Kenískur langhlaupari segist blekktur til liðs við rússneska herinn

Evans Kibet segist hafa farið til Rússlands til að keppa á íþrótta­móti en hafi verið blekktur til að skrifa undir samning við rússneska herinn. Hann dúsir nú í úkraínsku fangelsi eftir að hafa verið handsamaður á vígvellinum.

Keníski lang­hlauparinn Evans Kibet sagðist hafa komið til Rússlands á íþrótta­viðburð en var þess í stað fluttur í herþjálfunar­búðir og sendur til að berjast í Úkraínu.

Nú er hann í úkraínsku fangelsi eftir að hafa verið tekinn til fanga á víglínunni. Hann sagði AFP að hann hefði verið blekktur til að undirrita rússneskan hersamning sem hann gat hvorki lesið né skilið og hefði aldrei komið til Rússlands ef hann hefði vitað sann­leikann.

Vitnis­burður Kibets varpar ljósi á vaxandi fjölda Afríkubúa sem segjast hafa verið blekktir til að ganga í rússneska herinn, sumir af ráðningar­skrifstofum sem lofuðu háum launum, aðrir með blygðunar­lausum svikum.

„Gildran er sú að þú skrifar undir þennan samning án þess að vita það,“ sagði hann við AFP í fanga­klefa sínum, blóðhlaupinn í augum og með þjáð andlit. „Þeir neyða þig ekki.“

Stjórn­völd í Kænugarði veitti blaða­mönnum, þar á meðal AFP, aðgang að …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár