Skóg­ar­böðin Skiluðu vænum hagn­aði strax á fyrsta rekstr­ar­ári og arð­greiðslan fylgdi eftir það næsta. Mynd: Shutterstock

Varar við sköttum eftir vænan hagnað

Ævin­týra­legur hagn­aður hefur verið á bað­lónum á Íslandi síð­ustu ár. Eigandi Skóg­ar­bað­anna segir fyr­ir­hug­aða skatta­hækkun „eyði­leggja“ það sem gangi vel. Hann seg­ist ekki „borga út neinar arð­greiðslur“, en greiddi út arð á síð­asta birta rekstr­ar­ári og stefnir í nán­ast skuld­laust félag á næsta ári.

Fram­kvæmda­stjóri Skóg­ar­bað­anna við Eyja­fjörð hefur lýst áhyggjum af áformum um að færa virð­is­auka­skatt af bað­lónum í hefð­bundið þrep virð­is­auka­skatts, 24%. Í við­tölum á RÚV og við Vísi.is segir hann rekst­ur­inn í upp­námi og full­yrðir að ríkið muni „eyði­leggja“ það sem gangi sæmi­lega „alveg í einum grænum hvelli“.

Ekki kom fram í frétt­unum að Skóg­ar­böðin högn­uð­ust strax í upp­hafi um veru­legar upp­hæðir og var greiddur arður til eig­enda strax á öðru rekstr­ar­ári. Þvert á móti full­yrti eig­and­inn og fram­kvæmda­stjór­inn í gær: „Við sitjum ekki á neinum sjóðum eða ein­hverjum vara­forða eða nokkurn skap­aðan hlut. Við borgum ekki út neinar arð­greiðslur eða neitt.“

Mikill hagnaður baðlóna

Rekstur bað­lóna, sem byggir á notkun heits vatns, í þessu til­felli úr hita­vatnsæð sem opn­að­ist við gerð Vaðla­heið­ar­ganga, hefur verið sér­stak­lega ábata­samur á Íslandi og eru …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár