­verskir áhafn­ar­með­limir.

Skipið er vænt­an­legt til Íslands í júní, þar sem það á að stoppa í Reykja­vík, Ísafirði og á Akureyri, eftir brott­för frá Belfast 4. júní.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd sögðu hins vegar engin tengsl vera við far­aldur hanta­veiru, sem grunur leikur á að hafi orðið þremur far­þegum að bana um borð í hol­lenska skemmti­ferða­skip­inu MV Hondius sem lagði úr höfn frá Argent­ínu.

Einn níræður far­þegi um borð í Ambition, sem er í eigu útgerð­ar­fé­lags­ins Ambassa­dor Cruise Line, lést og um 50 manns hafa sýnt ein­kenni maga­kveisu, að sögn yfir­valda.

Fyrstu próf­anir úti­lok­uðu nóró­veiru­far­aldur, sem er mjög smit­andi teg­und af maga­bólgu sem veldur upp­köstum og nið­ur­gangi, en frek­ari rann­sóknir voru enn í gangi, bættu þau við.

Ekki hafði verið úti­lokað að um mat­ar­eitrun væri að ræða.

Einkenni far­þega um borð í Ambition náðu hámarki á mánu­dag þegar skipið lá við bryggju í Brest, að sögn yfir­valda. Níræði far­þeg­inn lést áður en skipið kom til hafnar í borg­inni í Bretagne-hér­aði í norð­vest­ur­hluta Frakk­lands.

Skipið, sem lagði úr höfn frá Hjaltlandseyjum norður af Skotlandi þann 6. maí, stopp­aði í Belfast á Norður-Írlandi og Liverpool á Englandi áður en það kom til Bordeaux, þaðan sem áætlað var að sigla til Spánar.

Engar örygg­is­ráð­staf­anir voru gerðar í kringum skipið þar sem það lá við bryggju í Bordeaux fyrr í dag, að sögn frétta­manns AFP. Farþegar voru að taka myndir af frönsku borg­inni af þil­far­inu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár