Eftirlit Vinnumálastofnunar með hlutabótaleiðinni ekki ásættanlegt

Vinnu­mála­stofnun er gagn­rýnd af Rík­is­end­ur­skoðun fyrir að hafa ekki náð að sinna eft­ir­liti með hluta­bóta­leið­inni með ásætt­an­legum hætti.

Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar
Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar Mynd: Almannavarnir

Rík­is­end­ur­skoðun telur Vinnu­mála­stofnun ekki enn hafa hrint af stað ásætt­an­legu eft­ir­liti með hluta­bóta­leið­inni sem tryggir það að hún fari til þeirra fyr­ir­tækja sem þurfa á henni að halda. Þetta er í annað sinn sem Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir skort á virku eft­ir­liti Vinnu­mála­stofn­unar, en hún gerði það einnig í maí.

Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um vinnu­mark­aðs­að­gerðir á tímum kór­ónu­veiru, sem var birt fyrr í dag. Í henni telur stofn­unin að mik­il­vægt sé að fylgj­ast með hvort greiðslur úr rík­is­sjóði í formi styrkja eða lána séu í sam­kvæmi við mark­mið og skil­yrði þeirra laga sem gilda, en sam­kvæmt henni er slíkt eft­ir­lit mis­langt komið.

Eftirliti komið á með fjölda aðgerða...

Að mati stofn­un­ar­innar er mik­il­vægt að umsjón­ar­að­ilar úrræð­anna skipu­leggi vel með hvaða hætti þeir munu haga sínu eft­ir­liti þegar nauð­syn­leg gögn liggja fyrir og að eft­ir­litið fari fram hið fyrsta. Sem dæmi um slíkt nefnir Rík­is­end­ur­skoðun að komið hafi verið á sam­tíma­eft­ir­liti í raf­rænu umsókn­ar­kerfi við úthlutun lok­un­ar­styrkja, launa á upp­sagn­ar­fresti og launa í sótt­kví. Enn frekar er minnst á Ferða­mála­stofu, sem hefur hafið eft­ir­lit með ráð­stöfun lána

...en ekki hlutabótaleiðinni

Hins vegar segir Rík­is­end­ur­skoðun að Vinnu­mála­stofnun hafi ekki henn hrint af stað ásætt­an­legu eft­ir­liti með hluta­bóta­leið­inni, ef frá er talið eft­ir­lit með því hvort fyr­ir­tæki upp­fylli skil­yrði um ótak­mark­aða skatt­skyldu hér á landi og skil­yrði um starf­semi þeirra.

Rík­is­end­ur­skoðun benti á í skýrslu sinni í maí 2020 að mik­il­vægt væri að tryggja virkt eft­ir­lit með úrræð­inu þegar í stað. Í nýju skýrsl­unni sinni gagn­rýnir stofn­unin að slíkt eft­ir­lit skuli ekki enn hafa komið í fram­kvæmd með ásætt­an­legum hætti, og væri það sér­stak­lega athug­un­ar­vert í ljósi þeirra fjár­manna sem hér væru undir.

Heild­ar­kostn­aður við hluta­bóta­leið­ina nam um 21 millj­arði króna í lok októ­ber­mán­aðar síð­ast­lið­ins. Fjár­mála­ráðu­neytið áætlar að alls muni fara 22 millj­arðar króna úr rík­is­sjóði vegna aðgerð­ar­innar í ár, sam­kvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga sem lagt var fram í síð­asta mán­uði.

Rík­is­end­ur­skoðun fer einnig yfir það í skýrsl­unni að hópur fyr­ir­tækja ákvað að end­ur­greiða hluta­bóta­leið­ina eftir að í ljós kom að þau höfðu nýtt sér úrræðið þrátt fyrir að búa við traustan efna­hag og öfl­ugan rekstur. Alls námu end­ur­greiðslur um 240 millj­ónir króna í októ­ber síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár