Náttúruunnendur mótmæla nýju baðlóni við Hoffell

Bláa lónið stefnir að upp­bygg­ingu hót­els og bað­lóns við Hof­fellslón í Sveit­ar­fé­lag­inu Horn­ar­firði en umsagnir á Skipu­lags­gátt eru alfarið nei­kvæðar. „Við erum á leið­inni að einka­væða nátt­úr­una í þágu ríkra erlendra ferða­manna, en á kostnað íbúa svæð­is­ins,“ skrifar land­vörður.

Náttúruunnendur mótmæla nýju baðlóni við Hoffell
Hof­fellslón Bláa lónið stefnir á upp­bygg­ingu hót­els og bað­lóns upp við lónið. Mynd: Wikipedia

Leið­sögu­menn, land­verðir, íbúar á Horna­firði og nátt­úru­unn­endur mót­mæla upp­bygg­ingu Bláa lóns­ins á nýju bað­lóni og hót­eli við Hoffell í Sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði.

Bláa lónið áformar að byggja upp á svæð­inu við Hof­fellslón sem nú er ósnortið og öllum aðgengi­legt. Hótel með bað­lóni og veit­inga­að­stöðu mun rísa, auk þess sem gesta­stofa með sýn­ingu um „jarð­sögu svæð­is­ins, göngu­stíga og upp­lýs­inga­skilti um nátt­úru- og menn­ing­arminjar svæð­is­ins“ verður sett upp.

„Nýr vinnu­staður mun þannig styrkja stoðir atvinnu­lífs í fjöl­menn­asta byggða­kjarna sveit­ar­fé­lags­ins en ferða­þjón­usta er önnur af meg­in­stoðum atvinnu­lífs sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar,“ segir í upp­lýs­ingum um verk­efnið á Skipu­lags­gátt­inni. „Hoffell er í um 20 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Höfn en um 70% af íbúum sveit­ar­fé­lags­ins búa á Höfn. Áætlað er að flest starfs­fólk hót­els og baða muni búa á Höfn. Reiknað er með að starfs­menn ferða­þjón­ustu í …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KKJ
    Katrin Kinga Jósefsdóttir skrifaði
    Það þarf að stofna undirskriftalista á Ísland.is til að gefa landsmönnum tækifæri til að mómæla þessari vanhugsuðu framkvæmd.
    Katrín Kinga
    0
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Fannst í alvörunni nóg af heitu vatni við Hoffell til að hægt sé að hita bæði baðlón og þéttbýlið við Höfn?
    1
    • PB
      Peik Bjarnason skrifaði
      Og ef svo er, má ekki baðlónið bara vera á Höfn, eða er kannski ekki pláss fyrir það þar?
      0
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Hryðjuverkum ferðaþjónustu einkaaðila gegn ósnortnu víðerni er auðvitað bara peningafíkn illa innrættra og/eða snatvitlausra peningamanna og verður til þess eins að gjaldfella Ísland sem sérstakan áfangastað sem geymir þögn og ferskleika handa uppgefnum borgarbúa.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár