Umdeild uppbygging við Skaftafell

Verið er að byggja 70 hús við þjóð­garð­inn í Skafta­felli sem „gjör­breyta ásýnd þjóð­garðs­ins og sveit­ar­innar,“ að mati íbúa á Skafta­felli 2. Hús voru hækkuð með óljósri aug­lýs­ingu.

Umdeild uppbygging við Skaftafell
70 hús við Skafta­fell Upp­haf­lega áttu húsin að vera ein hæð, en þau voru hækkuð í tvær hæðir með breyt­ingu sem fór fram­hjá mörgum. Mynd: Jón Ágúst Guðjónsson

Íbúi við Skafta­fell hefur áhyggjur af því að 70 ferða­manna­hýsi, sem nú eru í bygg­ingu, stang­ist á við umhverfi þjóð­garðs­ins. Þá hafi mikil breyt­ing á deiliskipu­lagi farið fram hjá mörgum. Orðalag aug­lýs­ingar Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar virð­ist hafa verið vill­andi og bein­línis rangt að hluta.

Vatna­jök­uls­þjóð­garður, sem er á heimsminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna, gagn­rýndi að ekki væri tekið til sjón­rænna áhrifa og vísar til ábyrgðar sveit­ar­fé­lags­ins, sem hafði ætlað sér sam­ráð við þjóð­garð­inn. 

Húsin áttu að vera lágreist

Jón Ágúst Guð­jóns­son býr á Skafta­felli 2 í Öræfum, skammt austan við þjóð­garð­inn á Skafta­felli. Á Skafta­felli 3 og 4 hefur verið heim­iluð gríð­ar­leg upp­bygg­ing á húsum fyrir ferða­menn, sem áttu upp­haf­lega að vera lágreist, á einni hæð, en voru upp­færð í tveggja hæða hús og fjöldi þeirra tvö­fald­aður úr 35 í 70.

„Það virð­ist vera, þetta virð­ist hafa farið fram­hjá flestum hér,“ segir Jón Ágúst í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann segir í umræð­unni að kalla eftir íbúa­fundi um upp­bygg­ing­una. „Ég hef engan hitt sem líst vel á þetta,“ segir hann.

Húsin eru í hraðri upp­bygg­ingu þessa dag­ana. „Þetta er bara að ger­ast og ekki allir sem eru búnir að sjá þetta,“ segir hann.

Byggt á sand­breið­unniBygg­ing­arnar blaða við þegar far­inn er þjóð­veg­ur­inn að Skafta­felli og ofan af Skafta­fells­heiði.

Hækkuðu byggingarnar

Upp­haf­lega var í skipu­lagi heim­ild fyrir bygg­ingu 35 ferða­manna­hýsa.  „Húsin skulu vera á einni hæð,“ sagði í gild­andi skil­málum. Þegar þessu var breytt hljóð­aði aug­lýs­ingin frá sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði svo: „Helstu mark­mið breyt­ing­ar­innar eru að bygg­ing­ar­heim­ildir aukast úr 35 gisti- og þjón­ustu­húsum í 70 hús með sam­tals 70 gisti­rýmum sem jafn­gildir 140 gist­i­rúmum.“ 

Um leið var hins vegar veitt heim­ild til þess að tvö­falda hæð hús­anna og stækka hvert og eitt þeirra úr 40 fer­metrum í 64 fer­metra. Þessi breyt­ing fór fram hjá mörgum íbúum.

Jón Ágúst Guð­jóns­sonÍbúi á Skafta­felli 2 segir að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega breyt­ingu á deiliskipu­lagi hafi farið fram hjá íbúum.

„Svæðið fellur ekki undir sér­staka vernd nátt­úru­fyr­ir­bæra,“ sagði í skýrslu Eflu við kynn­ingu á fram­kvæmd­unum.„Áhrif á ásýnd er [sic] metin óveru­leg,“ sagði þar einnig. 

Þessu er Jón Ágúst, á Skafta­felli 2, ekki sam­mála. „Fyrstu við­brögð við að sjá þetta og heyra að það eigi að rísa þarna 70 hús í þessum stíl eru að þetta eigi ekki heima á þessum stað og að þetta gjör­breyti ásýnd þjóð­garðs­ins og sveit­ar­innar,“ skrif­aði Jón Ágúst í færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli.

Þar færir Jón Ágúst fram tví­þætta gagn­rýni, að kynn­ing hafi verið lítil og að nið­ur­staðan sé byggð sem stang­ast á við umhverfi sitt. „Mér finnst brýnt að allar fram­kvæmdir í því ein­staka lands­lagi sem er hér í Öræfunum falli vel að lands­lagi og sveit­ar­brag og að við komum í veg fyrir að umhverf­inu sé spillt með fram­kvæmdum sem ekki passa hér,“ segir hann.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Nú höfum við fengið nýja skilgreiningu á svefnlofti. Um leið og Árnastofnun er búin að setja hana inn í orðabók þá verður allt í lagi...ekki satt?
    0
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Nú er komin ný skilgreining á svefnloft. Orðið sð heilli hæð. Hingað til hefur svefnloft verið efri hæð mest megnis undir súð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár