Skeljungur greiddi út 600 milljóna arð í miðjum COVID-faraldri

Oíu­fé­lagið Skelj­ungur greiddi út 600 millj­óna króna arð til hlut­hafa í byrjun apríl. For­stjóri félags­ins, Árni Pétur Jónsson, vildi ekki svara því í gær hvort félagið hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu.

Skeljungur greiddi út 600 milljóna arð í miðjum COVID-faraldri
Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs sem ákvað að halda til streitu 600 millj­óna króna arð­greiðslu til hlut­hafa þrátt fyrir COVID-far­ald­ur­inn. Mynd: Skeljungur / Hörður Sveinsson

Olíu­fé­lagið Skelj­ungur greiddi út 600 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna þann 2. apríl síð­ast­lið­inn, í miðjum COVID-far­aldr­inum. Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri Skelj­ungs sem kynnt var eftir lokun hluta­bréfa­mark­aða í dag. Fjölmörg fyr­ir­tæki á Íslandi hafa frestað arð­greiðslum síð­ustu vik­urnar út af COVID-far­aldr­inum. Skelj­ungur gerði það ekki. 

Orðrétt segir um þetta í fjár­festa­kynn­ingu um árs­hluta­upp­gjörið: „Á aðal­fundi Skelj­ungs hf. þann 5. mars 2020 var sam­þykkt að greiða arð til hlut­hafa að fjár­hæð 600 millj­ónum króna. Greiðsla arðs fór fram þann 2. apríl 2020.“ Arð­greiðslan er vegna rekstr­ar­árs­ins í fyrra.

„Greiðsla arðs fór fram þann 2. apríl 2020.“

Meðal fyr­ir­tækja sem frestað hafa arð­greiðslum sínum eru Íslands­banki, sem er einn stærsti hlut­hafi Skelj­ungs, Arion banki, Lands­bank­inn, fast­eign­fé­lagið Reginn og Vátrygg­inga­fé­lag Íslands. 

Forstjórinn vildi bíða með að svara

Stundin sendi Árna Pétri Jónssyni, for­stjóra Skelj­ungs, tölvu­póst í gær með spurn­ingum um hvort félagið hefði greitt umræddan arð út líkt og ákveðið var að gera á aðal­fundi félags­ins í byrjun mars.

Árni Pétur svar­aði því til að hann vildi bíða með að svara spurn­ing­unum um málið þar til eftir að félagið hefði kynnt árs­hluta­upp­gjör sitt í dag. „Við erum að birta upp­gjör okkar eftir lokun mark­aða á morgun, þriðju­dag, og því ekki í stöðu til að svara þér strax. Ég mun koma svörum við fyr­ir­spurn þinni til þín fyrir hádegi á mið­viku­dag­inn,“ sagði hann. 

Stað­fest­ingin á arð­greiðsl­unni kom svo fram í upp­gjöri félags­ins í dag fyrir fyrsta árs­fjórð­ung 2020. 

Meðal þeirra spurn­inga sem Stundin spurði er hvort Skelj­ungur hefði nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu. Árni Pétur taldi sig ekki geta svarað þeirri spurn­ingu á mánu­dag­inn.

Í upp­gjör­inu er jafn­framt rakið að COVID-far­ald­ur­inn hafi slæm áhrif á rekstur Skelj­ungs, eins og gefur að skilja. „COVID-19 heims­far­ald­ur­inn hafði tals­verð áhrif á rekstur sam­stæð­unnar undir lok árs­fjórð­ungs­ins og óljóst hver áhrifin verða til skemmri og lengri tíma,“ segir í kynn­ing­unni á upp­gjör­inu.

Stærstu hlut­hafar Skelj­ungs eru líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, Íslands­banki, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Kvika, Arion banki, líf­eyr­ir­sjóð­ur­inn Birta og eign­ar­halds­fé­lagið 365, sem er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar athafna­manns sem jafn­framt er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs. 

Skeljungur hefur varið starfsmenn

Í árs­hluta­upp­gjör­inu kemur ekki fram með beinum hætti hvort Skelj­ungur hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina. Hins vegar segir þar að fyr­ir­tækið hafi tryggt „öryggi starfs­manna“ auk þess sem fram kemur að olíu­fé­lagið hafi orðið fyrir nei­kvæðum afleið­ingum af fækkun ferða­manna í kjöl­far COVID. 

Hvort þetta þýði að félagið hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina liggur hins vegar ekki fyrir þar sem Árni Pétur hafði ekki svarað spurn­ingu Stund­ar­innar um þetta þegar fréttin var birt. 

Í skil­yrðum stjórn­valda um notkun fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni í kjöl­far COVID er ekki lagt bann við arð­greiðslum fyr­ir­tækja sem nýta sér þessa leið. Slíkt bann er í gildi fyrir fyr­ir­tæki sem fá brú­ar­lán með rík­is­á­byrgð frá stjórn­völdum til að verja rekstr­ar­grund­völl sinn.

For­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, hefur hins vegar sagt að fyr­ir­tækjum sé treyst til að sýna ábyrgð þegar kemur að arð­greiðslum í ljósi sam­fé­lags­á­stands­ins út af COVID: „Auðvitað er það svo að við reiðum okk­ur á að at­vinnu­lífið sýni ábyrgð. En meg­in­mark­miðið er að verja af­komu fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár