Múlagljúfur Fjöldi ferða­manna fór úr nokkrum þús­undum á ári í 120 þús­und á nokkrum árum. Stærsti styrkur Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða rann í gljúfrið á síð­asta ári, en á sama tíma hófu land­eig­endur gjald­skyldu fyrir komu­fólk. Mynd: Shutterstock

Fyrst borgaði ríkið stíga – svo rukkuðu landeigendur

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða hefur styrkt stíga­gerð við nátt­úruperluna Múlagljúfur um á annað hund­rað millj­óna króna á síð­ustu þremur árum, en land­eig­endur rukka tekjur í gegnum Parka. „Á gráu svæði,“ segir full­trúi sjóðs­ins.

Íslenska ríkið hefur lagt 112,4 millj­ónir króna í lagn­ingu göngu­stíga í Múlagljúfri í Öræfum á síð­ustu þremur árum, en land­eig­endur á svæð­inu inn­leiddu á sama tíma gjald­skyldu og inn­heimta tekjur af mal­arplani við upp­haf göngu­stígs­ins.  

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða, sem heyrir undir Ferða­mála­stofu, starfar eftir reglu­verki sem bannar styrk­veit­ingu til ferða­manna­staða  sem „ekki eru opnir gjald­frjálsri umferð almenn­ings“. Á Múlagljúfri er sjálf­virk inn­heimtu­lausn Parka notuð til að rukka þau sem koma á svæðið, á þeim for­sendum að inn­heimtan fjár­magni upp­bygg­ingu svæð­is­ins. Að sögn tals­manns Ferða­mála­stofu er horft til þess að reglur heim­ili styrki til staða þar sem veitt er þjón­usta gegn greiðslu. Mal­arplanið undir Múlagljúfri telst því til veittrar þjón­ustu, en tals­mað­ur­inn segir málið „á gráu svæði“. 

Sjálfsprottnar vinsældir

Múlagljúfur varð smám saman vin­sæll áfanga­staður fyrir fáum árum og tekur Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða fram í umsögn með styrk­veit­ingu að vin­sæld­irnar hafi að mestu verið „sjálf­sprottnar“. 

Að svæð­inu liggur slóði frá Þjóðvegi 1 undir …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Einkavæða arð og ríkisvæða töp.👿🤬 Landeigendur eiga skilyrðislaust að greiða okkur til baka útlagðan kostnað!
    8
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    HVað er athugavert við að landeigendur reyni að hafa tekjur af eign sinni?
    -12
    • GS
      Gísli Sveinsson skrifaði
      Væri þá ekki sanngjarnt að landeigendur endurgreiddu okkur þessar 112 milljónir sem að við höfum greitt fyrir stígagerð „lamdi þeirra.”
      16
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár