Ríkisendurskoðun: Fyrirtæki nýttu sér hlutabótaleiðina án þess að þurfa það

Tryggja þarf virkt eft­ir­lit með fram­kvæmd hluta­bóta­leiðar rík­is­stjórn­ar­innar nú þegar að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar. Athygli vekur að opin­berir aðilar og sveit­ar­fé­lög hafa nýtt sér leið­ina þvert á vilja lög­gjafans.

Ríkisendurskoðun: Fyrirtæki nýttu sér hlutabótaleiðina án þess að þurfa það
Segir stjórn­völd þurfa að bregð­ast við Skúli Eggert Þórð­ar­son er rík­is­end­ur­skoð­andi en Rík­is­end­ur­skoðun birti í dag úttekt á hluta­bóta­leið stjórn­valda. Mynd: MBL / Eggert Jóhannesson

Ljóst er að hluta­starfa­leið rík­is­stjórn­ar­innar hefur verið verið nýtt af fyr­ir­tækjum sem ekki eiga í bráðum rekstrar- eða greiðslu­vanda. Þetta er nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar en stofn­unin birti í dag úttekt sína á hluta­bóta­leið­inni. Þá er það mat stofn­un­ar­innar að þegar í stað þurfi að tryggja virkt eft­ir­lit með fram­kvæmd­inni. Fram til þessa hefur áhersla Vinnu­mála­stofn­unar verið á að tryggja fram­kvæmd úrræð­is­ins, umfram eft­ir­lit. Tryggja þarf stofn­unin geti haft eft­ir­lit með því að þeir vinnu­veit­endur sem nýta sér hluta­starfa­leið­ina upp­fylli skil­yrði sem sett eru fram í nýju frum­varpi um fram­leng­ingu úrræð­is­ins.

„Rík­is­end­ur­skoðun telur að fullt til­efni hafi verið fyrir stjórn­völd að end­ur­skoða fram­kvæmd hluta­starfa­leið­ar­innar og bregð­ast við, enda sé þannig leit­ast við að úrræðið sé ein­göngu nýtt af þeim aðilum sem því er ætlað að aðstoða,“ segir í úttekt­inni og bent er á að fyr­ir­tæki hafi nýtt sér leið­ina án þess að hafa þurft á því að halda.

Nýttu sér úrræðið þvert á vilja löggjafarvaldsins

Þá vekur það athygli Rík­is­end­ur­skoð­unar að sveit­ar­fé­lög og opin­berir aðilar hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina, „þrátt fyrir að lög­skýr­ing­ar­gögn beri með sér að úrræðið hafi verið ætlað fyr­ir­tækjum og starfs­mönnum þeirra,“ eins og segir í úttekt­inni. Þar er einnig bent á að um all nokkuð frjáls­ræði hafi verið í túlkun lag­anna, og það þrátt fyrir að stjórn­völd hafi lagt áherslu á að hluta­starfa­leiðin væri stuðn­ingur við líf­væn­leg fyr­ir­tæki sem misst hafi miklar tekjur. „Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin.“

Rík­is­end­ur­skoðun bendir þá enn fremur á að þó dæmi séu um að fyr­ir­tæki hafi til­kynnt að þau hygg­ist end­ur­greiða frma­lag Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs þá sé ekki ljóst hvort, og þá hvernig, sú end­ur­greiðsla eigi að eiga sér stað. Þrátt fyrir að for­dæma­lausar efna­hags­að­stæður hafi kallað á skjót við­brögð stjórn­valda þá sé brýnt að haft sé eft­ir­lit með nýt­ingu rík­i­s­t­jár, að stað­inn sé vörður um hags­muni rík­is­sjóðs og að útgreiðslur úr honum taki mið af vilja lög­gjafans.

Þann 15. maí höfðu 37 þús­und launa­menn og 6.436 vinnu­veit­endur nýtt sér hluta­bóta­leið­ina frá því hún var lög­fest 20. mars. Í mars og apríl voru greiddar 11,6 millj­arðar króna úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði vegna úrræð­is­ins og gerir Vinnu­mála­stofnun ráð fyrir að útgreiðslur vegna hluta­bóta geti numið 30,7 millj­örðum króna á þessu ári. Eitt fyr­ir­tæki sker sig úr í þessum efnum, Icelandair ehf. Í mars og apríl greiddi Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður 926 millj­ónir króna í hluta­bætur vegna starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Heild­ar­greiðsla vegna hluta­bóta til starfs­manna móð­ur­fé­lags flug­fé­lags­ins, Icelandair Group hf., nam 1.116 millj­örðum króna vegna 3.318 starfs­manna. 

 Þá kemur enn fremur fram í úttekt­inni að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Rík­is­skatt­stjóa hafi um 160 launa­greið­endur óskað eftir hækkun á áður til­kynntum launum í jan­úar og febr­úar, svo nemur 114 millj­ónum króna. Eru það væði hærri hækk­un­ar­beiðnir og fleiri en vani er til í venju­legu árferði og telur Rík­is­end­ur­skoðun að kanna þurfi nánar ástæður fyrir þeim hækk­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár