<span>Útivist og iðnaður:</span> Ferðasvæði höfuðborgarbúa í hættu
Náman fer stækk­andi Efn­istaka í Ing­ólfs­fjalli fjórt­án­fald­að­ist árið 2021. Mynd: Golli

Útivist og iðnaður: Ferðasvæði höfuðborgarbúa í hættu

Þrátt fyrir mik­il­vægi úti­vistar fyrir lík­ama og sál hefur verið gengið á ýmsa staði sem íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sækja. Heim­ildin skoð­aði úti­vist­ar­svæði í nágrenni höf­uð­stað­ar­ins sem hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir námu­vinnslu, bor­holupöllum og fyr­ir­hug­uðum vind­orku­görðum.

„Það er mann­eskjum eðl­is­lægt að vera úti og njóta úti­vistar, anda að sér fersku og súr­efn­is­ríku lofti, það hreinsar hug­ann,“ var eitt sinn haft eftir Erlingi Jóhanns­syni, pró­fessor í íþrótta- og heilsu­fræðum við Háskóla Íslands.

Síðustu ár hafa ýmis sveit­ar­fé­lög lagt áherslu á hreyf­ingu, heil­brigt líf og umhverfi. Til dæmis opn­uðu Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, SSH, vef­inn Út um allt í fyrra með það mark­mið að gera úti­vist­ar­mögu­leika sýni­legri fyrir íbúa og gesti. „Við bindum miklar vonir við þennan vef sem er eitt af þessum sam­eig­in­legu verk­efnum sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem gera svæðið í heild enn betra og skemmti­legra til búsetu,“ sagði Páll Björgvin Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri SSH. Þá eru sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem og fjöldi sveit­ar­fé­laga í kring, á borð við Ölfus, Grímsnes- og Grafn­ings­hrepp og Akranes, þátt­tak­endur í verk­efn­inu Heilsu­efl­andi sam­fé­lag á vegum Embættis land­læknis. Einn af gát­listum verk­efn­is­ins snýr að vellíðan með hreyf­ingu og úti­veru.

Þrátt …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÁG
    Kristín Áslaug Guðmundsdóttir skrifaði
    Góðan daginn
    Mér tekst ekki að opna Heimildina í öðru tæki en símanum mínum
    Ætlaði að opna í sína eiginmannsins en tókst ekki
    Á það ekki að vera hægt?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár