Baðlónin standa sterkt meðan eigendur mótmæla nýju skattþrepi

Ís­lensk baðlón hafa vax­ið hratt á und­an­förn­um ár­um og flest þeirra skila nú veru­leg­um hagn­aði. Stjórn­völd telja ekki leng­ur ástæðu til að baðlón njóti lægra þreps virð­is­auka­skatts og ætla að færa þau í al­menna skatt­þrep­ið. Eig­end­ur og stjórn­end­ur bað­stað­anna mót­mæla því af mikl­um móð.

Íslenski baðlónamarkaðurinn stendur sterkt eftir öran vöxt síðustu ára. Nýjustu ársreikningar sýna að flest stærstu baðlón landsins eru rekin með myndarlegum hagnaði og milljarðar hafa ratað í vasa eigenda þeirra í formi arðs á síðustu árum. Eigendur lónanna virðast líka hafa trú á að greinin geti vaxið enn meira, því víða hafa milljarðar króna farið í stækkun, endurbætur, nýja baðstaði og fjölbreyttari þjónustu við staðina.

Nýbirtir ársreikningar fyrir síðasta rekstrarár sýna að Sky Lagoon hagnaðist um 1,6 milljarða króna á síðasta ári og greiddi eigendum 1,4 milljarða í arð og ætlar að greiða 1,5 milljarða króna til viðbótar í arð í ár. Gamla laugin á Flúðum hagnaðist um 318 milljónir af 833 milljóna tekjum. Skógarböðin skiluðu 248 milljóna hagnaði, Jarðböðin við Mývatn 210 milljónum og Vök rúmlega 100 milljónum.

Stærsti aðilinn, Bláa lónið, sneri jafnframt úr tapi árið 2024 í tæplega milljarðs króna hagnað á síðasta ári, eftir að náttúruhamfarir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Um­deild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Sam­kvæmt lóða­leigu­samn­ingi hef­ur fyr­ir­tæk­ið Reykja­nes Aur­ora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra radíus við Reykja­nes­vita þrátt fyr­ir að leigja að­eins hluta af því landi. Eig­and­inn seg­ir að reynt hafi ver­ið á gjald­heimt­una fyr­ir dómi og hún úr­skurð­uð hon­um í vil. „Þetta er bú­ið að vera vand­ræða­mál,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar.
Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“
SkýringFerðamannalandið Ísland

Ósnort­in víð­erni: „Sorg­legt að við get­um ekki hugs­að lengra fram í tím­ann“

„Þetta er nátt­úr­lega bara fyr­ir ákveð­inn hóp og skemm­ir í leið­inni upp­lif­un hinna sem vildu njóta nátt­úr­unn­ar,“ seg­ir Svan­hvít Helga Jó­hanns­dótt­ir um fyr­ir­hug­að­ar fram­kvæmd­ir við Hof­fell­slón. Breyt­ing­ar við lón­ið, Skafta­fell og Von­ar­skarð hafa vak­ið upp sterk við­brögð og spurn­ing­ar um nátt­úru­vernd í og við UNESCO-svæði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár