„Húsin eru ekki tveggja hæða“
Nýbygg­ingar við Skafta­fell Bæj­ar­stjór­inn á Höfn segir að húsin séu ekki tveggja hæða og að breyt­ing úr einni hæð í tvær hæðir, sam­kvæmt skil­málum í deiliskipu­lagi, sé aðeins tækni­leg. Mynd: Spessi

„Húsin eru ekki tveggja hæða“

Hús við Skafta­fell sem áttu að vera ein hæð, sam­kvæmt skil­málum deiliskipu­lags, máttu síðar verða tvær hæðir. Bæj­ar­stjóri segir að „ekki var um að ræða hækkun húsa um heila hæð“.

„Ekki var um að ræða hækkun húsa um heila hæð né breyt­ingu á hámarks­hæð bygg­inga,“ segir Sigurjón Andr­és­son, bæj­ar­stjóri Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar, um breytta skil­mála deiliskipu­lags vegna 70 húsa við þjóð­garð­inn í Skafta­felli, þar sem farið var úr því að skil­greina að „húsin skulu vera á einni hæð“ yfir í „húsin skulu vera á einni til tveimur hæðum“.

Í yfir­lýs­ingu á vef Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar tekur Sigurjón enn sterkar til orða og hafnar því að húsin séu tveggja hæða. „Ég veit að þetta kann að virð­ast þannig þegar horft er á fram­kvæmd­irnar, en húsin eru ekki tveggja hæða í hefð­bundnum skiln­ingi,“ segir hann.

„Það sem skiptir mestu máli þegar ásýnd byggðar er metin er umfang hennar og ytri stærðir – og þær breytt­ust ekki við skipu­lags­breyt­ingu árið 2024.“

Orð hans stang­ast á við upp­lýs­ingar í skýrslu sem útbúin var vegna breyt­ingar á deiliskipu­lagi, sem heim­ila átti bygg­ingu 35 húsa á Skafta­felli 4, sem áttu að vera sam­bæri­leg 35 húsum sem höfðu verið heim­iluð á Skafta­felli 3.

Breyttir skilmálar séu aðeins tæknilegir

Sigurjón Andr­és­sonBæj­ar­stjór­inn á Höfn segir að engar breyt­ingar verði gerðar á ákvörðun um upp­bygg­ingu við Skafta­fell, þrátt fyrir harða gagn­rýni íbúa.

Breyting á gild­andi skil­málum birt­ist í skýrslu verk­fræði­stof­unnar Eflu frá 3. jan­úar 2024. Auk þess að til­greina að húsin mættu vera á tveimur hæðum, í breyttum skil­málum, var kveðið á um að þau mættu vera allt að 64 fer­metrar, en ekki 40 fer­metrar, eins og áður var kveðið á um.

Þessi breyt­ing var þó ekki til­greind þegar deiliskipu­lagið var aug­lýst, heldur kom fram í aug­lýs­ingu að upp­bygg­ing væri „sam­bæri­leg“ og að fjölgun húsa úr 35 í 70 væri „tvö­földun á upp­bygg­ingu“, þó svo að skil­mála­breyt­ing sem kynnt er í skýrslu Eflu fælu í sér að húsin mættu vera 60% stærri að flat­ar­máli og einni hæð hærri en áður var kveðið á um.

Segir ekki bætt við hæð

Sigurjón segir í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að svo sé ekki.

„Ekki var um að ræða hækkun húsa um heila hæð né breyt­ingu á hámarks­hæð bygg­inga,“ segir Sigurjón í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Í upp­haf­legum skil­málum deiliskipu­lags var heim­ilt að reisa 35 hús með 40 fer­metra grunn­fleti, hámarks­mæn­is­hæð 6 metra frá gólf­plötu og svefn­lofti. Í breyttum skil­málum er hámarks­grunn­flötur húsa óbreyttur. Hins vegar var kveðið á um hámarks­stærð svefn­lofts, allt að 24 m², til skýr­ingar og afmörk­unar. Hámarks­mæn­is­hæð 6 metrar var áfram óbreytt.“

Breyttir skil­málarÍ skýrslu verk­fræði­stof­unnar Eflu um breyt­ingu á deiliskipu­lagi kemur fram að hæðir húsa megi vera tvær, en ekki ein, eins og áður gilti.
Ekki tvær hæðirBæj­ar­stjóri sveit­ar­fé­lags­ins sem fer með skipu­lags­mál við þjóð­garð­inn á Skafta­felli hafnar því að húsið sé tvær hæðir „í hefð­bundnum skiln­ingi“.

Þó segir Sigurjón að hámarks­hæð útveggja verið aukin úr 4,5 metrum í 6 metra. „Um er að ræða tækni­lega útfærslu á skil­málum en ekki efn­is­lega hækkun bygg­inga,“ segir hann.

Þá seg­ist hann standa við að hug­tökin „tvö­földun“ og „sam­bæri­leg upp­bygg­ing“ eigi við um breyt­ing­una. Þau „vísa í þessu sam­hengi fyrst og fremst til fjölda húsa og land­notk­unar,“ segir hann. 

Ásýnd við þjóðgarðinn gagnrýnd

Samkvæmt heim­ildum er víð­tæk óánægja meðal íbúa á svæð­inu vegna áhrifa nýbygg­ing­anna á ásýnd svæð­is­ins, sem er við þjóð­garð á heimsminja­skrá.

Íbúi á Skafta­felli 2 ræddi við Heim­ild­ina í gær og sagði kynn­ingu á breyt­ing­unum hafa farið fram hjá íbúum. 

Þá hafa fram­kvæmd­irnar verið gagn­rýndar víða á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég varð var við að það væri búið að koma upp, að ég hélt vinnu­skúrum fyrir framan Skafta­fell. Svo kemur í ljós að þetta á að vera ein­hvers­konar hótel íbúðir,“ segir ljós­mynd­ar­inn Spessi.

„Þetta er hámark smekk­leysunar. Hverslags omerk­ingar eru það sem veita leyfi fyrir þessum hroða í and­dyri þjóð­garðs­ins?“ segir Hinrik Ólafsson leið­sögu­maður á Facebook.

Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason, sem gaf nýlega út skáld­sög­una Jöt­un­stein, tengda skipu­lags­málum, bendir á áhrifin á til­finn­ing­una um víð­áttu í færslu á Facebook.

„Sér­kenni­legt að sjá fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu gjör­sam­lega blint á þau verð­mæti sem það gerir út á.“
Andri Snær Magnason

„Arctic Adventures virð­ast standa fyrir þeirri frá­leitu fram­kvæmd að setja heilt þorp af smekklausum gáma­húsum á landa­merkin við Skafta­fell og gjör­breyta allri til­finn­ingu fyrir víð­áttu og nátt­úru á svæð­inu. Sér­kenni­legt að sjá fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu gjör­sam­lega blint á þau verð­mæti sem það gerir út á.“

Hann segir ummæli bæj­ar­stjóra Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar um að húsin séu ekki tveggja hæða, í hefð­bundnum skiln­ingi, lík­lega vera ummæli árs­ins.

Sigurjón Andr­és­son hefur ekki svarað öðrum fyr­ir­spurnum Heim­ild­ar­innar, meðal ann­ars um hvernig sam­ráði við Vatna­jök­uls­þjóð­garð var háttað, sem kveðið var á um í deiliskipu­lags­gögnum, en þjóð­garðs­vörður var­aði við áhrifum hús­anna á ásýnd svæð­is­ins. 

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hvernig geta tvær hæðir orðið að einni? Eru skipulagsyfirvöldin í Hornafirði með aðra skynjun á raunveruleikanum en venjulegt fólk?
    1
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Gólfið í húsinu er greinilega mishátt á milli herbergja. Ég man eftir svona smið frá í gamladaga. Hann var ekki talinn vandvirkur.
    1
  • ÓJ
    Ólafur Jónsson skrifaði
    Vonandi eru handritshöfundar skaupsins að punkta hjá sér...
    4
  • Örn Bárður Jónsson skrifaði
    Þetta er ein hæð plús háð.
    4
  • SS
    Sigurbjörn Skarphéðinsson skrifaði
    Margar skrítnar skilgreiningar hefur maður séð á hæð og/eða hæðum húsa. Þessi slær þó öll met.
    Ef þessi mynd sem fylgir þessari grein er af raunverulegu útliti hússins er þetta tveggja hæða hús samkvæmt skilningi þeirra laga sem ég þekki til. Greinilega þarf stiga til að komast milli hæða.
    Ef húsið væri með venjulegu hallandi þaki þá væri kannski hægt að tala um svefnloft í "hefðbundnum skilningi". Fyrir utan það hvað útlitið hefði þá kallast betur á við fjöllin í kring. Þetta er eins og skrattinn úr sauðaleggnum.
    Afar sérkennilegt.
    10
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Óhugnanleg sýn á þessar byggingar sem eru ótrúlega ljótar
    og ætti alls ekki að leyfa byggingar þarna. Mega þessi Ferðaþjónustufyrirtæki
    gera allt sem þeim sýnist ? Er Skaftafell ekki þjóðgarður ?
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár